Morgunblaðið - 16.08.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 16.08.2018, Qupperneq 8
Aftur á móti er mikilvægt að sögn Stoppani að halda í gildi félagsins. „Þegar fyrirtæki vaxa verður ákvarðanatakan oft hægari. Það viljum við ekki,“ segir Stoppani. „Við megum ekki tefla íslensku erfðaefni fyrirtækisins í tvísýnu. Fyrirtækið þarf að vera lipurt og hafa stuttar boðleiðir. Eins og það hefur verið í 21 ár. Þessi þróun er þegar hafin og við erum að sjá árang- urinn. Við gerðum nýlega upp hálfsárs- uppgjörið og erum að sjá tveggja stafa tölu vöxt í tekjum og þriggja stafa tölu þegar kem- ur að arðbærni fyrirtækisins. Tölurnar segja að við séum að gera rétta hluti,“ segir Stopp- ani. Velta Creditinfo Group á fyrri helmingi þessa árs var 2,3 milljarðar króna, EBITDA, hagnaður fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta, nam 359,5 milljónum á sama tímabili, og rekstrarniðurstaðan var jákvæð um 165 milljónir króna. Á milli ára er áætluð veltu- aukning 22% og áætluð EBITDA-aukning 227%. Hlutfallslegur vöxtur á milli ára þegar kemur að rekstrarniðurstöðu fyrirtækisins er svo 207%. „Við gerum ráð fyrir að EBITDA ársins 2018 verði um 700-800 milljónir og fari yfir einn milljarð á árinu 2019,“ segir Stoppani. Einbeiting á núverandi markaði Spurður um helstu áskoranir fyrirtækisins um þessar mundir segir Stoppani að helsta áskorunin felist í því að læra að segja nei. „Við þurfum að velja betur úr þeim vaxtar- og fjár- festingarmöguleikum sem standa til boða. Hvar þeir verða og hvernig. Vöxtur fyrirtæk- isins undanfarin ár hefur snúist um það að opna nýja markaði frá grunni. Við erum hætt því og einbeitum okkur þeim mun betur að þeim mörkuðum sem við störfum á í dag,“ seg- ir Stoppani. „Nýfætt barn krefst mikillar orku en aðrir fjölskyldumeðlimir fá minni athygli á meðan,“ segir Stoppani. „Þetta er mikil áskorun, sérstaklega þar sem opnun nýrra markaða hefur verið hluti af ár- angri félagsins undanfarin ár. Það að segja nei er ekki einfalt og klárlega ein stærsta áskorun okkar,“ segir Stoppani. Aldamótakynslóðin og Ný-Evrópubúar Creditinfo á 11 starfandi fyrirtæki í Afríku og vinnur fyrirtækið afar áhugavert starf í þró- unarlöndunum sem snýr að því að veita fjár- málaþjónustu fyrir alla (e. financial inclusion). Lánshæfismatsfyrirtæki á borð við Creditinfo leika afar mikilvægt hlutverk í uppbyggingu fjármálakerfa, hvort sem það er í þróunar- löndum eða annars staðar, segir Stoppani. „Ef eitthvert fyrirtækja okkar myndi hætta að starfa í nokkrar klukkustundir, af einhverjum ástæðum, yrðu engin lán veitt á þeim tíma. Þetta sýnir hversu mikilvæg starfsemi okkar er fyrir efnahaginn og hversu mikilvæg við er- um,“ segir Stoppani. „Stundum vanmetum við það. En svona fyrirtæki eru grundvallarstoðir í lánahagkerfinu,“ segir Stoppani. Spurður um muninn á þeirri starfsemi sem fer fram í þróunarlöndum og því sem gerist hjá fyrirtækinu í Evrópu segir Stoppani þessa tvo markaði glíma við mismunandi áskoranir sem þó sé hægt að færa rök fyrir að séu sama eðlis. „Það hefur verið okkar sýn að fjármálaþjón- usta fyrir alla eigi hvað brýnast erindi í þróunarlöndunum og þeim hagkerfum sem hafa farið vaxandi undanfarin ár. Það er auð- vitað vegna þeirrar staðreyndar að meirihlut- inn í þróunarlöndunum hefur ekki aðgang að fjármálaþjónustu. Tveir milljarðar manna á heimsvísu, samkvæmt gögnum Alþjóðabank- ans, eru án fjármálaþjónustu,“ segir Stoppani, en fyrir um ári sagði Reynir Grétarsson í Við- skiptaMogganum að markmið fyrirtækisins væri að að veita 100 milljónum manns í fátæk- ari löndum aðgang að lánsfé. Aftur á móti er lífið ekki einungis dans á rósum í Evrópu og tveir hópar sérstaklega, aldamótakynslóðin, og Um 400 starfsmenn starfa í dag hjá Creditinfo Group, sem rekur meira en 25 lánshæfismats- stofnanir í fjórum heimsálfum. Fyrirtækið nær frá Ameríku til Asíu en Creditinfo er auk þess með víðtæka starfsemi í Afríku. Stefano Stopp- ani er forstjóri fyrirtækisins og tók við fyrir um ári, en hann hefur aðsetur í Dubai, sem segja má að sé ákveðinn miðpunktur allra anga fyrirtækisins sem teygja sig út um allan heim. Olía 21. aldarinnar Þrátt fyrir að eiginlegar höfuðstöðvar fyrir- tækisins séu á Íslandi segir Stoppani að Cre- ditinfo hafi í raun engar höfuðstöðvar. „Ef eitt- hvað er þá er mögulega hægt að kalla biðstofur flugvalla um allan heim höfuðstöðvar okkar,“ segir Stoppani. Hann er vanur tíðum ferðalög- um. Hefur verið á ferð og flugi allt frá blautu barnsbeini. Stoppani fæddist í Angóla er landið var portúgölsk nýlenda og þar kynntust for- eldrar hans. „Faðir minn var ítalskur diplómati og móðir mín er portúgölsk,“ segir Stoppani, sem flutti á milli landa á þriggja til fjögurra ára fresti og bjó fyrst á Ítalíu er hann var 18 ára gamall þegar hann fór í háskóla. Hann tók vel á móti blaðamanni í bersýnilega þéttri dag- skrá sinni hér á landi, en á meðal á viðtalinu stóð bönkuðu upp á bæði þau Brynja Bald- ursdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo á Ís- landi, og Reynir Grétarsson, stofnandi fyr- irtækisins og aðaleigandi. Stoppani hefur sterka sýn á þann heim sem blasir við okkur á næstu árum þegar kemur að fjármálavæðingu samfélagsins og segir hefðbundna banka- starfsemi brátt heyra sögunni til. Aukið að- gengi að gögnum og bætt tækni til þess að greina þau séu ástæðan. Það eru gögn, en ekki olía, eins og segir í grein the Economist, sem eru verðmætasta auðlind heims í dag og eru þau eins og olían var fyrir 20. öldina, drif- kraftur vaxtar og breytinga. Hvert einasta sólkerfi þarfnast sólar Creditinfo hefur vaxið gríðarlega á undan- förnum árum. Kjarnastarfsemi fyrirtækisins felst í miðlun og vinnslu fjárhags- og viðskipta- upplýsinga. Þessar upplýsingar fyrirtækisins nýtast lánastofnunum, sem aftur nota þær til útlánaákvarðana, til bæði einstaklinga og fyrir- tækja. Fyrirtækið var stofnað árið 1997 og hóf sókn á erlenda markaði árið 2002. Frá þeim tíma hefur Creditinfo keypt fjölmörg fyrirtæki um allan heim en nú segir Stoppani að helsta áskorun félagsins sé að læra að segja nei við þeim fjölmörgu viðskiptatækifærum sem bjóð- ast fyrirtækinu. Gera eigi allar núverandi eign- ir Creditinfo arðbærar, og sjá eigi til þess að fyrirtækið breytist úr því að vera alþjóðlegt fyrirtæki með starfsemi í mörgum löndum í fyrirtæki þar sem starfsmenn þess finni fyrir því að þeir starfi fyrir eina heild og sjái jafnvel fyrir sér að hljóta frama innan fyrirtækisins á milli landa. „Hvert einasta sólkerfi þarfnast sólar,“ segir Stoppani og grípur til líkingar. „Sólin á að veita okkur ljós og líf. En hún má ekki brenna þig. Við viljum vera alþjóðlegt fyrirtæki sem hefur stefnu sem er samkvæm sjálfri sér. Að fyrirtækið geti nýtt sér þann auð sem býr í því og að sama vinna sé ekki unnin tvisvar. Að við getum haft greiningarteymi sem vinnur þvert á fyrirtækið, í stað þess að hafa eitt sér fyrir As- íu og annað fyrir Karíbahafið,“ segir Stoppani. það sem Stoppani kallar Ný-Evrópubúa, búa við erfiða stöðu þegar kemur að aðgengi að lánsfé. „Við eigum að einhverju leyti við sama vandamál að stríða í Evrópu og jafnvel á Ís- landi varðandi aldamótakynslóðina. Sem Ítali sé ég klárlega suma af þessum hlutum í Evr- ópu þar sem tveir hópar samfélagsins hafa ekki aðgang að fjármálaþjónustu. Annars vegar er það aldamótakynslóðin, fólk fætt eftir 1992 í flestum Evrópuríkjum, og jafnvel í Bandaríkj- Aukið aðgengi allra að lá Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Hefðbundin bankastafsemi heyrir sögunni til með tilkomu nýrra gagna og aukins aðgengis, að sögn Steffano Stoppani, forstjóra Creditinfo Group. Segir hann spennandi tíma framundan í starfsemi félagsins, sem er með víðtæka starfsemi í þróunarlöndunum og á meðal annars 11 fyrirtæki í Afríku. Segir hann helstu áskorun Creditinfo í dag að læra að segja nei við þeim fjöl- mörgu viðskiptatækifærum sem fyrirtækinu bjóðist og nú sé stefnan að gera helstu eignir félagsins arðbærar áður en farið verður í frekari útþenslu. Stoppani segir afar lærdómsríkt að vera viðriðinn mismunandi markaði og þróunin sé ekki endilega alltaf sú að það sem gert er í Evrópu eða í Bandaríkjunum sé það sem koma skuli annars staðar í heiminum. Nefnir hann starf fjártæknifyrirtækja í Afríku því til stuðnings. „Með því að vinna á fullþroskuðum mörkuðum, eins og á Íslandi, og í þróunarlöndunum sjáum við að þróunin verður oft öðruvísi. Rótgrónir alþjóðlegir bankar eru með starfs- stöðvar í þróunarlöndunum og eru að vinna með þessi stærri gagnasett og hafa áhuga á nýjum lausnum, nýjum og öðruvísi gögnum. Þess vegna geta þróunarlöndin verið eins konar rannsóknarstöðvar fyrir nýja hluti. Og þar á sér ýmislegt stað sem er ekki farið að gerast í Evrópu. Þess vegna er það mikilvægt fyrir fyrirtæki okkar að vera í mismunandi löndum. Þar lærum við nýja hluti. Það sem við lærum í Kenýa getum við tekið með okkur til Evrópu. Það þarf ekki endilega að vera öfugt. Að allt sem eigi sér stað í Evrópu sé gott fyrir alla aðra hluta heimsins,“ segir Stoppani. Þróaðar vörur frá þróunarlöndum 8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018VIÐTAL

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.