Morgunblaðið - 08.06.2018, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018
Ljósmynd: Gunnar Konráðsson
Sítrónupipar grillaður lax
2 laxastykki, 225 g hvort
ljós ólífuolía
2 msk. sítrónupipar
Dreyptu ólífuolíu á laxabitana og sítrónupipar ofan á, láttu hvíla meðan grillið hitnar. Grillaðu
við háan hita í 3 mínútur á hvorri hlið eftir þykkt stykkjanna. Settu rósmarínsmjör ofan á og láttu
bráðna ofan í laxinn meðan hann er enn heitur.
Berðu fram með hunangsgljáðum hvítum aspas.
Hunangs- og rommgljáður
grillaður aspas
3 msk. hunang
1 msk. dökkt romm
¼ tsk. cayenne-pipar
¼ tsk. kosher-salt
¼ tsk. nýmalaður, svartur pipar
10 hvítir eða grænir aspasstilkar
Þeyttu saman hunang, dökkt romm, cayenne-
pipar, salt og pipar. Skerðu neðan af aspasinum
og hentu þeim hluta. Settu aspasinn út í blönd-
una og þektu vel. Láttu standa nokkrar mínútur
þar til þú byrjar að grilla. Settu á heitt grill og
grillaðu þar til aspasinn er meyr, um það bil 5
mínútur og snúðu eftir þörfum.
Rósmarínsmjör
1 msk. fínsaxað ferskt rósmarín
½ tsk. kosher-salt
¼ tsk. nýmalaður blandaður pipar
¼ tsk. rauðar piparflögur
½ tsk. nýrifinn sítrónubörkur
safi úr ½ sítrónu
½ tsk. paprika
230 g smjör við stofuhita
Blandaðu saman salti, pipar, rauðum pip-
arflögum, sítrónuberki, sítrónusafa og papriku. Þeyttu smjörið í annarri skál. Bættu hinu saman
við smjörið og þeyttu. Þurrkaðu yfir bretti eða borð með rökum klút til að bleyta yfirborðið.
Leggðu stóra örk af plastfilmu á borðið (rakinn eftir klútinn tryggir að hún fari hvergi). Leggðu
smjörblönduna eftir neðri hluta filmunnar og vefðu varlega upp svo úr verði löng pylsa og lokaðu
svo endunum. Settu smjörið í ísskáp svo það stífni. Smjörið má geyma í ísskáp og nota með fjölda
rétta, fiski, kjúklingi eða kjöti, grænmeti eða jafnvel brauði.
Sítrónupipar
grillaður lax
með hunangs-
gljáðum hvítum
aspas og
rósmarínsmjöri
Lax er sívinsæll á grillið, þéttur og góður fiskur sem bragðast einstaklega vel. Hér er eldamennskan fremur einföld en sítrónu-
piparinn passar sérlega vel með fiskinum. Aspasinn er svo nánast skilyrði að prófa enda er hunangs- og rommgljáinn engu líkur.