Morgunblaðið - 06.04.2018, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 06.04.2018, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Skúli Halldórsson sh@mbl.is É g fór lauslega yfir reynslu- sögur nokkurra eldisteg- unda sem reyndar hafa verið og kom inn á al- mennar forsendur og skil- yrði fyrir eldi. Með jarðhita, jarðsjó og gnægð ferskvatns getum við tæknilega séð útbúið aðstæður fyr- ir hvaða eldistegund sem er í eld- isrými á landi. En í slíku eldi er mikil fjárfesting og rekstrar- kostnaður hár og því verða teg- undirnar að vera verðmætar svo við stöndumst samkeppni,“ seg- ir Ólafur í sam- tali við 200 mílur. Bætir hann við að sér hugnist mjög eldi á regn- bogasilungi, eftir að hafa farið yfir aðrar þær tegundir en lax og bleikju sem reynt hefur verið að ala á Íslandi. Lenti í andstreymi um miðja öld „Ég hef furðað mig á hvers vegna regnbogasilungur er ekki alinn víð- ar hér á landi, í fersku vatni, sem við eigum jú nóg af. Hann er frá- bær fiskur, bæði mjög auðveldur í eldi og gefur af sér afbragðs mat- væli. Þeir sem hafa lesið sér til um söguna vita að regnbogasilungurinn var fluttur hér inn árið 1951 af Skúla Pálssyni á Laxalóni, sem hugðist ala hann að danskri fyr- irmynd. Skúli lenti strax í and- streymi, bæði við opinbera aðila og leikmenn, sem óttuðust að fiskurinn gæti gert usla í íslensku lífríki,“ segir Ólafur. „Ef til vill var mönnum enn í fersku minni þegar minkurinn var fluttur inn á fjórða áratugnum. En þetta var ástæðulaus hystería enda getur regnbogasilungur ekki fjölg- að sér í íslenskri náttúru. Núna framleiða Danir 35 til 40 þúsund tonn af þessum fiski, sem dæmi. Ég velti stundum fyrir mér hvernig íslenskt fiskeldi hefði þróast hefði Skúli fengið stuðning og hvatningu við merkilegt framtak sitt á sínum tíma, en ekki verið haldið í skefj- um.“ Bæjarlækur gefur tækifæri Bleikju segir hann einnig góðan kost við íslenskar aðstæður. „Hún er auðvitað mjög góður fiskur líka og þolir í raun kaldara vatn en regnbogasilungurinn og hentar okkar aðstæðum vel. Þótt við séum að ala þó nokkurt magn af bleikju finnst mér sömuleiðis skrýtið að það skuli ekki einnig hafa þróast meira út í eldi á smáum skala. Það eru fáeinir aðilar sem framleiða þessi 4.300 tonn hér- lendis, þar af einn langstærstur. En þeir sem eiga land og eiga bæj- arlæk sem rennur ófrosinn árið um kring hafa tækifæri á bleikjueldi,“ segir Ólafur. „Auðvitað þarf talsvert vatn en hægt er að þróa aðstæðurnar og nýta vatnið og varmann vel. Við getum meðal annars nýtt okkur reynslu Dana af regnbogasilungs- eldi í þessum efnum, en þar eru víða komin upp endurnýtingarkerfi sem minnka vatnsnotkunina mikið og fá jafnframt meira út úr fram- leiðslunni. Þótt tilkostnaður sé meiri í upphafi en í gegnumrennsli verður framleiðslan meiri og stöð- ugri. Eldi í endurnýtingarkerfum hefur þróast mikið síðustu ár. Með- höndlun frárennslis og úrgangs er einfalt tæknilegt úrlausnarefni. Hjá Dönunum er vatnið í sumum til- vikum hreinna þegar það fer frá fiskeldisstöðinni en það var þegar það streymdi inn í hana,“ segir Ólafur. „Ég hefði haldið að mörgum dilkakjötsframleiðandanum kæmi nú vel að ala jafnhliða eins og 20 til 50 tonn af bleikju með vatni úr bæjarlæknum, ekki síst í ljósi þess að fiskneysla fer hvarvetna vaxandi og mælt er sérstaklega með henni.“ Enginn skerjagarður hér Ólafur bendir á að aðstæður við strendur Íslands fyrir eldi í sjó séu erfiðar. „Það blasir við og fréttir undan- farið styðja þá skoðun, fyrir lax- fiska að minnsta kosti, því sjáv- arhitinn er bæði lágur og sveiflukenndur. Við höfum ekki skerjagarð og lítið um skjólgóða firði á við þá sem eru í Noregi. Færeyingar stunda samt auðvitað fiskeldi án þess að njóta nokkurs skerjagarðs, en þar er sjávarhiti töluvert miklu hærri og stöðugri en hér. Þegar sjávarhiti er kominn undir 2°C er ástandið orðið krítískt og á mörkunum fyrir lax og regn- bogasilung,“ segir Ólafur. „Nú er verið að framleiða 2,3 milljónir tonna af Atlantshafslaxi og gríðarlega hörð samkeppni ríkir í geiranum. Þess vegna verðum við að reyna að nýta okkar aðstæður á landi betur og það getum við, með því að tvinna saman eldi á landi og eldi í sjókvíum, eins og menn eru byrjaðir að gera. Þetta er að þróast yfir í að ala laxinn lengur og gera hann stærri á landi áður en hann fer í sjó, en hann þolir aðstæðurnar almennt betur eftir því sem hann er stærri. Þetta dregur einnig úr áhættu í kvíaeldinu.“ Þorskeldið „átti ekki séns“ Rifjar Ólafur upp að þorskeldi hafi lengi verið draumur margra vegna minnkandi afla. Verðið hafi þó á endanum reynst alltof lágt til að svara framleiðslukostnaði. „Hann hefur náttúrlega alltaf verið okkar meginstoð í veiðunum. Svo fórum við í kjölfarið á Norð- mönnum og Kanadamönnum og reyndum okkur við þorskeldi, en það átti ekki séns eins og maður segir. Í fyrsta lagi vegna þess að verð á þorski er tæplega nógu hátt til að það dugi fyrir fram- leiðslukostnaði, en það lækkaði reyndar fljótlega eftir að eldið hófst hér við land vegna aukins framboðs frá veiðum í Barents- hafi,“ segir Ólafur. „Eins reyndist ekki sá verðmun- ur á eldisþorski og villtum þorski sem menn vonuðust eftir, þrátt fyr- ir mikil gæði eldisþorsksins sem komst í sláturstærð. En þorskurinn hefur einnig reynst býsna snúinn í eldi. Lykill- inn í öllu eldi er að menn ráði við allan lífsferil fisksins, alveg frá klakfiski, hrognatöku, meðferð hrogna, frumfóðrun lirfa og seiða, og síðan áframeldi alveg fram í slátrun. Í þorskeldinu réðu menn ekki mjög vel við seiðaeldið, mikil afföll voru við frumfóðrun og seiða- gæðin lítil. Þegar til átti að taka var seiðaframboðið allt of lítið og þau voru of dýr í framleiðslu á móti of lágu afurðaverði. Seiðaeldið gekk eitthvað betur í Noregi reyndar, þar sem fram fóru meiri rannsóknir og seiðin voru að verulegu leyti alin í endurnýtingarkerfum. Mörg fleiri ljón urðu á veginum í þorskeldinu, svo sem kynþroski smáfisks, sjálf- rán og sjúkdómar, og nú eru allir hættir.“ Bendir hann á að svar hvata- manna í þorskeldinu við þessum vanda hafi verið að ráðstafa tugum milljóna í kynbætur á þorski. „Það er í sjálfu sér svolítið gagn- rýnivert, finnst mér. Maður getur spurt sig hvort skynsamlegt hafi verið að hefja kostnaðarsamar kyn- bætur á dýrategund, þegar þú ræð- ur ekki nægilega vel við að fjölga henni. Eins voru mörg önnur vandamál óleyst. En ef afföllin eru mikil af óútskýrðum ástæðum á fyrstu stigum eldis, hvað ertu þá að kynbæta?“ spyr hann og bætir við að hann hafi þó ekki vikið að þessu í erindi sínu á ráðstefnunni. „Mað- ur má ekki alltaf vera neikvæði karlinn með kjaftinn á lofti.“ Óráðsía með fé í tilapíueldi Annað, sem hann telur ennþá gagn- rýniverðara, er tilapíueldi sem reynt var hér á landi. „Tilapía er trópískur fiskur sem er í raun jafn algengur og kjúkling- ur. Hún er framleidd nánast alls staðar, víðast við mjög einfaldar að- stæður í jarðtjörnum. Framleiðslan núna er komin yfir sex milljónir tonna. Þetta er mjög ódýr fiskur í framleiðslu og frumframleiðend- urnir, til dæmis í Kína, Indónesíu eða Egyptalandi, fá mjög lítið fyrir sinn snúð. Hún þarf um 28-32°C hita og getur vaxið á tiltölulega ódýru og einföldu fæði. Allar þess- ar staðreyndir leiða til þess að þetta er einmitt ekki sá fiskur sem við eigum að ala hér á landi. Til þess er hann alltof ódýr og við er- um ekki í neinni samkeppnisstöðu í slíkri framleiðslu. Engu að síður styrktu íslenskir rannsóknarsjóðir tilraunaeldi á tilapíu um tugi og hundruð milljóna. Það bara skil ég ekki.“ Annað dæmi sem Ólafur tiltekur um illa ígrundaða eldishugmynd er tilraun Orkuveitu Reykjavíkur við eldi á risarækju. „Ja, kannski er hægt að lýsa því þannig að erfitt sé að sjá fyrir sér risarækjur í skafrenningi í jarð- tjörnum í Ölfusinu í samkeppni við nærri 200 þúsund tonna framleiðslu í löndum við miðbaug. Ég efast um að upplýstir einkaaðilar hefðu treyst sér til að fjárfesta í því.“ Spurður hvort hann telji markað með lax vera mettan, og hvort Ís- lendingar ættu jafnvel frekar að einbeita sér að því að skapa sér sérstöðu í eldi bleikju eða regn- bogasilungs, segist Ólafur ekki telja að markaðurinn með lax sé mettur. Verð á laxi hafi til að mynda snarhækkað nú rétt fyrir páska. „Ég var í námi í Noregi árin 1987 til 1991 og um það leyti var laxeldi í Noregi 120 til 150 þúsund tonn. Þá héldu sumir einmitt að markaðurinn væri mettur; það væri ekki hægt að selja meira. Þeir voru í einhverju basli með þetta á tíma- bili og tóku um 30 þúsund tonn út og settu í frysti. En nú eru þeir búnir að tífalda magnið í eldinu og farnir að tala upphátt um fimm milljón tonn fyrir 2050. Þetta leitar jafnvægis,“ segir Ólafur. „En almennt er fiskneysla að aukast í heiminum og fólki fjölgar hratt. Allar ráðleggingar næring- arfræðinga og lækna beina fólki að því að borða meira af fiski. Feitur fiskur eins og lax, bleikja og regn- bogasilungur er einmitt sérlega hollur. Þess vegna býst ég ekki við að markaðurinn sé mettur. Það er ekki mikið meira að hafa af fiski frá veiðum og því verður öll aukin fiskneysla í heiminum að koma frá eldisfiski. Og í því ljósi er kannski vert að taka fram að engin dýra- prótínframleiðsla er með minni um- hverfisáhrif en fiskeldi, ef skordýr eru undanskilin. Það þurfa gagn- rýnendur fiskeldis að kynna sér betur.“ Keppum í gæðum, ekki magni Hins vegar þurfi Íslendingar að standa sig vel í fiskeldi, vanda sig, og framleiða góða vöru ef þeir ætla að standast samkeppni. „Við getum og höfum komið okk- ur upp vissum gæðastimplum, til dæmis um vistvæna framleiðslu og gæðavottanir til að standast ströng- ustu kröfur neytenda. Þá fæst ákveðið álag á verðið. Það er okkur nauðsynlegt þar sem við getum seint keppt á markaði með eldisfisk í magni, aðeins í gæðum. Bleikju- framleiðsla í heiminum er innan við tíu þúsund tonn. Við eigum örugg- lega mikla möguleika á að auka við bleikjueldið enda er bleikja fisk- urinn sem hentar okkar aðstæðum einna best. Við getum líka framleitt gæðaregnbogasilung, í það minnsta fyrir innanlandsmarkað.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Fiskeldi á landi Ólafur segir Íslendinga seint geta keppt á markaði með eldisfisk í magni, aðeins í gæðum sé það mögulegt. Regnbogasilungur sé þá álitlegur. Íslendingar þurfi að vanda til verka Eldi fjölda tegunda hefur verið reynt á Íslandi, ýmist á landi eða í sjó, með heldur misgóðum árangri. Ólafur Sigurgeirsson, lektor við Háskólann á Hólum, hefur skoðað þennan árangur og fjallaði um sínar niðurstöður í erindi á ráðstefnunni Strandbúnaði 2018 í mars. Ólafur Sigurgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.