Morgunblaðið - 18.08.2018, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2018 7
1
ATVINNA
í boði hjá Kópavogsbæ
Sjá nánar á kopavogur.is
www.kopavogur.is/is/stjornsysla/um-okkur/laus-storf
Bókari - launafulltrúi
Idex ehf. og Idex gluggar ehf. óska eftir að
ráða starfsmann í fullt starf.
Starfssvið:
Öll almenn bókhalds-, innheimtu-, toll- og
launavinnsla. Samskipti við stjórnendur og
endurskoðanda fyrirtækisins.
Hæfniskröfur:
Góð og haldbær þekking á bókhaldi, inn-
heimtu, tollskjalagerð og launavinnslu.
Rík þjónustulund og famúrskarandi mann-
leg samskipti.
Metnaður til að skila góðri vinnu.
Nákvæmni og hugkvæmni.
Reynsla í skilum uppgjörs til endurskoðanda
er skilyrði.
Umsóknum skal skilað með tölvupósti til
idex@idex.is
Grindavík er 3.400 manna bær sem hefur vaxið hratt í seinni tíð. Íbúafjölgunin er um 20% undanfarin 10 ár. Grindavík er einn öflugasti útgerðarbær landsins með kraftmiklum og vel reknum út-
gerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum. Ferðamönnum hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár í takt við aukna ferðaþjónustu og Bláa Lónið, fjölsóttasti ferðamannastaður landsins, er í anddyri bæjarins.
Grindavík leggur áherslu á fjölskyldugildi. Grindavík er einn öflugasti íþróttabær landsins og styður vel við íþróttastarf barna með niðurgreiddum æfingagjöldum. Í Grindavík er öflugur grunnskóli
með niðurgreiddan skólamat og niðurgreidd námsgögn. Í Grindavík eru hagstæð leikskólagjöld, lágt útsvar og lág fasteignagjöld.
Grindavík er landmikið bæjarfélag, náttúrufegurð er mikil, stutt í margrómaðar gönguleiðir, fuglalíf mikið í klettum meðfram ströndinni við Reykjanestá, og góður 18 holu golfvöllur í skemmtilegu
umhverfi við sjóinn.
Spennandi störf hjá Grindavíkurbæ
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Meðal helstu verkefna
• Umsjón með stefnumótun í þeim málaflokkum sem undir hann heyra í samvinnu
við fagnefnd sviðsins
• Starfar í samræmi við skipulagslög, mannvirkjalög og önnur lög sem heyra undir
verksviðið
• Ber ábyrgð á skipulagsgerð og útgáfu framkvæmdaleyfa
• Ráðgjöf, undirbúningur og framlagning mála fyrir fagnefnd sviðsins og bæjarráð
ásamt eftirfylgni mála
Menntunar- og hæfniskröfur
• Tæknimenntun á háskólastigi og réttindi til að starfa sem skipulagsfulltrúi
• Reynsla af ráðgjafa- og stjórnunarstörfum
• Góð þekking á lögum og reglugerðum tengdum bygginga- og skipulagsmálum
• Góð tölvukunnátta og þekking á ýmsum hugbúnaði varðandi byggingarmál
• Sjálfstæði og frumkvæði
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
Meðal helstu verkefna
• Yfirumsjón og ábyrgð á íþrótta-, frístunda-, forvarna og menningarmálum ásamt
þjónustu við íbúa á þessum sviðum
• Gerð starfs- og fjárhagsáætlana
• Ráðgjöf, undirbúningur og framlagning mála fyrir fagnefnd sviðsins og bæjarráð
ásamt eftirfylgni mála
• Að skipuleggja viðburði og hátíðir í Grindavík
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af stjórnun verkefna og rekstri
• Færni á sviði upplýsingatækni og miðlunar
• Sjálfstæði og frumkvæði
Grindavíkurbær auglýsir stöður tveggja sviðsstjóra lausar til umsóknar, þ.e. starf sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs og starf sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs.
Leitað er að öflugum og metnaðarfullum leiðtogum í störfin. Starfshlutföll eru 100%. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Konur, jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um.
Auk faglegrar hæfni, sem tilgreind er sérstaklega fyrir hvort starf, er sú krafa gerð til umsækjenda að þeir hafi mikla samskipta- og skipulagshæfni og getu til að stjórna breytingum ásamt hæfni til að
miðla flóknum upplýsingum á einfaldan hátt. Reynsla af stefnumótandi áætlanagerð og gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana er mikilvæg. Reynsla og þekking á málefnum sveitarfélaga er æskileg. Þá er
krafist góðrar kunnáttu í íslensku í ræðu og riti.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Fannar Jónasson bæjarstjóri í síma 420 1100 og með tölvupósti fannar@grindavik.is. Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst nk. og skulu umsóknir sendar á
framangreint netfang eða berast bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar að Víkurbraut 62, 240 Grindavík, merkt „Sviðsstjóri – umsókn“. Farið verður með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál, en listi umsækj-
enda verður opinber að umsóknarfresti liðnum. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Í Grunnskóla Þórshafnar eru um 70 nemendur
í hæfilega stórum bekkjardeildum. Starf-
semi skólans einkennist af kraftmiklu og
framsæknu skólastarfi. Samhliða skólanum
er rekinn tónlistarskóli og hefð er fyrir öflugu
íþróttastarfi fyrir alla aldurshópa skólans.
Langanesbyggð er öflugt og vaxandi sveitar-
félag með spennandi framtíðarmöguleika. Á
Þórshöfn búa um 400 manns í fjölskylduvænu
umhverfi. Gott íbúðarhúsnæði er til staðar
og öll almenn þjónusta er á Þórshöfn. Mikil
uppbygging er framundan með byggingu nýs
leikskóla með tengingu við Grunnskólann. Á
staðnum er gott íþróttahús og innisundlaug
og Ungmennafélag Langaness stendur fyrir
öflugu íþróttastarfi. Í þorpinu er mikið og fjöl-
breytt félagslíf. Samgöngur eru góðar, m.a.
flug fimm daga vikunnar til Reykjavíkur um
Akureyri. Í næsta nágrenni eru margar helstu
náttúruperlur landsins og ótal spennandi
útivistarmöguleikar, s.s. fallegar gönguleiðir
og stang- og skotveiði.
Langanesbyggð leitar að fólki á öllum aldri,
af báðum kynjum, með margskonar menntun
og reynslu. Í samræmi við jafnréttisáætlun
Langanesbyggðar eru karlar jafnt sem konur
hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélag-
inu.
Grunnskólinn á Þórshöfn óskar eftir kennurum til starfa við
skólann næsta skólaár.
Við óskum eftir áhugasömum kennurum sem eru skapandi í starfi. Við leitum að
fólki með margþætta reynslu og bakgrunn sem á það sameiginlegt að hafa mikinn
áhuga á fjölbreyttum kennsluháttum og skólaþróun.
Í boði eru fjölbreytt viðfangsefni, þar sem hæfileikar og frumkvæði kennarans fá notið
sín. Okkur vantar sérkennara, umsjónarkennara, stærðfræðikennara, kennara í list og
verkgreinar og íþróttakennara.
Við leitum að sérkennara sem hefur áhuga á því að móta faglegan grunn
sérkennslunnar við skólann sem byggir á hugmyndafræði hins einstaklings-
miðaða náms og virkri þátttöku allra í skólastarfinu.
Starfsfólk Grunnskólans á Þórshöfn hefur tekið virkan þátt í þróunarstarfi á síðustu
árum þar sem lögð hefur verið áhersla á þróun fjölbreyttra kennsluhátta, teymisvinnu
og á aukna lýðræðislega þátttöku nemenda í skólastarfinu.
Framundan er áframhaldandi spennandi skólaþróun.
Á Þórshöfn er blómstrandi mannlíf, mikil náttúrufegurð, öflugt íþrótta- og félagsstarf
fyrir alla þá sem vilja verða hluti af fjölbreyttri mannlífsflóru norðlensks sjávarþorps.
Umsóknarfrestur er til 30. ágúst og skulu umsóknir sendar rafrænt á netfangið
asdis@thorshafnarskoli.is.
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Allar frekari upplýsingar veitir skólastjóri
Ásdís Hr. Viðarsdóttir í síma 468-1164 eða 852-0412
Langanesbyggð leitar eftir
áhugasömum kennurum
Kórstjóri óskast
Kvennakórinn Ljósbrá í Rangárvallasýslu
leitar að nýjum stjórnanda. Kórinn heldur
upp á 30 ára starfsafmæli á næsta ári, flytur
fjölbreytt efni, allt frá rokki til íslenskra ætt-
jarðarsöngva og hikar ekki við að takast á
við nýjar áskoranir. Í kórnum eru um það bil
40 hressar konur á öllum aldri.
Ef þú hefur áhuga á að vita meira hafðu þá
samband við Olgu í síma 892 5357 eða
Margréti í síma 868 2543.
Sendibílar Reykjavíkur vantar bílstjóra,
meirapróf ekki skilyrði.
Íslenska er skilyrði og hreint
sakavottorð.
Sendið umsóknir ásamt ferilskrá
á sendibilarrvk@simnet.is
Bílstjórar óskast