Morgunblaðið - 21.08.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.08.2018, Qupperneq 4
4 | MORGUNBLAÐIÐ 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri Teitur Gissurarson teitur@mbl.is E f þér finnst þú vera að missa stjórn á honum gefðu þá bara aðeins meira inn.“ Þetta voru leiðbein- ingarnar sem blaðamaður bílablaðs- ins fékk áður en hann steig upp í hinn ógurlega Wildcat XX á Bola- öldum fyrir skemmstu. Þá fékk hann að reynsluaka bílnum á tveim- ur brautum og bruna í blíðskap- arveðri upp í Jósepsdal þar sem Villikötturinn urraði af ánægju enda skapaður fyrir slíkt landslag. Skilur jeppana eftir í rykinu Blaðamaður og starfsmaður Arc- tic Sport, sem er með umboðið fyrir Wildcatt XX, brenndu á ógnarhraða upp í Jósepsdal. Þeir sem þekkja til vita að gaman er að aka þar um, sé maður á góðu farartæki. Hestöflin 125 voru nýtt vel og sigldu félagarnir á um 90 kílómetra hraða eftir vegslóðanum, en bíllinn gat auðveldlega legið þægilega í hundrað án þess að eftir því væri sérstaklega tekið. Þar þótti blaðamanni skína skýrt í gegn hvar Wildcat XX myndi njóta sín best; á heiðum og hálend- isvegum, þar sem hann myndi skilja hvaða breytta jeppa sem er eftir í rykinu. Má því segja að bíllinn sameini bestu eiginleika fjórhjóls og jeppa þar sem tveir geta setið hlið við hlið, án þess þó að vera einangraðir frá umhverfinu líkt og í venjulegum jeppa. Meiri útivistarfílingur fæst (enda er maður úti!) án þess þó að vera jafn berskjaldaður og á fjór- hjóli eða mótorhjóli. Veltigrindin eykur svo öryggistilfinningu far- þega til muna, enda ekki allir með hjartað í að þeysa um holt og hæðir á fjórhjóli. Frábær fjöðrun Það sem fyrst vekur ánægju þeirra sem fá að hoppa upp í hinn nýja Wildcat er líklega fjöðrunin. Átján tommu demparar og engar stífur, sem gera það að verkum að hjólin hreyfast eðlilega upp og nið- ur, en þrýstast ekki til hliðanna á erfiðum þúfum. Á þetta var reynt strax í fyrstu ferð í braut en fyrri brautin á Bola- öldum var bæði nokkuð stutt og þröng og reyndi á alla eiginleika bílsins, og ökuþórsins, frá fyrstu mínútu. Eftir ágætan æfingahring var gefið örlítið í en alltaf virtist bíllinn sem límdur við jörðina. Það var sama þótt farið væri með hraði yfir þvottabrettið í brautinni, alltaf var aksturinn jafnþægilegur (og þá var fjöðrunin bara í miðstillingu). Blaðamanni var strax hugsað til tímans sem hann skókst Gæsa- vatnaleið í aftursætinu á gömlum Pajero jeppa sem barn, og fann bæði bein og tennur ganga til í lík- amanum. Þá hefði fjöðrunin í nýja Villikettinum komið sér vel. Ímynduð þynging í skónum Þar á eftir var stærri og breiðari braut tekin fyrir, dempararnir stíf- aðir og sett ímynduð þynging í skó- inn á hægrifæti ökuþórs. Allt var gefið í botn í hverri beygju og skrensaði bíllinn lítið sem ekkert. Áðurnefnd fyrirmæli um inngjöf á erfiðum köflum reyndust orð að sönnu enda rataði bíllin ávallt inn á rétta braut. Þó má á það benda að hafi fólk áhuga á skrensi (e.slide/drift) er lít- ið mál að aftengja framdrifið, og verður þá upplifunin líklega allt önnur. Eins og sjá má af myndunum er bíllinn rúmgóður, án þess þó að vera of stór. Seta í bílnum líkist á engan hátt því að sitja í þeim buggy-bílum sem blaðamaður hefur ekið áður hjá ferðamanna-buggy bílaleigum, þá sérstaklega vegna þægilegra sæta. Stillanlegt sæti ökumanns gerir all- an akstur mun betri sem og skýrt mælaborð og góð stærð á stýrinu. Pallurinn, sem auðveldlega hægt er að tjalda yfir ætli maður í lengri ferðir, tekur um 135 kg. Þá er um fimmtán lítra hanskahólf fyrir fram- an farþegasætið þar sem m.a. er hægt að hlaða síma. Möguleiki er svo að bæta við á bílinn spili, ljósum og öðrum aukabúnaði. Hægt er að nálgast vélasalinn, bæði að aftan og að framan, með auðveldum hætti þar sem aftari pallurinn er festur niður með fjór- um skrúfum sem lítið mál er að losa. Ferðin upp í Bolaöldur var allt í allt mjög ánægjuleg, eins og má lík- lega greina af lestri þessarar sam- antektar. Hafi maður áhuga á að versla sér buggy-bíl, eða álíka far- artæki, er ljóst að Wildcat-XX mun standa framarlega meðal jafningja á næstunni. Þó að stórgaman hafi verið að þeysa um torfærubrautirnar á bíln- um mælir blaðamaður sérstaklega með honum fyrir þá sem vilja geta ferðast hratt og þægilega með öðr- um, yfir erfitt landslag. Hratt og þægilega yfir erfitt landslag Frábær fjöðrun og mik- ill kraftur vöktu blaða- mann til lífsins þar sem hann brunaði á buggy- bíl á Bolaöldum. Morgunblaðið/Hari Hjólin hreyfast eðlilega upp og niður, en þrýstast ekki til hliðanna.Stærðin á stýri Wildcat er þægileg og mælaborðið skýrt. „Hestöflin 125 voru nýtt vel og sigldu félagarnir á um 90 kílómetra hraða í Jósepsdal.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.