Morgunblaðið - 16.08.2018, Qupperneq 16
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is. Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Sigurður Nordal fréttastjóri, sn@mbl.is. Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Tómas hættur hjá WOW
Sviptivindar leika um flugfélögin …
Lyfin brátt á markað
Keypti fyrir 100 milljónir í Icelandair
WOW leitar aukins fjármagns
Mest lesið í vikunni
INNHERJI
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON
SKOÐUN
Í fjárfestakynningu fyrir skulda-
bréfaútgáfu í umsjón norska fjár-
festingarbankans Pareto Securities,
kemur fram að WOW air hyggist
stefna á að auka hlutfall sölu á við-
bótarþjónustu (e. ancillary revenue)
af heildartekjum flugfélagsins. Nam
hlutfallið 18,5% árið 2014 en var
komið upp í 30,2% á síðustu tólf
mánuðum. Á meðal þess sem fyr-
irtækið býður upp á í þessum flokki
eru fleiri valmöguleikar fyrir við-
skiptavini sem vilja gera vel við sig.
Segir að þessar vörur WOW air
muni verða megindrifkrafturinn á
bak við aukna sölu á viðbótarþjón-
ustu flugfélagsins á síðari helmingi
þessa árs og í framtíðinni.
Á síðustu tólf mánuðum hefur sala
á viðbótarþjónustu á hvern farþega
hjá WOW air verið 52,5 bandaríkja-
dalir, um 5.700 íslenskar krónur, og
hyggst flugfélagið fara upp í 56,8
dali, rúmar 6.100 krónur, á árinu
2018. Að því er fram kemur í kynn-
ingunni er ekkert flugfélag með
hærri tekjur á hvern farþega á
þessu sviði en WOW air.
Allt að þrefalt hærri framlegð
Í kynningunni kemur einnig fram
að vel hafi verið tekið í svokallaða
„Premium“ og „Comfy“ vöruflokka
flugfélagsins, sem bjóða upp á um-
fangsmeiri þjónustu. Þar á meðal
sætaval, forgang þegar gengið er um
borð, máltíðir um borð auk innrit-
unar farangurs. Skila þessir vöru-
flokkar tvöfalt- til þrefalt hærri
framlegð á hvern farþega um sig
samanborið við þá sem fljúga á
grunnfargjöldum.
Samkvæmt spá verður hlutfall
farþega WOW air sem velja þessa
þjónustuflokka á næsta ári um 22%
af heildarfarþegum en 35% af heild-
artekjum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hlutfall sölu á viðbótarþjónustu hjá flugfélaginu WOW air var tæplega þriðj-
ungur af heildatekjum á síðustu 12 mánuðum, en það var 23% árið 2016.
Auka framlegð með
viðbótargjöldum
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
WOW air hyggst auka sölu
á viðbótarþjónustu á
næstu misserum en hlutfall
hennar af heildartekjum
nam 30,2% á síðustu tólf
mánuðum. Ekkert flugfélag
er með hærri tekjur á hvern
farþega á þessu sviði en
WOW air.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Skortur á leiguíbúðum til lang-tímaleigu hefur staðið íslenskum
leigumarkaði fyrir þrifum. Síðustu ár
hafa margir íbúðaeigendur séð meiri
hag í skammtímaleigu til ferða-
manna. Með hækkandi launakostn-
aði og styrkingu krónu hefur hvatinn
minnkað hjá þeim sem hafa haft
minnst upp úr slíkri leigu.
Það er hins vegar ekki víst að þessibreyting muni valda straum-
hvörfum á markaði. Með veikara
gengi og frekari fjölgun ferðamanna
gæti hvatinn aukist á ný. Á móti
kemur að yfirvöld hafa hert eftirlit
með leigu til ferðamanna. Rætt er
um að villta vestrið í þessu efni, til
dæmis árin 2015 og 2016, sé að baki
og að nýtt skeið sé runnið upp.
Vonir hafi verið bundnar við aðleigufélög fyrir almennan
markað myndu draga úr skorti á
leiguíbúðum fyrir almenning. Þau
eru nauðsynleg á fasteignamarkaði.
Þau auka framboð á langtímaleigu
sem er mikilvægt fyrir þá sem vilja
ekki eða geta ekki keypt fasteign.
Nýverið var rætt um það, að fyrirtiltekið leigufélag myndi jafn-
vel borga sig fyrir hluthafa þess að
íbúðir félagsins yrði seldar.
Fyrr í þessari viku sagði í HagsjáLandsbankans að vísbendingar
væru um að eftirspurn leigufélaga
eftir íbúðum hefði minnkað.
Það er því útlit fyrir að áfram verðiskortur á minni leiguíbúðum til
eintaklinga til lengri tíma.
Skorturinn
varir áfram
Hjá frumkvöðlum gætir stund-um einkennilegrar togstreitu
á milli þess að sækjast eftir at-
hygli og að starfa í leyni. Dæmi
um slíkan frumkvöðul er Elon
Musk, stofnandi og forstjóri Tesla,
sem nú sækir það fast að taka
fyrirtækið af markaði.
Megintilgangurinn er sá aðhlífa fyrirtækinu við því að
þurfa að veita markaðnum og
hluthöfum þær ítarlegu og reglu-
legu upplýsingar sem skráðu
fyrirtæki ber skylda til.
Tesla er hins vegar ekkert smá-fyrirtæki heldur einn stærsti
bílaframleiðandi heims að mark-
aðsvirði. Framleiðslan er þó í raun
fremur takmörkuð og byggist
virði félagsins ekki síst á vænt-
ingum, eins og þegar um er að
ræða tækni- eða nýsköpunar-
fyrirtæki. Það er væntanlega ein
ástæða þess að stofnandinn vill fá
frið til þess að byggja upp fyrir-
tækið án stöðugs áreitis frá aug-
um markaðarins.
Musk verður þó seint talinn tilhæverskra manna, hvorki í
starfi né einkalífi. Vilji hans til
þess að byggja upp Tesla utan
skráðs markaðar getur þó komið
honum í koll, enda rýrir það trú-
verðugleika fyrirtækisins og dreg-
ur úr aðgengi þess að fjármagni.
Því hefur verið haldið fram aðMusk eigi sér nokkurs konar
tvífara í forstjóra flugfélagsins
WOW air. Ekkert skal fullyrt um
það en vissulega tengjast persón-
ur beggja mjög þeim fyrirtækjum
sem þeir hafa stofnað og stýra.
Skúli Mogensen hyggst hins veg-
ar fara þveröfuga leið á við Musk
og skrá sitt fyrirtæki á markað.
Það má hins vegar velta þvífyrir sér hvort það hafi verið
skynsamleg leið að skammta upp-
lýsingar um rekstur flugfélagsins
á meðan á uppbyggingu þess hef-
ur staðið. Mikilvægi WOW air
fyrir sitt nærumhverfi er mikið og
það má í raun líta á það sem sam-
félagslega skyldu þess að upplýsa
um stöðu sína, hvað sem á geng-
ur. Það er hvorki æskilegt fyrir
fyrirtækið né samfélagið að setja
það í hendur fjölmiðla að svara
ákalli um upplýsingar úr rekstri
þess.
Þá er betra að velja athyglinafram yfir leyndina.
Athygli eða leynd
Skuldir heimila í Banda-
ríkjunum jukust um 454
milljarða Bandaríkjadala
á milli ára á öðrum árs-
fjórðungi.
Skuldir Banda-
ríkjamanna hækka
1
2
3
4
5
SETTU STARFSFÓLKIÐ
Í BESTA SÆTIÐ