Morgunblaðið - 18.08.2018, Page 9

Morgunblaðið - 18.08.2018, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2018 9 Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir sérfræðingi á skrifstofu fjármála og rekstrar og lögfræðingi á skrifstofu landgæða Sérfræðingur á skrifstofu fjármála og rekstrar Lögfræðingur á skrifstofu landgæða Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir starf sérfræðings á skrifstofu fjármála og rekstrar. Um fullt starf er að ræða. Helstu verkefni skrifstofunnar eru; fjárlagagerð og framkvæmd fjárlaga, rekstur ráðuneytisins og áætlanagerð, árangursstjórnun, upplýsingatækni og skjalastjórnun, gæða- og umhverfisstjórnun, húsnæðis- og öryggismál og samningar og eftirfylgni þeirra. Helstu verkefni: • Umsjón með framkvæmdverkefnum sem unnin eru á grundvelli laga nr. 20/2016 um landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum, m.a. að yfirfara verk- og kostnaðaráætlanir, samningagerð, eftirfylgni á framkvæmdatíma og uppgjör í lok verkefna • Önnur verkefni skrifstofunnar Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun er kostur • Þekking og reynsla af fjármálum og samningagerð • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun • Góð Excel kunnátta. Þekking á SQL gagnagrunnum er kostur • Reynsla af verklegum framkvæmdum er kostur • Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur • Þekking og reynsla af gæðastjórnun er kostur Færni og aðrir eiginleikar: • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi • Framúrskarandi samskiptahæfni • Lausnamiðuð hugsun og geta til að vinna undir álagi • Hæfileiki til að taka þátt í og leiða teymisvinnu • Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku og ensku og vald á einu Norðurlanda- tungumáli er kostur Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir starf lögfræðings á skrifstofu landgæða. Um fullt starf er að ræða. Helstu verkefni skrifstofunnar eru á sviði náttúruverndar og lífríkis, veiðistjórnunar, áætlunar um vernd og nýtingu orkusvæða, hverskonar landnýtingar s.s. skógræktar, landgræðslu og vörslu lands, jarðrænna auðlinda og reksturs þjóðgarða og friðlýstra svæða. Helstu verkefni: • Afgreiðsla stjórnsýsluerinda, úrskurða og álitsgerða • Gerð lagafrumvarpa og reglugerða • Þátttaka í stefnumótun • Önnur lögfræðileg viðfangsefni skrifstofunnar Menntunar- og hæfniskröfur: • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði • Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu æskileg • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun Færni og aðrir eiginleikar: • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi • Framúrskarandi samskiptahæfni • Lausnamiðuð hugsun og geta til að vinna undir álagi • Færni í mótun stefnu, lausna og hugmynda • Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku og ensku og vald á einu Norðurlanda- tungumáli er kostur Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Ráðuneytið hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um störfin. Umsóknarfrestur er til og með 3. september 2018. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsóknir sínar til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík eða rafrænt á postur@uar.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Umsóknum þurfa að fylgja ítarlegar starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar um störfin veitir Stefán Guðmundsson, skrifstofustjóri skrifstofu fjármála og rekstrar (stefan.gudmundsson@uar.is) og Jón Geir Pétursson, skrifstofustjóri skrifstofu landgæða (jon.g.petursson@uar.is).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.