Morgunblaðið - 08.06.2018, Side 10

Morgunblaðið - 08.06.2018, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018 Ljósmynd: Gunnar Konráðsson Sítrónupipar grillaður lax 2 laxastykki, 225 g hvort ljós ólífuolía 2 msk. sítrónupipar Dreyptu ólífuolíu á laxabitana og sítrónupipar ofan á, láttu hvíla meðan grillið hitnar. Grillaðu við háan hita í 3 mínútur á hvorri hlið eftir þykkt stykkjanna. Settu rósmarínsmjör ofan á og láttu bráðna ofan í laxinn meðan hann er enn heitur. Berðu fram með hunangsgljáðum hvítum aspas. Hunangs- og rommgljáður grillaður aspas 3 msk. hunang 1 msk. dökkt romm ¼ tsk. cayenne-pipar ¼ tsk. kosher-salt ¼ tsk. nýmalaður, svartur pipar 10 hvítir eða grænir aspasstilkar Þeyttu saman hunang, dökkt romm, cayenne- pipar, salt og pipar. Skerðu neðan af aspasinum og hentu þeim hluta. Settu aspasinn út í blönd- una og þektu vel. Láttu standa nokkrar mínútur þar til þú byrjar að grilla. Settu á heitt grill og grillaðu þar til aspasinn er meyr, um það bil 5 mínútur og snúðu eftir þörfum. Rósmarínsmjör 1 msk. fínsaxað ferskt rósmarín ½ tsk. kosher-salt ¼ tsk. nýmalaður blandaður pipar ¼ tsk. rauðar piparflögur ½ tsk. nýrifinn sítrónubörkur safi úr ½ sítrónu ½ tsk. paprika 230 g smjör við stofuhita Blandaðu saman salti, pipar, rauðum pip- arflögum, sítrónuberki, sítrónusafa og papriku. Þeyttu smjörið í annarri skál. Bættu hinu saman við smjörið og þeyttu. Þurrkaðu yfir bretti eða borð með rökum klút til að bleyta yfirborðið. Leggðu stóra örk af plastfilmu á borðið (rakinn eftir klútinn tryggir að hún fari hvergi). Leggðu smjörblönduna eftir neðri hluta filmunnar og vefðu varlega upp svo úr verði löng pylsa og lokaðu svo endunum. Settu smjörið í ísskáp svo það stífni. Smjörið má geyma í ísskáp og nota með fjölda rétta, fiski, kjúklingi eða kjöti, grænmeti eða jafnvel brauði. Sítrónupipar grillaður lax  með hunangs- gljáðum hvítum aspas og rósmarínsmjöri Lax er sívinsæll á grillið, þéttur og góður fiskur sem bragðast einstaklega vel. Hér er eldamennskan fremur einföld en sítrónu- piparinn passar sérlega vel með fiskinum. Aspasinn er svo nánast skilyrði að prófa enda er hunangs- og rommgljáinn engu líkur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.