Morgunblaðið - 08.06.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 08.06.2018, Síða 12
Guinness-gljáð grísarif 2 grísarif, um 900 g hvort 1 límóna í þunnum sneiðum 2 stk jalapenopipar, fræhreinsaður og saxaður 3 hvítlauksgeirar 1 stór laukur, grófsaxaður 1 msk heil piparkorn 1 tsk heilir negulnaglar 8 stilkar timían 2 fersk lárviðarlauf ½ tsk paprika 2 flöskur Guinness-bjór 2 bollar dökkt romm 1 bolli púðursykur 2 bollar Guinness-grillsósa (uppskriftin hér að neðan) 2 bollar vatn Blandaðu saman í stórri skál límónu, jalapenopipar, hvítlauk, lauk, piparkornum, negulnöglum, fersku timían og lárvið- arlaufum. Helltu bjórnum í pott ásamt dökku rommi, púðursykri, grill- sósu og vatni. Fjarlægðu þunnu ytri himnuna neðan af rifjunum (þannig draga þau betur í sig bragðið af soðvökvanum). Settu rifin í pott og sjóddu við hægan hita. Láttu þau malla í klukkutíma þar til þau meyrna. Taktu þau varlega upp úr og helltu helmingnum af sósunni yfir þau. Grillaðu við miðlungs- hita, rétt til að hita þau í gegn þannig að sósan taki sig. Berðu afganginn af sósunni fram með heitum rifjunum. Guinness-grillsósa ½ flaska Guinness-bjór 2 bollar tómatsósa ½ bolli eplaedik 3 msk kosher-salt 2 þéttfullar msk púðursykur 3 tsk hvítlauksduft 3 tsk þurrkaður cayennepipar 3 tsk chiliduft 2 msk Worcestershiresósa 1 msk ferskur jalapenopipar, fræhreinsaður og saxaður 227 g smjör við stofuhita Helltu bjórnum í pott og stilltu á miðlungshita. Settu afgang- inn af hráefnunum út í, hrærðu og láttu suðuna koma upp. Láttu malla við miðlungshita í fimm mínútur. Þessa sósu má geyma í ísskáp í allt að viku ef þú gerir hana fyrirfram. Hitaðu hana upp eða láttu hana ná stofuhita fyrir notkun. Hún hentar á kjúkling, rif eða nautakjöt. Ekta bakaðar baunir úr þrenns konar baunum með beikoni og timían 5 beikonsneiðar, grófsaxaðar 1 miðlungsstór laukur, grófsaxaður 1½ tsk þurrkað timían 1 msk sinnepsduft ½ bolli eplaedik 1 lárviðarlauf ¾ bollar tómatsósa 1⁄3 bolli melassi 1⁄3 bolli vatn 1 dós (1½ bolli) cannellinibaunir, vökvanum hellt af og þær skolaðar 1 dós (1½ bolli) svartar baunir, vökvanum hellt af og þær skolaðar 1 dós (1½ bolli) nýrnabaunir, vökvanum hellt af og þær skolaðar 1 tsk sterk piparsósa, Crystal eða Tabasco 1½ bolli rifinn cheddarostur Settu pönnu á miðlungsháan hita, steiktu beikonið þar til það er næstum stökkt. Blandaðu lauknum saman við og steiktu hann glæran. Bættu timían og sinnepsdufti saman við og hrærðu í eina mínútu. Blandaðu eplaediki, lárviðarlaufi, me- lassa, vatni og öllum baununum saman við og hrærðu vel. Settu lok á pönnuna og láttu malla í 45 mínútur og hrærðu við og við. Bættu vatni við ef þér finnst blandan þykkna um of. Bættu pip- arsósunni út í í lokin og hrærðu vel. Skiptu baununum í fjórar eldfastar skálar eða eina miðlungsstóra og settu rifinn ost yfir. Bakaðu í forhituðum ofni við 200 gráður þar til osturinn er bráðinn og kraumandi. Taktu úr ofninum og berðu fram með eftirlætisgrillmatnum þínum. Salat úr litlum rauðum kartöflum með dijonsalatsósu 3 bollar heilar rauðar kartöflur, litlar 1 bolli strengjabaunir 1 vorlaukur 1 msk ferskt dill Settu kartöflurnar í sjóðandi vatn og gættu þess að fljóti yfir þær, láttu sjóða í 25 mínútur, þar til þær eru soðnar en þó enn þéttar viðkomu. Helltu af kartöflunum og láttu þær kólna. Sjóddu vatn í öðrum potti og sjóddu baunirnar í þrjár mínútur. Helltu strax af þeim og helltu þeim í ísbað í skál með vatni og ís (þetta stöðvar suðuna og viðheldur skærgræna litnum í baun- unum). Skerðu endana af baununum og hentu þeim. Skáskerðu baunirnar og leggðu til hliðar. Saxaðu vorlaukinn. Saxaðu eða klipptu dillið. Blandaðu saman kartöflum, baunum, vorlauk og dilli í skál. Dreyptu dijonsalatsósu (uppskrift hér fyrir neðan) yfir og blandaðu vel. Dijonsalatsósa 2 msk dijonsinnep 1⁄3 bolli extra jómfrúarólífuolía ¼ tsk kosher-salt ¼ tsk ferskmalaður svartur pipar safi úr 1 límónu Blandaðu öllu saman í litla skál og þeyttu vel. Dreyptu sós- unni yfir salatið og blandaðu vel. Þessi sósa hentar vel með öll- um kartöflusalötum og grænum salötum. Guinnessgljáð grillrif Grísarif njóta mikilla vinsælda enda eru þau ákaflega bragðgóð – ef rétt matreidd – og skemmtileg að borða. Hér gefur að líta upp- skrift sem fær einhverja til að súpa hveljur af aðdáun. Guinness-grillsósan er mögnuð og passar einstaklega vel með rifjunum. Ljósmynd/Gunnar Konráðsson  Með ekta bökuðum baun- um og salati úr rauðum kart- öflum með dijonsalatsósu 12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018 50 g gróft saxað engifer 3 kíví, flysjuð 100 g ferskur ananas 2 lime sneiðar 20 g ginseng (má sleppa) 100 g vatn 100 g sykur (eða annað sætuefni) 200 g ísmolar Sjóddu upp á vatni, sykri engiferi, límónum og gin- sengi. Eftir suðu er gott að setja plastfilmu yfir pott- inn og láta standa í klukkustund. Sigtaðu engifer, lime og ginseng frá, helltu vökv- anum í blandarann ásamt ísmolum, kíví og ananans. Maukaðu vel og skreyttu með kívísneiðum – eða lime. Hér skiptir máli að nota góðan blandara sem tekur klakana eins og ekkert sé. Við mælum með Vitamix eða sambærilegri græju fyrir sumarið svo hægt sé að blanda ferska drykki með ísmolum í allt sumar. Draumadrykkur grillarans Það má líka skella smá rommi út í þennan dá- semdar drykk ef menn eru í þannig stuði. Hindberja- og melónu- drykkur Það má frysta blönd- una í þar til gerðum frostpinnaformum. Ef sítrónugras síróp er ekki til má alltaf nota hefðbundið síróp. ½ vatnsmelóna 150 g frosin hindber 5 msk. sítrónugras-síróp ísmolar Vatnsmelónan skorin til og fræhreinsuð að mestu, sett í blandara ásamt hindberjum, sírópi og ísmolum og blandað vel saman. Borið fram í stórum glösum og skreytt með vatnsmelónusneið. Við mælum með að þið notið öflugan blandara þar sem mylja þarf klakana en drykkurinn verður miklu betri þannig. Hægt er að bragðbæta hann með berjum, áfengi eða nánast hverju sem ykkur dettur í hug.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.