Morgunblaðið - 06.04.2018, Side 34

Morgunblaðið - 06.04.2018, Side 34
PON Pétur O. Nikulásson ehf. | Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu • Hnappur sem losar glussaþrýsting á tengjum 34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018 Skúli Halldórsson sh@mbl.is Þ etta gekk ofsalega vel hjá þeim til að byrja með, en þeir byrjuðu á níunda ára- tugnum. Framleiðslan fór yfir tíu þúsund tonn árið 1991 og árið 2000 tók Síle fram úr Skotlandi sem næststærsta fram- leiðsluland heims. Árið 2005 var vöxt- ur laxeldis mestur í Síle og miklar væntingar voru til áframhaldandi vel- gengni,“ segir Jónas í samtali við 200 mílur. „En eftir á að hyggja fóru of margir af stað í einu, og á of litlum svæðum. Yfirvöld og fleiri vissu lítið hvað verið væri að fara út í, en eftir því sem eldið þéttist á ákveðnum svæðum byrjuðu vandamálin að hrannast upp.“ Smám saman jukust afföll, vöxtur minnkaði, meira varð um laxalús. „Þetta endaði svo í algjörri kata- strófu, blóð- þorraveikinni, sem hefur það í för með sér fyr- ir laxinn að framleiðsla á rauðum blóð- kornum minnk- ar. Þegar það gerðist þurfti að slátra öllum laxi á mörgum svæðum og framleiðslan hreinlega hrundi; fór úr 400 þúsund tonnum niður í minna en 200 þúsund tonn.“ Laxinn var þá orðinn þriðja stærsta útflutningsvara Síle og höfðu yfir fimmtíu þúsund störf skapast í kringum iðnaðinn. Stórt samfélag hafði byggst upp í suðurhluta lands- ins þar sem vegakerfið var lagað, nýir skólar byggðir og nýjar hafnir gerðar. Áhrifin á þetta samfélag voru mikil. Svæði ákveðin og þau hvíld „Fyrirtækin hafa síðan þá, í samráði við stjórnvöld, verið að búa til leik- reglur. Þær hafa aðallega miðað að því að takmarka framleiðsluna við ákveðin svæði, búa til svokölluð „bar- rios“, eða hverfi, þar sem ákveðin eld- issvæði eru skilgreind, seiði látin í þau á ákveðnum tíma, þau alin, lax- inum slátrað og loks eru svæðin hvíld.“ Framleiðslunni hefur einnig verið dreift sunnar í Síle, úr tíunda fylkinu og yfir í það ellefta og tólfta, sem eru þau tvö syðstu. „Nú er framleiðslan orðin sú sama og hún var fyrir hrunið, eða jafnvel meiri, en nú dreifist hún á fleiri svæði sem býður upp á minni hættu en ella.“ Jónas flutti erindi á ráðstefnunni Strandbúnaði 2018 í marsmánuði, þar sem hann fór yfir það sem Íslend- ingar gætu lært af Sílemönnum hvað varðar eldi laxfiska. Vinna í samræmi við matið „Lærdómurinn sem ég reyni að draga af þessu er sá að yfirvöld og iðnaðurinn verða að vinna saman eftir þeim leikreglum sem settar eru fyr- irfram. Það sem gert hefur verið hér á landi er að Hafrannsóknastofnunin hefur metið burðarþol fjarða þar sem í dag eru skilgreind fiskeldissvæði á Vestfjörðum og Austfjörðum í ein- hver 130 þúsund tonn. Síðan, eftir að tekið var tillit til villtra stofna, var það burðarþol lækkað í 71 þúsund tonn. Nú er í skoðun hjá Hafrannstofnun hvort auka megi þetta framleiðslumagn með framleiðslu á stærri laxaseiðum, með notkun geldstofna auk annarra leiða sem draga úr hættu á blöndun við villta laxastofna Yfirvöld hér eru því að einhverju leyti búin að búa til leikreglur varðandi framtíðarupp- byggingu á eldinu á Íslandi. Við erum því að búa til leikreglur fyrirfram, áð- ur en uppbyggingin verður.“ Spurður út í þær gagnrýnisraddir sem reglulega heyrast, um að laxeldi hér á landi stefni hinu villta lífríki í hættu, segir Jónas að þær verði alltaf til staðar. „Það er hluti af ferlinu,“ segir hann en bendir á að hér á Ís- landi fari menn hægt og rólega í sak- irnar. „Menn stíga varlega til jarðar og vinna í samræmi við það burðar- þolsmat og þá svæðaskiptingu sem komið hefur verið á. Við hljótum að treysta því sem Hafrannsóknastofn- un gerir þegar hún vinnur sitt burð- arþolsmat. Við megum svo ekki gleyma því að hér er búið að slátra fiski í átta eða tíu ár, og þetta eru fyrirtæki sem enn þá standa og ganga vel. Við byggjum áfram á þeim árangri og horfum fram á veginn.“ Hægt að læra af áföllum Sílemanna Jónas Jónasson, fram- kvæmdastjóri Stofn- fisks, segir að margt sé hægt að læra af þeirri reynslu sem Sílemenn hafa fengið af laxeldi. Iðnaðurinn byggðist hratt upp þar í landi áð- ur en mikil ósköp dundu yfir árin 2008 og 2009, þegar um helmingur eldisfisksins drapst. Fiskeldi Jónas segir að hér á landi stígi menn varlega til jarðar. Dr. Jónas Jónasson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.