Morgunblaðið - 29.06.2018, Qupperneq 4
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
E
ftir langan undirbúning er
landsmót hestamanna loks-
ins að bresta á. Áskell Heið-
ar Ásgeirsson er fram-
kvæmdastjóri mótsins og
undanfarin misseri hefur hann unnið
af kappi við það að undirbúa komu
margra þúsunda innlendra og er-
lendra gesta, hesta og keppenda á
þennan stórviðburð.
Að vanda má búast við mjög hátíð-
legu andrúmslofti: „Hestamenn eru
upp til hópa lífsglaðir og skemmti-
legir og sinna íþrótt sinni og áhuga-
máli af mikilli ástríðu,“ segir Heiðar.
„Það er glatt á hjalla þar sem hesta-
menn koma saman og þó svo að hest-
urinn sjálfur sé í sviðsljósinu á lands-
móti gætum við þess að skipuleggja
dagskrána þannig að við gefum tíma
fyrir skemmtun og afþreyingu inni á
milli. Við skipulagningu Landsmóts
2018 höfum við gætt þess að þó svo að
dagskráin á keppnisvöllunum snúist
um rjómann af bestu hestum og
knöpum landsins snýst allt fyrir utan
keppnissvæðin um að láta gestum
líða vel og skapa skemmtilega fjöl-
skyldustemningu þessa átta daga
sem mótið varir.“
Lifandi tónlist á kvöldin
Allt svæði Fáks í Víðidal verður und-
irlagt og verður margt um að vera, að
sögn Heiðars. „Við skipuleggjum fjöl-
breytta skemmtidagskrá fyrir börnin
með vinsælum skemmtikröftum og
bjóðum upp á góða leikaðstöðu fyrir
yngstu gestina. Einnig verður risa-
skjá komið fyrir þar sem við getum
fylgst með leikjum á heimsmeist-
aramótinu í fótbolta. Á kvöldin, eftir
að keppnisdagskrá landsmótsins lýk-
ur, tekur síðan við landsliðið í lifandi
tónlist og verður t.d. efnt til gít-
arveislu, kántrítónleika og haldin tvö
stór sveitaböll.“
Margir gestanna og keppendanna
hafa ferðast um langan veg til að taka
þátt í landsmótinu og hefur gott tjald-
svæði verið útbúið fyrir þá sem vilja
leggja þar húsvagni eða reisa tjald. „Í
hugum margra er það hluti af töfrum
landsmótsins að upplifa útileg-
ustemninguna á tjaldsvæðinu og má
reikna með að allstórar tjaldbúðir rísi
steinsnar frá keppnissvæðinu. Þar er
aðbúnaður eins og best verður á kosið
og gestum býðst að kaupa aðgang að
fráteknu tjaldstæði með rafmagns-
tengingu.“
Freistingar af ýmsum toga
Raunar má heyra á Heiðari að gestir
landsmótsins geti fundið allt sem þá
vantar á mótssvæðinu sjálfu. „Reið-
höll Fáks verður breytt í matarhöll
þar sem kaupa má ljúffengar veit-
ingar og einnig verða á svæðinu mat-
söluvagnar sem selja bragðgóðan
götumat. Við hlið reiðhallarinnar
mun rísa risastórt tjald sem m.a. hýs-
ir skjáinn fyrir fótboltaleikina og
verður líka vettvangur tónleika á
meðan á mótinu stendur,“ útskýrir
Heiðar. „Í öðru stóru tjaldi koma síð-
an verslanir, hönnuðir og handverks-
fólk sér fyrir og selja fjölbreyttan
varning sem í mörgum tilfellum er
tengdur hestamennskunni. Þá verður
markaðs- og kynningarverkefnið
Horses of Iceland með sitt eigið
glæsilega tjald þar sem fræðast má
um íslenska hestinn og allt sem hon-
um við kemur.“
Landsmót hestamanna er fyrir
löngu orðið alþjóðlegur viðburður og
segir Heiðar að á undanförnum mót-
um hafi um fjórðungur gesta komið
frá útlöndum. „Miðað við forsölu er
útlit fyrir að hlutfall útlendinga verði
heldur hærra í ár. Hjálpar mögulega
til að mótið skuli vera haldið í Reykja-
vík, sem auðveldar erlendum gestum
að ferðast á mótsstaðinn og finna sér
gistingu. Svo er líka aldrei að vita
nema að við fáum til okkar einhverja
af þeim þúsundum ferðamanna sem
verða á landinu um landsmótsvikuna
og kíkja á mótið til þess að upplifa þá
hátíðarstemningu sem þar er án þess
endilega að hafa ferðast gagngert til
landsins vegna íslenska hestsins.“
Margt að sjá og gera innan
sem utan keppnissvæðisins
Á landsmótinu verður
m.a. starfrækt stórt
matartorg og hægt að
fylgjast með fótbolta-
leikjum á risaskjá.
Góður aðbúnaður
verður á tjaldsvæðinu
og afþreying í boði
frá morgni til kvölds.
Morgunblaðið/Hari
Áskell Heiðar Ásgeirsson framkvæmdastjóri Landsmóts hestamanna. Hann segir gesti m.a. getað fengið sér í svanginn í reið-
höll Fáks sem breytt hefur verið í mathöll og keypt eigulega muni frá hönnuðum og handverksfólki í markaðstjaldi mótsins.
Ljósmynd/Landsmót
Forsala bendir til að hlutfall erlendra gesta á mótinu muni aukast. Mynd úr safni.
Það er glatt á hjalla þar
sem hestamenn koma
saman og þó svo að hest-
urinn sjálfur sé í sviðsljós-
inu á Landsmóti þá gætum
við þess að skipuleggja
dagskrána þannig að við
gefum tíma fyrir skemmt-
un og afþreyingu inn á milli
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2018
Finna má ófáa fótboltaunnendur
á meðal hestafólksins á lands-
mótinu og á Heiðar von á því að
mjög líflegt verði fyrir framan
risaskjáinn þegar leikir í HM
standa yfir. Vildi svo til að lands-
lið Íslands keppti á EM í knatt-
spyrnu síðast þegar landsmót var
haldið og þegar leikir stóðu yfir
mátti heyra fagnaðarlætin óma
um allt mótssvæði. „Ég man að
þegar mótið var haldið á Vind-
heimamelum árið 2011 dugði að
hafa eitt lítið sjónvarp úti í horni
og söfnuðust þar saman 20
manns í kringum tækið og fylgd-
ust með leikjunum. Þegar kom að
keppni Íslands á Evrópumeist-
aramótinu varð sannkölluð
sprenging og sem betur fer var
útbúin mjög góð aðstaða til að
horfa á leikina. Var ógleymanlegt
að fylgjast með velgengni ís-
lenska liðsins og fagna með
hundruðum spenntra hesta-
manna.“
Mikil stemn-
ing í kringum
fótboltaleikina
VÍKURVAGNAR EHF. STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
STÆRÐ FRÁ 360-550 L
FARANGURSBOX
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfði 8. - 110 Reykjavík -
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
Stöðulisti fyrir landsmót
Barnaflokkur
1 Glódís Líf Gunnarsdóttir
Hross: IS2007186912 Fíll frá Feti
2 Guðný Dís Jónsdóttir
Hross: IS2008125426 Ás frá Hofsstöðum,
Garðabæ
3 Sigurður Steingrímsson
Hross: IS2011287051 Elva frá Auðsholtshjáleigu
4 Elísabet Vaka Guðmundsdóttir
Hross: IS2008186193 Náttfari frá Bakkakoti
5 Guðný Dís Jónsdóttir
Hross: IS2008101036 Roði frá Margrétarhofi
6 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal
Hross: IS2011256301 Nútíð frá Leys-
ingjastöðum II
7 Ragnar Snær Viðarsson
Hross: IS2002166640 Kamban frá Húsavík
8 Steindór Óli Tobíasson
Hross: IS2010265831 Fegurðardís frá Drafla-
stöðum
9 Þórgunnur Þórarinsdóttir
Hross: IS2008157780 Grettir frá Saurbæ
10 Glódís Líf Gunnarsdóttir
Hross: IS2008138477 Magni frá Spágilsstöðum
Ungmennaflokkur
1 Bríet Guðmundsdóttir
Hross: IS2005187769 Kolfinnur frá Efri-
Gegnishólum
2 Hafþór Hreiðar Birgisson
Hross: IS2008225520 Villimey frá Hafn-
arfirði
3 Anna Bryndís Zingsheim
Hross: IS2008184874 Dagur frá Hjarðartúni
4 Elín Árnadóttir
Hross: IS2007185070 Blær frá Prestsbakka
5 Annika Rut Arnarsdóttir
Hross: IS2008286595 Spes frá Herríðarhóli
6 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir
Hross: IS2008182583 Prins frá Skúfslæk
7 Ásdís Ósk Elvarsdóttir
Hross: IS2008257806 Koltinna frá Varmalæk
8 Arnór Dan Kristinsson
Hross: IS2004187027 Dökkvi frá Ingólfshvoli
9 Birta Ingadóttir
Hross: IS2007166206 Eldur frá Torfunesi
10 Atli Freyr Maríönnuson
Hross: IS2005187030 Óðinn frá Ingólfshvoli
Unglingaflokkur
1 Haukur Ingi Hauksson
Hross: IS2004187644 Barði frá Laug-
arbökkum
2 Sigurður Baldur Ríkharðsson
Hross: IS2009280325 Auðdís frá Traðarlandi
3 Glódís Rún Sigurðardóttir
Hross: IS2005165646 Úlfur frá Hólshúsum
4 Védís Huld Sigurðardóttir
Hross: IS2007156662 Hrafnfaxi frá Skeggs-
stöðum
5 Glódís Rún Sigurðardóttir
Hross: IS2007288338 Dáð frá Jaðri
6 Rósa Kristín Jóhannesdóttir
Hross: IS2011167169 Hljómur frá Gunn-
arsstöðum I
7 Haukur Ingi Hauksson
Hross: IS2010287646 Mirra frá Laug-
arbökkum
8 Júlía Kristín Pálsdóttir
Hross: IS2004156499 Kjarval frá Blönduósi
9 Egill Már Þórsson
Hross: IS2011165557 Þorsti frá Ytri-Bægisá I
10 Kristófer Darri Sigurðsson
Hross: IS2006255442 Brúney frá Grafarkoti
Morgunblaðið/Styrmir Kári