Morgunblaðið - 18.08.2018, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2018
5
1
5
7
#
Draghálsi 4 - 110
Reykjavík
sími: 535 1300
verslun@verslun.is
Bílstjóri
með meirapróf og lyftarapróf
Vinnutími virka daga frá kl 08:00 -17:00
Um er að ræða dreifingu á vörum fyrirtækisins
á höfuðborgarsvæðinu
Upplýsingar um umsækjenda, aldur
og starfsferil óskast sendar á
netfangið sht@verslun.is
Sérfræðingur í
viðskiptatengslum
KOMPÁS Þekkingarsamfélagið leitar eftir markaðs- og þjónustudrifnum einstaklingi til að styrkja KOMPÁS teymið.
Áhersla viðkomandi verður á að virkja og styrkja tengsl við nýja og núverandi þátttakendur í þekkingarsamfélaginu.
Starfið felur í sér markaðssetningu, öflun nýrra þátttakenda, nýta samfélagsmiðla og annað sem eflir ávinning
þátttakenda í þekkingarsamfélaginu. Þörf er á öflugum og fjölhæfum einstaklingi sem vill leggja sitt af mörkum við
eflingu faglegrar stjórnunar og uppbyggingu þekkingarsamfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun er nýtist í starf.
• Viðkomandi búi yfir góðri þekkingu og reynslu á sviði fag-
legrar stjórnunar.
• Markaðs- og sölumál og nýting samfélagsmiðla.
• Mjög góð samskiptahæfni, gott tengslanet og þekking á
atvinnulífinu.
• Góð ritfærni. Íslenska, enska og æskilegt eitt Norðurlandamál.
• Skipulögð og öguð vinnubrögð. Geta unnið sjálfstætt í
krefjandi aðstæðum.
• Góð þekking og reynsla á notkun hugbúnaðar er nýtist í starfi.
Viðkomandi starfsmaður þarf að koma af miklum krafti inn í vax-
andi teymi þar sem oft þarf að vera hægt að ganga í fjölbreytt
störf til að mæta þeim væntingum sem gerðar eru til KOMPÁS
Þekkingarsamfélagsins. Í því getur einnig falist verkefni við
öflun fjármagns til frekari vaxtar, erlend samskipti, starfa með
vinnuhópum og í nánu samstarfi við lykil hagsmunaaðila að baki
KOMPÁS Þekkingarsamfélagsins.
KOMPÁS er samstarfsvettvangur fjölda fyrirtækja, stofnana,
háskóla, fræðsluaðila, stéttarfélaga og fleiri um miðlun hag-
nýtrar þekkingar, sbr. verkferla, eyðublaða, gátlista, vinnulýs-
inga, samninga, reiknivéla, myndbanda og fleira. Í dag eru yfir
2.500 skjöl og myndbönd í verkfærakistu KOMPÁS.
Umsóknir sendist á bf@kompas.is ásamt starfsferilskrá og kynningarbréfi þar sem tilgreint er hvernig hæfileikar viðkomandi nýtast
í starfi og hvað viðkomandi getur gert fyrir þekkingarsamfélagið. Umsóknarfrestur er til 31. ágúst 2018.
Nánari upplýsingar veitir Björgvin Filippusson, bf@kompas.is, s 864 4604.
w w w. k o m p a s . i s
Starfsmaður
óskast á skrifstofu
Kælismiðjan Frost ehf. óskar eftir að ráða starfs-
mann á skrifstofu félagsins að Fjölnisgötu 4 b,
603 Akureyri.
Starfið fellst í:
• Umsjón með flutningum frá birgjum og til viðskiptavina.
• Samskiptum við ferðaskrifstofu og VISA umsóknir,
vegna ferða starfsmanna.
• Yfirferð reikninga.
• Gerð handbóka.
• Afleysingar innkaupastjóra og starfsmanna á skrifstofu.
Hæfniskröfur:
• Tölvukunnátta, word, exel o.s.frv.
• Góð kunnátta í ensku og einu norðurlandamáli.
• Færni í mannlegum samskiptum, þjónustulipurð og létt
lund.
Frost er sérhæft í hönnun og uppsetningu frysti- og
kælikerfa fyrir frystigeymslur og matvælavinnslur, aðallega
í sjávarútvegi.
Frost sinnir verkefnum bæði hér heima og erlendis.
Frost er með starfsemi á Akureyri og í Garðabæ og
samtals starfa hjá fyrirtækinu u.þ.b. 60 starfsmenn.
Áhugasamir sendi upplýsingar á: gunnar@frost.is
RÁÐNINGAR Starfsmenn eru lykill að árangri allra fyrirtækja.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
1
ATVINNA
í boði hjá Kópavogsbæ
Sjá nánar á kopavogur.is
www.kopavogur.is/is/stjornsysla/um-okkur/laus-storf