Morgunblaðið - 16.08.2018, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018 5FRÉTTIR
Þjónustuver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
442 1000
rsk@rsk.is
Áskorun vegna
skila ársreikninga!
Lokafrestur til að skila ársreikningum
til ársreikningaskrár RSK rennur út
5. september 2018
Ársreikningaskrá RSK
Áskorun um skil á ársreikningum hefur nú verið birt á þjónustusíðu
(skattur.is) þeirra félaga, sem ekki hafa staðið skil á ársreikningi
sínum til ársreikningaskrár. Forráðamenn viðkomandi félaga eru
hvattir til að bregðast skjótt við og senda ársreikning rafrænt,
þannig að ekki þurfi að koma til sektarákvörðunar.
Unnt er að finna á rsk.is yfirlit yfir þau félög sem ekki hafa
skilað ársreikningi.
Vakin er athygli á að örfélög sem hafa skilað skattframtali geta
nýtt sér Hnappinn. Þá er farið inn á þjónustusíðu ríkisskattstjóra
skattur.is og valið að láta ríkisskattstjóra útbúa ársreikning
félagsins og skila til ársreikningaskrár.
FARARTÆKIÐ
Að spana um á sæþotu er góð
skemmtun. Á sléttum haffletinum
má ferðast eins hratt og mótorinn
og taugarnar leyfa með vind og
vatnsúða í fangið, brosandi út að
eyrum.
En hvernig ætli væri að gera allt
þetta án þess að heyra hvininn frá
vélinni? Þeir sem kaupa sér raf-
drifnu sæþotuna frá Narke munu
fá að vita svarið.
Sæþotan, sem á að vera sú fyrsta
í heiminum með rafmótor, kemur
frá Ungverjalandi og ku henta
þörfum þeirra sem vilja lifa lífinu
til fulls – en gera það á umhverf-
isvænan hátt. Skelin er gerð úr
koltrefjablöndu og rafmótorinn er
nógu öflugur til að láta þotuna ná
nærri 55 km/klst. Framleiðandinn
segir að hleðslan dugi í allt að 1,5
klukkustunda notkun og með því að
stinga þotunni í samband í tvo tíma
má fara úr 0 upp í 80% hleðslu.
Rafhlöðunni má einnig skipta út
fyrir nýja með nokkrum hand-
tökum og þannig halda strax af
stað með nóg af orku.
Narke-sæþotan er enn í þróun
og prófunum en stefnt er að því að
þetta umhverfisvæna leikfang fari í
almenna sölu áður en langt um líð-
ur. ai@mbl.is
Sæþota sem hentar umhverfisvænum adrenalínfíklum
GRÆJAN
Óhætt er að segja að samkeppnin á
snjallhátalamarkaði hafi harðnað í
síðustu viku. Þar voru fyrir risar á
borð við Amazon, með Echo,
Google með Google Home og Apple
með HomePod en á dögunum bætt-
ist suðurkóreski raftækjaframleið-
andinn Samsung í hópinn og svipti
hulunni af hátalaranum Galaxy
Home.
Í kynningarefni segir að Galaxy
Home sameini fallega hönnun og
góðan hljóm en hátalarinn er búinn
Bixby-hugbúnaði sem notandinn
getur talað við og gefið skipanir. Á
t.d. að vera hægt að biðja Bixby
um að hóa í leigubíl frá Uber,
panta borð á veitingastað eða
kaupa miða á tónleika.
Tækið er búið sex öflugum hátöl-
urum, auk bassahátalara, sem hafa
verið þróaðir hjá AKG og Harman.
Átta hljóðnemar hlusta á allt sem
sagt er, ef ske kynni að gefa þyrfti
Bixby fyrirmæli. Hugbúnaður frá
Spotify er innbyggður í tækið og
því hægt að streyma tónlist með
lágmarksfyrirhöfn.
Þeir sem hafa áhuga á að
tryggja sér eintak þurfa að vera
þolinmóðir því Samsung hefur ekki
gefið upp hvenær Galaxy Home fer
á markað né hvað tækið mun kosta.
ai@mbl.is
Samsung
teflir fram
hátalara