Morgunblaðið - 21.08.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.08.2018, Blaðsíða 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratuga reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Renndu við hjá okkur í Tangarhöfða 13 Sími 577 1313 kistufell.com TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ Allar almennar bílaviðgerðir Japanski bílaframleiðandinn Nissan uppfyllir best, að mati bílasöluritsins Auto Trader, grunnþarfir bílkaup- enda og býður best hannaða bún- aðinn með tilliti til notkunar. Er Nissan því handhafi viðurkenning- arinnar „Vörumerkið með best búnu bílana 2018“, eða „Brand with the Best Car Features award 2018“. Verðlaunin eru ein þriggja sem Auto Trader eyrnamerkir bíla- framleiðendum fremur en ein- stökum bílgerðum. Þau þykja end- urspegla þann búnað sem bílakaupendur telja að eigi að vera staðalbúnaður í nýjum bíl fremur en aukahlutur sem þurfi að greiða sér- staklega fyrir. Einnig er tekið tillit til þess hversu þægilegt sé að nota búnaðinn og fækkar stigum til verðlauna eftir því sem flækjustigið hækkar. Að mati þátttakenda í könnun Auto Trader er hönnun stjórnbúnaðar í Nissan sérlega góð enda fljótlegt að læra á hann og nota án fyrirhafnar, að því er fram kemur í tilkynningu. Meðal grundvallarbúnaðar sem bílakaupendur leggja mesta áherslu á að sé í nýja bílnum eru leið- sögukerfi, samþætting símans við afþreyingarkerfi bílsins og loftkæl- ing. Í ár þykir rúmlega 40 þúsund þátttakendum í könnuninni að Niss- an uppfylli þarfirnar best. Í svörum þeirra kemur m.a. fram að þeir telji Nissan bjóða bíla sína með ríkuleg- um staðalbúnaði sem sé innifalinn í grunnverði bílsins í stað þess að bjóða sem aukabúnað sem þurfi að greiða sérstaklega fyrir. Einkunnir þátttakenda taka bæði til fjöl- breyttra öryggiskerfa og þæg- indabúnaðar í farþegarýminu og telja eigendur Nissan að framleið- andinn bjóði vel búna bíla á hag- stæðu verði. agas@mbl.is Nissan Altima sviptur hulum á bílasýningunni í New York í mars. Nissan uppfyllir grunnþarfirnar Sportbílar koma ekki fyrst upp í hug- ann þegar hann reikar til Austurríkis. Nýtt fyrirtæki með ítölsku heiti, Mil- an Automotiv, ætlar að breyta því og koma landinu á sportbílakortið. Fyrsta afurð fyrirtækisins, full- skapaður 1.307 hestafla bíll að nafni Milan Red, hefur verið kynntur til sögunnar. Þar er tvinntækninni ekki beitt eins og svo algengt er um afl- mikla og snarpa sportbíla. Í staðinn er að finna í aflrásinni 6,2 lítra V8-vél með fjórfaldri forþjöppu er sendir hestöflin öll með tölu til aft- urhjólanna fyrir tilstilli sjö hraða gír- kassa. Hermt er að Milan Red vegi 1.300 kíló og upp er gefið að á þessu stigi muni hann komast úr kyrrstöðu upp í 100 kílómetra hraða á aðeins 2,47 sekúndum. Topphraði bílsins er sagð- ur 400 km/klst sem eru sams konar afköst og hjá Bugatti Chiron hinum franska og Koenigsegg hinum sænska. Milan áformar að smíða aðeins 99 eintök af Red-ofurbílnum. Verða eng- in tvö eintök eins en kaupendur munu fá talsvert svigrúm til að láta skradd- arasníða þá að eigin óskum. Um nýliðin mánaðamót höfðu pantanir verið lagðar inn fyrir 18 bíl- um. Mun eintakið kosta um 2,9 millj- ónir dollara, eða sem svarar 310 millj- ónum íslenskra króna. Austurríski ofurbíllinn er að mestu leyti smíðaður úr koltrefjaefnum, bæði bílskelin, afturgrindin og yf- irbyggingin auk þess sem Red verður fyrsti götubíllinn til að státa af fjöðr- un sem að verulegu leyti verður styrkt með koltrefjaefni. Bíllinn er nefndur eftir gleðu, rán- fugli af einni ættkvísl haukaættar og verður fáanlegur með þrenns konar akstursham: svif-, veiði- eða árás- arham. agas@mbl.is Milan Red hefur verið hannaður út frá viðmiðum um akstursánægju. Vélin er rösklega 1.300 hestafla. Að hluta til verður Milan Red skraddarasniðinn að óskum kaupenda. Ofurbíll frá Austurríki Nýbjalla Volkswagen hefur aldrei náð sér á strik að ráði og hefur þýski bílrisinn ákveðið að gefa smíði henn- ar upp á bátinn. Nýbjallan kom á götuna árið 1998 og var vonast til að hún höfðaði til unnenda hinnar upprunalegu Bjöllu. Hönnuðir Nýbjöllunnar skópu hana innblásnir af forveranum en undir yfirbyggingunni var að finna bíl sem var keimlíkur VW Golf á þeim tíma. Nýbjallan náði aldrei nægilegum vinsældum og VW sætti gagnrýni fyrir að hafa stytt sér leið við hönn- un og þróun bílsins sem þótti heldur ekki lýtalaus. Meðal annars þess vegna tók salan aldrei flugið. Önnur kynslóð bílsins kom á göt- una 2012 og voru aksturseiginleikar hans mun betri. Það dugði þó ekki til að hressa nægilega upp á söluna. Er nú svo komið að Nýbjallan verður smíðuð eitthvað fram á næsta ár en síðan ekki söguna meir. Ekki er Volkswagen hefur ekki tekist að ná sölu nýju Bjöllunnar á flug. Nýbjallan hverfur lengur tekið við pöntunum í bílinn og ljóst að Nýbjallan hverfur af vett- vangi eftir aðeins tvær kynslóðir og þá seinni fremur skammlífa. Stoppa líka smíði Golf og Passat Þá hefur Volkswagen einnig ákveðið að taka úr framleiðslu – alla vega tímabundið – módelin Golf GTE og Passat GTE. Er skuldinni skellt á hin nýju mengunarviðmið, WLTP. Þau eru reiknuð öðru vísi en gömlu NEDC-viðmiðin og gera t.d. meiri kröfur til langdrægis. Tengil- tvinnbílar með afkastalitlar og skammdrægar rafhlöður munu í WLTP mælast bæði neyslufrekari en áður auk þess sem gróðurhúsa- loftslosunin skrifast meiri. Ætlun Volkswagen er að þróa nýj- ar og langdrægari rafhlöður fyrir Golf GTE og Passat GTE og koma að því búnu með þessi módel aftur á markað. Samkvæmt WLTP- viðmiðinu nýja verða tengiltvinn- bílar að draga að minnsta kosti 50 kílómetra á rafmagninu einu. Í tegundarskírteini Volkswagen Golf GTE er losun gróðurhúsalofts uppgefin 38 grömm á kílómetra. Í tilviki Passat GTE er losunin 40 grömm. Á þessu stigi hefur VW ekki skýrt frá hverjar losunartölurnar verða með tilliti til WLTP- viðmiðanna. agas@mbl.is Með einföldum reikningi hafa menn komist að því að hreinn gróði Ferr- ari af hverjum seldum bíl er ótrú- lega mikill. Samkvæmt útreikningum háskól- ans í Duisburg í Þýskalandi var af- gangur Ferrari af hverjum seldum bíl á fyrri helmingi ársins 69.000 evrur þegar allur tilkostnaður hafði verið dreginn frá. Jafngildir þetta um 8,5 millj- ónum íslenskra króna sem gróði Ferrari af hverjum bíl nam. Með sama tommustokknum reyndist hagnaður Porsche af hverjum bíl 17.000 evrur (2,1 millj- ón króna) og afgangur Maserati á bíl var 5.000 evrur (620.000 krón- ur). Að meðaltali var hreinn gróði af þýskum lúxusbílum 3.000 evrur, eða nálægt 10% af söluverði þeirra. Til samanburðar tapaði Tesla 11.000 evrum á hverjum seldum bíl sínum. Porsche ætlar að þéna bet- ur af hverjum bíl í framtíðinni því fyrirtækið hefur sett sér sem rekstrarmarkmið að auka rekstr- argróða sinn um sem svarar tveim- ur milljörðum evra á ári fram til 2022. Verður þessum markmiðum fyrst og fremst náð með aðhaldi og auknum sparnaði, að því er for- stjórinn Oliver Blume segir í þýsk- um fjölmiðlum. agas@mbl.is Bílarnir frá Ferrari eru ekki ódýrir og virðist að álagningin spili þar inní. Græða vel á hverjum bíl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.