Morgunblaðið - 21.08.2018, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ | 9
bíla, sem eru fágaðir og hafa
þroskaðan smekk, velja Aston
Martin. Og viti menn að af öllum
lúxus- og ofursportbílum ku Aston
Martin vera sá framleiðandi sem
kaupendur halda mestri tryggð við:
þeir sem á annað borð uppgötva
kosti Aston Martin virðast ekki
geta hugsað sér annað.
Tímamótabíll
Framleiðsla DB 11 hófst árið
2016 og markaði kaflaskil í sögu
Aston Martin með nýrri stefnu í
bæði hönnun og smíði. Eins og ald-
argamall bílasmiðurinn hefur orðað
það á DB 11 að vísa veginn inn í
næstu öld.
DB 11 er arftaki DB9 og ætlað
að vera hér um bil í miðju Aston
Martin-fjölskyldunnar: örlítið ódýr-
ari en Vantage, en ekki jafn snar-
bilaður og dýr og DBS Superleg-
gera. Fyrst kom DB 11 með 600
hestafla V12 vél, en árið 2017 bætt-
ist við útgáfa með 503 hestafla V8
vél og var það bíll af þeirri gerð
sem ég fékk að prófa í Singapúr.
Fyrr á þessu ári bættist svo við
DB 11 Volante-blæjubíll, og einnig
DB 11 AMR sem er enn kröftugri
og sportlegri útgáfa af DB 11 V12.
Kaupendur fá síðan fyrstu eintökin
af DBS Superleggera í hendurnar
síðar á árinu, en hann byggist á
sama grunni og DB 11 nema hvað
búið er að hækka allar stillingar út
fyrir öll velsæmismörk, s.s. með
715 hestafla vél.
Bílablaðamenn hafa almennt ver-
ið mjög hrifnir af V8 útgáfunni, því
þrátt fyrir að hafa minni vél og
færri hestöfl er DB 11 V8 töluvert
léttari en V12 útgáfan, með betri
þyngdardreifingu og ekki nema 0,2
sekúndum lengur að ná 100km/klst
úr kyrrstöðu. DB 11 V8 þykir því á
margan hátt skemmtilegra og lipr-
ara ökutæki sem flýgur í gegnum
hlykkjótta vegi og fer létt með
hverja bugðu á kappakstursbraut.
Línur með tilgang
En það er ekki hröðunin sem
maður hugsar fyrst um þegar mað-
ur fær lyklana að DB 11 í hend-
urnar því það er hreinlega ævintýri
að virða þennan bíl fyrir sér í kyrr-
stöðu. DB 11 er svo svakalega víga-
legur, með grill sem minnir á opið
gin á hákarli og stæltan afturhluta
sem líkist mjöðmunum á kattardýri
sem býr sig undir að stökkva á
bráð. Útlínurnar eru nútímalegar,
en um leið íhaldssamar. Hver
bugða þjónar líka tilgangi, og t.d.
eru raufarnar ofan við framdekkin
ekki bara til skrauts heldur hleypa
þær út lofti sem annars mynd safn-
ast saman ofan við dekkin á ferð og
skapa þar hvirfla og aðrar trufl-
anir. Raufarnar beina loft-
straumnum út og meðfram hliðum
bílsins, inn um aðra rauf aftan við
farþegagluggann, þar sem loftið
þýtur eftir stokki og er síðan
hleypt aftur út um raufar á skott-
lokinu til að búa til n.k. ósýnilega
vindskeið.
Þegar sest er í ökumannssætið
er síðan eins og allt smellpassi.
Rýmið er snyrtilegt, línurnar mjúk-
ar, allt klætt í leður, og frágang-
urinn eins og best verður á kosið.
Eini veiki bletturinn sem hægt er
að finna er leiðsöguskjárinn sem
lítur út eins og einhver hafi stillt
upp spjaldtölvu á miðju mælaborð-
inu. Glöggir lesendur ættu að
kannast við þennan búnað, enda
kerfið fengið að láni frá Daimler.
Fyrirtækin tvö hafa átt í tækni-
samstarfi frá 2013 og þó svo að
nýja leiðsögutölvan þyki mikil
framför frá því sem Aston Martin
notaði áður þá er DB 11 ekki með
allranýjasta kerfið frá Damiler –
sem mér þykir þess utan gera hug-
búnað með frekar óþjálu notenda-
viðmóti.
Er líka rétt að taka fram að þótt
framsætin séu þægileg og lítill
vandi að aka DB11 svo mörgum
tímum skiptir án þess að finna fyr-
ir minnstu ónotum, þá eru aft-
ursætin tvö agnarsmá og ekki góð-
ur staður til að vera á í langan
tíma.
„I‘ve been here before …“
Stýrið verðskuldar nokkrar máls-
greinar: það er örlar á ferhyrningi í
löguninni og alveg hárréttur fjöldi
takka við fingurgómana. Við vinstri
þumalinn er takki sem breytir
styrkleika fjöðrunarinnar og við
vinstri þumal takki til að breyta
vélinni frá þægindastillingu yfir í
Sport og Sport Plus. Ökumaður
getur haft fjöðrun og vélarhegðun
eins honum hugnast, og t.d. ekkert
sem bannar að vera með vélina á
Sport Plus-stillingu og fjöðrunina
eins mjúka og bíllinn leyfir. Er líka
tiltölulega auðvelt að breyta virkni
tveggja stjórntakka vinstra og
hægra megin, s.s. til að skipta um
lag eða útvarpsstöð, sem mér finnst
alveg ómissandi.
Reynsluakstursbíllinn kom með
staðal-hljóðkerfi sem var samt
feikigott, en einnig má panta
„premium“ hljóðkerfi eða fá græjur
frá Bang & Olufsen. Ég játa að ég
stalst til að spila „Writing’s on the
Wall“, þó að það sé svolítið klént að
spila Bond-lag á meðan ekið er um
Singapúr í Aston Martin.
Ég hefði líklega sungið með ef
fulltrúi Aston Martin hefði ekki
verið með mér í bílnum.
Glæpsamlegar hvatir
Það er sárasjaldgæft að starfs-
maður fylgi með þegar blaðamenn
fá bíl að láni. Skýringin er sú að
ekki var um eiginlegan pressu-bíl
að ræða, heldur venjulegan sýning-
arbíl, og nauðsynlegt trygginganna
vegna að hafa fulltrúa umboðsins
með. Ég skil líka að þeir hjá Aston
Martin vilji hafa gætur á bílnum,
því í skattaparadísinni Singapúr
eru lagðir himinháir skattar á öku-
tæki sem gera bíla á borð við DB
11 nærri þrefalt dýrari þar í landi
en í Evrópu.
Svo kom hann Aaron líka í góðar
þarfir enda yfirvöld í Singapúr
hrifin af hvers lags eftirliti. Les-
endur vita eflaust að í þessu vell-
auðuga borgríki í SA-Asíu er tyggi-
gúmmí bannað og eiturlyfjasalar og
-smyglarar geta vænst þess að vera
leiddir fyrir aftökusveit. Ætti því
ekki að koma á óvart að hraða-
myndavélar eru á hverju strái en
Aaron, verandi með mikla bíladellu
sjálfur, gat sagt mér hvar óhætt
væri að gefa bílnum aðeins inn.
Og hvílík sæla. Hvílíkt viðbragð.
Hvílíkt vélarhljóð. Hvílíkur draum-
ur. Verst að ég skyldi ekki fá að
prufa þennan bíl á þýskri hrað-
braut eða lokaðri keppnisbraut.
Ég hugleiddi það á tímabili að
binda hann Aaron á höndum og fót-
um og skilja eftir einhvers staðar,
aka af stað í norðurátt, inn í Malas-
íu, á harðaspretti til Taílands, og
eiga nokkra góða daga með bílnum
á flótta undan réttvísinni. Kannski
yrði ég hólpinn ef ég kæmist til
Laos og lofaði einhverjum spilltum
lögreglustjóranum þar að fá bílinn
að láni um helgar.
Komst svo að þeirri niðurstöðu
að kannski væri viturlegra að biðja
blaðið um launahækkun og byrja
að spara.
Því það er kominn nýr bíll í
draumabílskúrinn.
Ég hugleiddi það á tíma-
bili að binda hann Aaron
á höndum og fótum og
skilja eftir einhvers
staðar, aka af stað í
norðurátt, inn í Malasíu,
á harðaspretti til Taí-
lands, og eiga nokkra
góða daga með bílnum
» 4 lítra V8 m forþjöppum
» 503 hestöfl, 675 Nm
» 8 gíra rafdrifin sjálfskipting
» 9,9 l /100km í blönduðum
akstri
» Úr 0-100 km/klst á 4,0
sekúndum
» Hámarkshraði 301 km/
klst
» Afturhjóladrifinn
» 255/50 ZR20 að framan,
295/35 ZR20 að aftan
» 1.760 kg
» Farangursrými: 270 lítrar
» Koltvísýringslosun: 230 g/
km
» Áætlað verð: frá
45.000.000 kr.
Aston Martin
DB 11 V8