Morgunblaðið - 08.06.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 08.06.2018, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018 Útgefandi Árvakur Umsjón Þóra Sigurðardóttir Auglýsingar Valur Smári Heimisson valursmari@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndina tók Valli. ... er mögulega kjánalegasta spurning í heimi. Við grillum og höfum gaman af því. Við göngum meira að segja svo langt að grilla í öllum veðrum, við hvaða aðstæður sem er, hvernig sem viðrar og nánast hvað sem er. Ást landans á grilluðum mat eru engin takmörk sett og ég ætla ekkert að reyna að kryfja það til mergjar. Hins vegar er ég klárlega ein þeirra sem elska ekkert heitar en góða steik eða vel brennda pylsu enda var ég alveg við það að birta ekki ráð- leggingarnar hér að neðan frá Matvælastofnun þar sem meðal annars er kveðið á um að ekki skuli brenna mat. Þið gerið það sem þið viljið við þær upplýsingar en það eru vissulega margir góðir punktar þar (og möguleg lífsnauðsynlegir). Matarvef- urinn á mbl.is verður í miklum grillham í sumar og verður með myndbönd, uppskriftir og flest allt það sem viðkemur grill- mennsku með reglulegu millibili í allt sumar. Þetta blað var hugsað sem uppskriftabæklingur og við fengum hina ýmsu snillinga til að grilla og deila með okkur. Pælingin er að þið get- ið kippt blaðinu til hliðar og átt það enda vandfundinn jafn búst- inn og fínn grillbæklingur hér á landi. Njótum lífsins, kveikjum upp í grillinu og gleðilegt grill- sumar! Þóra Sigurðardóttir ritstjóri Matarvefjar mbl.is Morgunblaðið/Eggert Að grilla eða grilla ekki... Fyrsta reglan er að hita grillið vel áð- ur en nokkuð er gert og þrífa með góðum vírbursta eða grillbursta þann- ig að grindurnar séu vel heitar og hreinar. Síðan er komið að því að grilla. Þegar kartöflur eru grillaðar þá er best að setja gróft salt í álpappírinn og grilla kartöflurnar á grindinni sem er fyrir ofan aðalgrindina og hafa grillið lokað. Þetta tekur um 60 mín- útur. Þegar eftir eru um fimm mín- útur af eldunartímanum eru kartöfl- urnar teknar úr álpappírnum og settar aftur á efri grindina í fimm mínútur. Með þessu færðu „crispy skin“ og kartöflurnar verða mun betri. Fiskur Þegar fiskur er grillaður er mjög mik- ilvægt að hafa grillið vel heitt. Þær tegundir sem best er að grilla er fisk- ur sem er frekar þéttur eins lax, lúða og skötuselur. Fiskurinn er kryddaður til og gott er að nota salt, pipar og kryddjurtir. Fiskurinn er síðan settur á heitt grillið. Ekki setja fiskinn í ál- pappír nema að þú viljir sjóða hann sem er allt í lagi en það er bara allt annar hlutur. Þegar fiskurinn er grill- aður þá er mjög mikilvægt að vera ekki að snúa fiskinum fyrr en hann er búinn að fá grillrendurnar. Þetta eru svona sirka tvær mínútur á hvorri hlið. Það sem gerist áður en þú getur snúið fiskinum er að hann brennir sig frá grindunum og þá er ekkert mál að snúa honum. Ef maður reynir að snúa honum áður en hann er laus er hætta á því að hann losni í sundur. Góð regla: Bíddu í smá tíma áður en þú snýrð fiskinum. Flestir eru gjarnir á að snúa aðeins áður en fiskurinn er klár. Þegar búið er að grilla fiskinn er hann tekinn af og sítróna kreist yfir og fiskurinn verður ferskur og enn betri. Kjöt Það eru skiptar skoðanir á því hvort krydda eigi kjötið áður en það er sett á grillið eða á meðan. Mín skoðun er sú að allt marinerað kjöt sé frábært á grillið. Ef maður er með ferskt kjöt þá kryddar maður það á grillinu. Mik- ilvægt er að gera það sama með kjötið og fiskinn, það er að leyfa kjötinu að vera í friði á grillinu meðan verið er að fá grillrendurnar. Ef verið er að grilla stóra hluti eins og lambalæri, heilt rib- eye eða heilan kjúkling þá er þetta reglan: Þú byrjar á því að grilla og loka kjötinu yfir góðum hita þannig að þú fáir fallegar rendur í kjötið. Síðan er slökkt öðru megin á grillinu þar sem kjötið er og grillinu lokað. Þannig eldað kjötið án þess að það kvikni í því. Þetta er snilldaraðferð sem trygg- ir fullkomna eldun. Grænmeti Það grænmeti sem er gott að grilla er meðal annars tómatar, paprika, kúrbít- ur, eggaldin og laukur. Tómata þarf að setja í álpappír þar sem þeir springa auðveldlega eða safinn lekur úr þeim. Gott er að setja annað hvort ferskt rósmarín, salvíu, basil með ólífuolíu eða bara salt og pipar á tómatana. Paprikuna, eggaldinið, kúrbítinn og laukinn er hægt að grilla beint á grill- inu. Setjið þó alltaf olíu og krydd og munið eftir að lofa grænmetinu að brenna sig frá áður en því er snúið. Grillráð Jóns Arnars Núna erum við vonandi búin að losa okkur við þetta ömurlega veður sem hefur verið að trufla okkur við grillið undanfarna daga. Hérna koma nokkur grillráð frá mér sem mikilvægt er að hafa í huga þegar grillað er. Jón Arnar Guðbrandsson veit betur en flestir hvernig á að grilla góðan mat. Njótum grillsins án matarsýkinga Nú horfir til betra veðurs og jafnast fátt á við það að njóta góðs grillmatar undir sólinni í sumarbústaðnum eða útileg- unni. Höfum hugfast að ef ekki er rétt staðið að grillun þá geta sjúkdómsvaldandi örverur eða heilsuspillandi efni spillt gleðinni. Hugar þú að eftirfarandi þegar þú grillar? Þværð þú hendur áður en þú hefst handa við tilreiðslu kjöts og annarra matvæla og eftir snertingu við hrátt kjöt? Hætta á krossmengun minnkar verulega með viðeig- andi handþvotti. Gætir þú þess að kjöt eða safi úr kjöti komist ekki í snertingu við matvæli sem eru tilbúin til neyslu svo sem grænmeti og kaldar sósur? Hægt er að forðast krossmengun með því að nota eina töng fyrir hrátt kjöt og eina fyrir grillað kjöt og sömuleiðis eitt fat fyrir hrátt kjöt og eitt fyrir grillað kjöt. Gætir þú þess að brenna ekki grillmatinn? Brenni yf- irborð matvælanna geta myndast skaðleg og krabbameins- valdandi efni. Það er því mikilvægt að skera frá alla brennda hluta áður en matvælanna er neytt. Gott er að forðast það að grilla mjög feitan mat. Þegar fita lekur á eldinn leikur gjarn- an logi um matvælin. Hitar þú kjötið nægilega? Matvæli verða að ná a.m.k. 75°C í gegn til þess að sjúkdómsvaldar eins og salmonella drepist. Mikilvægt er að gegnumsteikja kjúklinga, svínakjöt og unnar kjötvörur s.s. hamborgara þar sem meiri líkur er á örverum innst í hökkuðum vörum en í hreinum vöðvum. Er kæling grillmatarins viðeigandi á ferðalaginu? Geymsluþol hrávara minnkar til muna ef þeim er ekki haldið köldum og eykur líkur á matarsjúkdómum. Forðast þú Teflon við grillið? Teflon á ekki að nota þegar við grillum, hvorki sem grillgrindur eða áhöld því efnið bráðn- ar við hitastig sem er ekki óvanalegt þegar grillað er. Auk þess getur myndast hættulegt gas. Teflon er samansett af efninu PTFE (Polytetrafluoroethylene) sem þolir ekki hita- stig yfir 300°C og er talið skaðlegt, berist það í líkamann. Bíður þú eftir að grillvökvi sé fullbrunninn og kolin séu orðin glóandi og grá áður en þú setur matinn á grillið? Með þessu minnka líkurnar á að ýmis skaðleg efni berist í grillmatinn. Þrífur þú grillið reglulega og eftir notkun? Fita sem sit- ur á grindum og lekur ofan í grillið brennur næst þegar grill- að er og skaðleg efni geta sest á matvælin. Það er því góð regla að taka grillið í gegn á vorin og þrífa sýnilega fitu að lok- inni grillun. Með því að fylgja þessum ráðleggingum má koma í veg fyr- ir heilsuspillandi örverur og efni í grillmatnum. Hugum að réttri meðferð matvæla og notkun áhalda/íláta, ásamt al- mennu hreinlæti til að njóta heilsusamlegrar grillstundar í faðmi vina og fjölskyldu. Leiðbeiningar frá Matvælastofnun. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.