Morgunblaðið - 18.08.2018, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2018
Tilboð/útboð
*Nýtt í auglýsingu
20665 RS Raftæki. Ríkiskaup fyrir hönd aðila að
rammasamningum Ríkiskaupa, óska eftir til-
boðum í almenn raftæki. Útboðinu er skipt í tvo
flokka: A. Almenn heimilistæki, B. Tæki fyrir hljóð
og mynd. Nánari upplýsingar í útboðsgögnum á
www.rikiskaup.is. Opnun tilboða 30. ágúst 2018
kl. 10:00 hjá Ríkiskaupum.
*20661 RS Rekstrarráðgjöf. Ríkiskaup, fyrir
hönd aðila að rammasamningum ríkisins á
hverjum tíma, standa fyrir útboði vegna kaupa
á rekstrarráðgjöf. Nánari upplýsingar í útboðs-
gögnum á www.rikiskaup.is. Opnun tilboða
20. september 2018 kl. 11:00 hjá Ríkiskaupum.
Samflutningur þjónustustofnana
GRR og ÞÞM - Leiguhúsnæði
20824 – Ríkiskaup f.h. ríkissjóðs óska eftir
að taka á leigu húsnæði fyrir SÞS - Sam-
flutningur þjónustustofnana GRR og ÞÞM
(Greiningarstöð ríkisins og Þjónustu- og
þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og
daufblinda einstaklinga). Umsjónaraðili er
Framkvæmdasýsla ríkisins.
Miðað er við að húsnæðið verði tekið á langtíma-
leigu til 25 ára, fullbúið til notkunar, án lauss
búnaðar.
Gerð er krafa um góða staðsetningu á höfuð-
borgarsvæðinu, gott aðgengi þ.m.t. fyrir hreyfi-
hamlaða, hjólandi og gangandi og næg bíla- og
hjólastæði. SÞS er þjónustustofnun fyrir
almenning og því skiptir staðsetning húsnæðisins,
þ.e. nálægð við helstu stofnbrautir og almenn-
ingssamgöngur, miklu máli við staðarval.
Greið leið þarf að vera að verslunum og kaffi-
húsum í næsta nágrenni SÞS til að hægt sé að
meta þátttöku og færni einstaklinga í samfélagi.
Að auki þarf að vera hægt að prófa notkun ýmissa
ferlihjálpartækja á auðveldan hátt utanhúss. Allt
nærumhverfi og aðgengi þar að skiptir máli.
Húsrýmisþörf stofnunarinnar er áætluð um 2.957
fermetrar. Húsnæðið skiptist í skrifstofur og m.a.
viðtals- / skoðunar- / prófunar- / athugunar- /
lækninga- / þjálfunarrými, verkstæði.
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið
verður að uppfylla verða aðgengilegar á heima-
síðu Ríkiskaupa www.rikiskaup.is eigi síðar en
mánudaginn 20. ágúst 2018.
Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið
tillit til leiguverðs, stærð húss og skipulag þess
út frá fyrirhugaðri starfsemi, öryggi, afhendingar-
tíma, staðsetningu, aðkomu og bílastæðum.
Fyrirspurnir varðandi verkefni 20824 skulu send-
ar á netfangið utbod@rikiskaup.is og verða svör
birt á vef Ríkiskaupa.
Fyrirspurnarfrestur rennur út 20. september en
svarfrestur er til og með 24. september.
Leigutilboðum þar sem fram kemur stærð, ástand
og staðsetning húsnæðis, ásamt leiguverði, skal
skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík,
eigi síðar en kl. 13:00 fimmtudaginn 27. septem-
ber 2018.
Merkja skal tilboðin; nr. 20284 –
Samflutningur þjónustustofnana GRR
og ÞÞM - Leiguhúsnæði
Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undan-
skilin lögum um opinber innkaup nr. 20/2016, sbr.
a. lið 1. mgr. 6a. gr.
Gögn sem fylgja skulu tilboði þurfa m.a. að inni-
halda eftirfarandi upplýsingar:
Afhendingartíma húsnæðis
Staðsetningu, stærð húsnæðis og
tillöguteikningar
Fjölda bílastæða, aðkomu að lóð og byggingu,
Leiguverð per/m2 og heildarleiguverð
Húsgjöld
Gildandi deiliskipulag svæðis þ.e. lóðar og
aðlægra lóða
Tilvísun í gildandi aðalskipulag
Áskilinn er réttur til að óska eftir því við leigu-
sala að hann leggi fram úttektarskýrslu, frá
óháðum aðila, um að húsnæðið sé laust við
myglu. Það skal gert áður en skrifað er undir
leigusamning.
ÓSKAST TIL LEIGU
Til leigu
Landsnet óskar eftir tilboðum í smíði og uppsetningu á undirstöðum vegna stækkunar
á tengivirkinu við Laxárvatn og nýju tengivirki við Hnjúka í Blönduósbæ í samræmi við
útboðsgögn LAV-01
Verkið felur í sér jarðvinnu, smíði og uppsetningu á forsteyptum undirstöðum, staðsteypu á spennaþró,
lagningu jarðskauta og lagnaleiða.
Helstu verkliðir eru:
Jarðvinna 1250 m3
Forsteyptar undirstöður 16 stk
Spennaþró 55 m3
Jarðskaut 300 m
Lagnaleiðir 75 m
Verkinu skal að fullu lokið 20. desember 2018.
Verkinu er nánar lýst í útboðsgögnum LAV-01 sem verða aðgengileg í útboðskerfi Landsnets
frá og með 18.08.2018, sjá nánar á www.utbodsvefur.is
Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfi Landsnets fyrir kl. 14:00, 13.09.2018.
Tilboð verða opnuð kl. 14:00 GMT, 13.09.2018 að Gylfaflöt 9,
112 Reykjavík, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
ÚTBOÐ LAV-01: TENGIVIRKI LAXÁRVATNI OG
HNJÚKUM, JARÐVINNA OG UNDIRSTÖÐUR
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Útboð
Útboðsverkefninu er nánar lýst í útboðsgögnum „VEV-
2018-22 Kleppsvegur endurnýjun hitaveitu, háspennus-
trengs, lágspennustrengs og götulýsingar“
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu á vefsíðu
Orkuveitunnar frá mánudeginum 20.08.2018 https://
www.or.is/utbod
Tilboð verða opnuð hjá Veitum ohf., Bæjarhálsi 1, 110
Reykjavík, föstudaginn 31.08.2018 kl. 10:30
VEV-2018-22 18.08.2018
Veitur ohf., óska eftir
tilboðum í útboðsverkefnið:
KLEPPSVEGUR ENDURNÝJUN
HITAVEITU,
HÁSPENNUSTRENGS,
LÁGSPENNUSTRENGS OG
GÖTULÝSINGAR
Raðauglýsingar 569 1100
!"
!#$%
"&'
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100