Morgunblaðið - 21.08.2018, Side 10

Morgunblaðið - 21.08.2018, Side 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2018 Ford F-350 King Ranch Litur: Ruby red, java að innan. 6,7L Diesel ,440 Hö, 925 ft of torque með upphituð/loft- kæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart og trappa í hlera, Driver altert-pakki, Trailer tow camera system og airbag í belti í aftursæti. Öll standsetning er innifalin í verði ásamt ábyrgð og þjónustu. VERÐ 10.690.000 m.vsk 2018 Ram 3500 Limited Tungsten Litur: Svartur Loftpúðafjöðrun, Aisin sjálfskipting, upphitanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, 6,7L Cummins Tungsten Edition. VERÐ 9.680.000 m.vsk 2018 Ford F-350 King Ranch Litur: Oxford white, Mesa brown að innan. 6,7L Diesel ,440 Hö, 925 ft of torque. Með upphituð/loft- kæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart og trappa í hlera, Driver altert-pakki, Trailer tow camera system og airbag í belti í aftursæti. Öll standsetning er innifalin í verði ásamt ábyrgð og þjónustu. Laus aðra viku í ágúst. VERÐ 10.690.000 2018 Ford F-350 Limited Litur: Stone Grey / Cocoa að innan. 6,7L Diesel ,440 Hö, 925 ft of torque með sóllúgu (twin panel moon roof), upphituð/loftkæld sæti, fjarstart, trappa í hlera og Driver altert-pakki. VERÐ 10.890.000 m.vsk Fyrr í mánuðinum hleypti Bíla- blaðið af stokkunum stórri ljós- myndakeppni í samvinnu við Toyota á Íslandi og Málning- arvörur. Keppnin fer fram í fjór- um lotum, frá ágúst til nóvember, þar sem almenningur velur bestu myndirnar í facebookkosningu. Tíu bestu myndir hvers mánaðar fara í úrslit og verða lagðar fyrir sérstaka dómnefnd. Höfundar þeirra þriggja mynda sem fá flest atkvæði í hverri lotu fá í verðlaun veglega gjafakörfu með Meguiar’s-bón- og hreinsivör- um frá Málningarvörum. Dóm- nefnd sérfræðinga velur síðan bestu myndina og fær höfundur hennar í verðlaun ferð fyrir tvo á bílasýninguna í Genf í mars. Óhætt er að segja að keppnin hafi farið vel af stað. Þrátt fyrir stuttan aðdraganda bárust 20 myndir í keppni ágústmánaðar. Allar endurspegla myndirnar brennandi bílaáhuga ljósmyndara á ólíkan hátt, og myndefnið allt frá nýjum sportbílum yfir í ryðg- aða gamla jálka, frá kappakstri og sýningum yfir í rómantískar sól- arlagsmyndir í fjörunni. Sigurvegari facebookkosning- arinnar er Norvell Jósef Salinas sem myndaði hvítan BMW 330E við Kleifarvatn. Í öðru sæti hafn- aði mynd Atla Þórs Duffield af Nissan Navara NP300 í Krýsuvík og Jón Steinar Sæmundsson lenti í þriðja sæti með mynd af sportj- eppa við Hópsnesvita að næt- urlagi, böðuðum ljóma norðurljós- anna. Áhugasamir geta sent myndir fyrir keppni septembermánaðar á netfangið bill@mbl.is. Nánari upp- lýsingar um keppnina má finna á facebooksíðu Bílablaðs Morg- unblaðsins, Facebook.com/ bilafrettir. ai@mbl.is Dramatískt landslag og draumabílar Ljósmyndakeppni Bílablaðs Morgunblaðsins hefst með látum og tóku tuttugu ljósmyndarar þátt í fyrstu umferð á Facebook-síðu blaðsins. Ljósmynd / Jón Steinar Sæmundsson Norðurljósin leika á himni yfir sportjeppa við Hópsnesvita í Hópsnesi í nágrenni Grindavíkur. Ljósmynd / Atli Þór Duffield Nissan Navara N300 árgerð 2017 í Krýsuvík síðasta sumar. Myndin hafnaði í öðru sæti kosningarinnar. Ljósmynd / Norvell Jósef Salinas BMW 330E við Kleifarvatn. Fallegur bíll og hrífandi landslag skapa framúrskarandi ljósmynd. Ljósmynd / Kristinn Arnar Hauksson Porsche 911 GT2 RS myndaður á sýningu hjá Bílabúð Benna með tölvugerðan bakgrunn í stíl við lakkið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.