Morgunblaðið - 16.08.2018, Side 12

Morgunblaðið - 16.08.2018, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018SJÓNARHÓLL Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is Sími: 535 9000 | bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð Vottaðir hágæða VARAHLUTIR í flestar gerðir bifreiða Siðan 1962 Bílanaust er einnig í Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum ÓMAR Í fyrri pistli mínum um slagorð (e. slogans) benti ég áþann ávinning sem felst í vel heppnuð slagorði semnær að draga fram kjarnann í því sem skiptir máli fyrir fyrirtæki eða ímynd þeirra. Nefndi ég nokkur dæmi um slagorð sem sýndu ágætlega sterk skilaboð og voru þannig liður í að miðla skýrum skilaboðum út á mark- aðinn. En dæmin eru mörg og hér á eftir koma nokkur. Að mínu mati er slagorð stoðtækjafyrirtækisins Öss- urar „Líf án takmarkana“ (e. life without limitations) eitt albesta slagorð sem ég hef rekist á. Það dregur með skýrum og jákvæðum hætti fram það sem hlutverk Öss- urar snýst um og það sem fyrirtækið vill veita við- skiptavinum sínum; að lífa lífinu án þess að láta fötlun hefta sig á neinn hátt. Verður varla sterkara. Eitt frægasta erlenda slagorð allra tíma er „Just do it“ frá Nike, sem sá fyrst dagsins ljós fyrir þrjátíu árum. Slagorðið felur í sér hvatningu til hreyfingar og frumkvæðis, um leið og í því er hraði, snerpa og áræðni. Nike hefur ekki hrært í þessu öfluga slag- orði og má einnig segja að slagorðið sé að tala við núvit- und samtímans. Annað frægt slagorð er frá Avis-bílaleigunni, sem notaði „We Try Harder“ í hálfa öld. Slagorðið undirstrikar mjög skýrt að fyrirtækið gerði sér grein fyrir að það var minna en Hertz, helsti keppinauturinn, og því legði það meira á sig til að þjóna og gera vel við viðskiptavini. Mjög sterk skilaboð. Árið 2012 hvarf fyrirtækið frá þessu rótgróna slagorði og tók upp „It’s Your Space“, þar sem tala átti ákveðnar við einstaklinga í viðskiptaer- indum. Átti þeim að líða einstaklega vel og hlaða eigin rafhlöður í bílum frá Avis. Fljótt á litið er þessi merking ekki augljós og slagorðið tengist frekar leigu á geymslum eða gámum. Fyrirtæki sem er sífellt að breyta sínu slagorði er Coca-Cola. Eitt þekktasta slagorð þess er „The Real Thing“, sem fram kom 1971, en Coca-Cola hefur notað yfir tuttugu slagorð síðan. Sumir eru þeirrar skoðunar að Coca-Cola hafi aldrei átt að yfirgefa þetta slagorð sitt, þar sem í slagorðinu fólust þau skilaboð að Coca-Cola væri hinn eini sanni kóladrykkur og allt annað væri í öðr- um flokki. Nokkuð er til í því. Segja má að Egils appelsín, sem kom fyrst á markað 1955, sé staðfastara og geri þessa hluti betur með sínu rótgróna slagorði „Hið eina sanna“. Og Ölgerðin hefur með réttu – líkt og Nike – kosið að breyta ekki þessu frá- bæra slagorði sem það hóf notkun á upp úr miðjum átt- unda áratugnum. Ég hef stundum verið hugsi yfir slagorði Ora, sem var lengi vel „Ástríða í matargerð“. Einhvern veginn fann ég ekki mikla tengingu milli niðursuðuvara og hreinnar ástríðu við að elda, sem oftar en ekki byggir á notkun á fersku hráefni. Hef reyndar tekið eftir að síðustu misseri hafa auglýsingar frá þessu rótgróna fyrirtæki – sem einkum tengist grænum baunum í hugum Íslendinga – stuðst við slagorðið „Alla daga, síðan 1952“. Tel það mun betra en ástríðutenginguna, enda undirstrikar það tengsl við söguna og heimilishald landans í áratugi. Tryggingafélagið Sjóvá hætti fyrir allnokkru að nota hin gamalgrónu slag- orð „Þú tryggir ekki eftir á“, sem bar með sér skilaboð um skynsemi þess að tryggja. Í dag notar Sjóvá stundum „Gerum tryggingar betri“, sem hefur óljósa merkingu. Keppinauturinn VÍS notar slagorðið „Þar sem tryggingar snúast um fólk“, sem hefur yfir sér já- kvæðan, mannlegan, og þjónustulegan blæ, sem er sterkt, þó að slagorðið sé að öðru leyti almennt. Trygginga- félagið Vörður notar slagorðið „Við viljum kynnast þér betur“, sem er í sjálfu sér jákvætt og snýr að sam- skiptum við fólk, eins og slagorð VÍS. N1 hefur notað slagorðið „Meira í leiðinni“ í nokkurn tíma. Áherslan þar er skýr, þar sem vakin er athygli á víðtækara neti þjónustustöðvar en hjá keppinautunum. Fókus er skarpur og slagorð laggott. Olís hefur notað slagorðið „Vinur við veginn“, þar sem vinalegheit og þjónusta eru málið. Skeljungur fór í endurmörkun fyrir skömmu með nýju merki en hefur ekki fest sig við ákveð- ið slagorð. Samskip notaði um tíma slagorðið „Saman náum við árangri“ en ekkert er notað í dag, enda það slagorð nokkuð almennt og veikt. Keppinauturinn Eimskip not- aði lengi vel „Greið leið“ en hefur notað „Yfir hafið og heim“, sem dregur enn betur fram tilgang starfseminnar og þá þjónustu sem félagið veitir. Þannig séð gott slag- orð. MARKAÐSMÁL Þórður Sverrisson ráðgjafi í stjórnun og stefnumótun hjá Capacent Er slagorðið að slá í gegn? ” Að mínu mati er slag- orð stoðtækjafyrirtæk- isins Össurar „Líf án takmarkana“ (e. life without limitations) eitt albesta slagorð sem ég hef rekist á. FORRITIÐ Að finna nýjan starfsmann er bæði tímafrekt og kostnaðarsamt. Grisja þarf besta fólkið úr stórum hópi umsækjenda, sjá svo hvernig það kemur fyrir í viðtali, og í framhaldinu vega og meta ótal þætti til að komast að því hver hæfir starfinu best. Hjá Fractal-Pi (www.fractal- pi.com) hefur verið smíðaður hug- búnaður sem notar gervigreind til að auðvelda þetta ferli. Umsækj- endur eru boðaðir í n.k. sjálfvirkt viðtal í gegnum myndsímtal þar sem þeir þurfa að svara í raun- tíma þeim spurningum sem hug- búnaðurinn spyr. Þar sem um upptöku er að ræða getur svar- andinn ekki reynt að svindla eða fela veikleika eins og hann gæti í skriflegu prófi. Gervigreindartækni skoðar hvert minnsta smáatriði í upptök- unni og kortleggur styrkleika og veikleika umsækjendanna. For- ritið notar ekki bara sjálf svörin við spurningunum heldur reynir líka að lesa í andlitshreyfingar og raddbeitingu til að finna þá um- sækjendur sem bera af. Með mælingar Fractal-Pi í höndunum eiga stjórnendur síðan að geta þrengt hópinn enn frekar og boðað efnilegustu umsækjend- urna í viðtal augliti til auglitis. ai@mbl.is Tölvan finnur hæf- asta umsækjandann

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.