Morgunblaðið - 16.08.2018, Síða 15

Morgunblaðið - 16.08.2018, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018 15FÓLK Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Fagnaðir Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. PINNAMATUR Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, klárt fyrir veisluborðið. Þarftu skjóta afgreiðslu á ein- blöðungum, bæklingum, vegg- spjöldum, skýrslum, eða nafn- spjöldum? Þá gæti stafræna leiðin hentað þér. Sendu okkur línu og fáðu verðtilboð. STAFRÆNT SPROTAR Þegar Margrét Anna Einarsdóttir hóf störf sem lögmaður rak hún sig fljótlega á að öll skjalameðferð hjá dómstólunum hefur lítið breyst svo áratugum skiptir. „Allt er á pappír og gagnamagnið svo mikið að það kemur fyrir að lögmenn þurfi að nota ferða- töskur þegar þeir afhenda dómurum og málsaðilum heilu möppurnar af skjölum,“ segir hún og minnist óskemmtilegs atviks þar sem hún þurfti að arka í vetrarveðri um miðbæinn, á pinnahælum og með stóra tösku í eftirdragi, þegar eitt hjólið á töskunni brotnaði af. Margrét Anna segir þau vinnu- brögð sem dómstólar reiða sig á í dag líka skapa ýmis vandamál þegar skila þarf inn gögnum fyrir tiltekinn frest. „Frestir, s.s. til að leggja fram skjöl eða kæra úrskurði, eru með því allra- heilagasta í réttarkerfinu og lögmenn sífellt að keppast við að afhenda skjöl á réttum tíma. Nema hvað að stað- festa þarf afhendinguna með mót- tökustimpli frá dómstólnum sem til- tekur hvenær skjalið barst og stundum renna frestir út á dögum þegar dómstólar eru ekki starfandi. Þá þarf að hringja í neyðarvakt og bíða á meðan starfsmaður gerir sér sérstaka ferð í dómshúsið til þess eins að taka við pappírum og stimpla þá.“ Margrét Anna er framkvæmda- stjóri og stofnandi sprotafyrirtæk- isins Justikal en þar er unnið að því að smíða fullkomið kerfi sem heldur með rafrænum hætti utan um dóms- mál og öll þau gögn sem þar koma við sögu. Meðeigandi Margrétar er Ólaf- ur Páll Einarsson, framkvæmdastjóri Dokobit, en Justikal nýtir sér þá tækni sem Dokobit hefur þróað til að staðfesta rafræn skjöl. Að sögn Margrétar Önnu er ljóst að dómskerfið þarf að taka tæknina í sína þjónustu, ekki aðeins til að hag- ræða heldur einnig til að fullnægja kröfum nýrrar Evrópureglugerðar. „Þessi reglugerð, eIDAS-reglugerð- in, fjallar um rafrænar traustsþjón- ustur (e. trust services) og kveður m.a. á um meðferð gagna sem hafa verið undirrituð rafrænt. Rafrænar undirskriftir eru nú þegar í notkun víða í íslenska bankakerfinu og hjá ríkisskattstjóra, og þegar eIDAS- regluverkið verður innleitt hér á landi skapast kvöð á dómstóla að geta tekið á móti þessum rafrænu gögnum með fullnægjandi hætti. Það þarf að vera hægt að framvísa gögnum á raf- rænu formi, og þurfa þannig skjöl að hafa réttaráhrif og verða viðurkennd sem sönnunargögn alveg eins og hefðbundin skjöl.“ Gæti sparað milljarða En móttaka rafrænna skjala er ekki eins einföld og lesendur gætu haldið. Margrét Anna segir ekki nóg að opna einfaldlega dropbox-möppu: „Bæði þurfa dómstólarnir að geta tekið við rafrænum gögnum, sann- reynt gildi rafrænt undirritaðra skjala og varðveitt þau með öruggum hætti.“ Dómstólahugbúnaður Justikal virkar þannig að ábyrgðaraðili, t.d. dómarinn í tilteknu máli, stofnar svæði fyrir hvert dómsmál. Ábyrgð- araðilinn getur stýrt því hverjir hafa aðgang að málinu og t.d. gefið lög- mönnum aðgang sem leyfir þeim að senda inn gögn á meðan skjólstæð- ingar fá aðeins lesaðgang. Hugbún- aðurinn heldur skrá um allt sem á sér stað, s.s. hvenær skjöl eru skoðuð og af hverjum, og hvenær ný gögn bæt- ast við o.s.frv. „Aðilar sem standa í dómsmálum geta með notkum raf- rænna skilríkja fengið aðgang til að fylgjast með framgangi mála sem þeim tengjast og allir aðilar sem hafa aðgang að dómsmálum fá sjálfvirkar tilkynningar sendar þegar einhver breyting verður á málinu,“ útskýrir Margrét Anna. Vonast Margrét Anna til þess að Justikal geti sparað þjóðarbúinu stórar fjárhæðir samhliða því að gera dómstólakerfið mun skilvirkara. „Eystrasaltslöndin eru komin hvað lengst á þessu sviði og þar er hægt að senda dómstólum gögn í gegnum raf- ræna þjónustugátt. Hefur verið reiknað út að þessi tæknivæðing hafi aukið afköst dómstóla landsins um 32%. Blasir við hvað það myndi þýða stórbætta þjónustu við málsaðila ef sama árangri væri náð hér á landi.“ Hafa Margrét Anna og félagar reiknað út að rafræn skjalameðferð hjá dómstólum hér á landi gæti spar- að 2,8 milljarða króna árlega. „Með því að fara rafrænu leiðina hefur ver- ið áætlað að lögmenn geti að meðal- tali sparað um tvær vinnustundir í hverju máli með því að losna við óþarfa umstang og ferðir með skjöl á milli staða. Um leið hafa aðilar máls mun betri yfirsýn, geta skoðað öll gögn án þess að þurfa að fara í gegn- um lögmenn sína, séð hvaða skjöl hafa verið lögð fram og hvar málið er statt.“ Dómstólar þarf að aðlagast Aðspurð hvers vegna ekki er löngu búið að innleiða rafræna meðferð gagna hjá dómstólunum segir Mar- grét að tæknin til að meðhöndla raf- rænt undirrituð skjöl sé frekar nýtil- komin. Þá hafi löggjafinn verið lengi að bregðast við notkun rafrænna skjala af ýmsum toga og dómstólar eðlilega verið hikandi við að breyta þeim vinnubrögðum sem notuð hafa verið svo áratugum skiptir. „Vita- skuld vilja dómarar að fyllsta öryggis sé gætt og öllum formkröfum full- nægt, en að sama skapi verður að laga dómskerfið að breyttum veru- leika og vaxandi útbreiðslu rafrænna undirskrifta. Ekki er nóg að einfald- lega prenta þessi skjöl út og leggja fyrir dómstólana því við það missa rafrænu undirskriftirnar gildi sitt og til að undirskriftin sé fullgild þurfa dómari og málsaðilar að hafa hana á rafrænu formi.“ Margrét Anna gerir sér grein fyrir að fyrirtæki hennar mun væntanlega þurfa að taka þátt í útboði þegar ís- lenskir dómstólar auglýsa eftir raf- rænu gagnaumsjónarkerfi en hún er vongóð um að Justikal mæti ýtrustu kröfum. „Við höfum hvergi getað fundið sambærilegt kerfi, og það sem aðgreinir okkur frá öðrum skjala- umsjónarkerfum fyrir dómstóla er að geta boðið upp á örugga rafræna meðhöndlun skjala, sem byggist á eIDAS-vottuðum þjónustum. Hug- búnaðinn okkar má síðan laga að er- lendum kerfum og nota víðar en á Ís- landi.“ Morgunblaðið/Hari Margrét Anna Einarsdóttir og Ólafur Páll Einarsson. Hugbúnaður Justikal ætti að geta sparað samfélaginu hátt í þrjá milljarða króna árlega. Skjalamál dómstóla nútímavædd Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Kerfið sem Justikal hefur smíðað hjálpar dómstólum m.a. að taka við rafrænt undirrituðum skjölum með fullnægjandi hætti. Rafræn afhending gagna hefur gert dómstóla í Eystrasalts- löndunum 32% skilvirkari. Það var afslappað andrúmsloft á fundinum á Kex hosteli. Kristján Ingi Mika- elsson hjá Rafmynta- ráði stýrði umræðum. Mike Klo- meni hjá Elementus var einn fyr- irlesara.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.