Morgunblaðið - 23.08.2018, Side 1
ÁSKORANIR Á BÍLAMARKAÐNUMTRYGGJA BETRI AÐGANG
artól sem eiga að tryggja að fólk tolli vel í tískunni
Nú ætti fólk sem leitar logandi ljósi að
iðnaðarmanni að geta andað léttar.
Forritið MittVerk stuðlar að því.
VIÐSKIPTA
4
4
Heyrn
Unnið í samvinnu við
Það hefur engin logmolla ríkt á bílamarkaði frá því
að María Jóna Magnúsdóttir tók við sem fram-
kvæmdastjóri Bílgreinasambandsins.14
FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Harðari samkeppni í steypu
Nú í vikunni rann fyrsta steypan
úr steypustöð nýstofnaðs fyr-
irtækis sem nefnist Steinsteypan.
Þar er um að ræða fyrirtæki sem
nokkrir verktakar í jarðvegsvinnu
ásamt öðrum fjárfestum hafa
stofnað til á sviði steypufram-
leiðslu. Í dag eru það tvö stórfyr-
irtæki sem skipta milli sín lang-
stærstum hluta steypumarkaðarins
sem telur um 450 til 500 þúsund
rúmmetra framleiðslu á ári. Það
eru fyrirtækin BM Vallá og
Steypustöðin. Fyrirtækin velta um
4 milljörðum á markaðnum hvort
um sig. Heimildir ViðskiptaMogg-
ans herma að forsvarsmenn Stein-
steypunnar hafi séð tækifæri til
innkomu á markaðinn, m.a. með
tilliti til hærra þjónustustigs og
styttri afgreiðslufrests. Þannig
hyggst fyrirtækið m.a. bjóða upp á
steypuafgreiðslu á kvöldin og um
helgar en slík þjónusta hefur ekki
verið í boði fram til þessa.
Stofnfjárfesting í fyrirtækinu
nemur rétt tæplega milljarði króna
og felst hún m.a. í kaupum á 12
steypubílum og tveimur dælubílum
ásamt steypustöð sem staðsett er
við Koparhellu í Hafnarfirði. Við
stofnun fyrirtækisins var allur
búnaður fluttur nýr til landsins og
hefur hann á síðustu mánuðum
verið í prufukeyrslu. Við undirbún-
inginn hefur fyrirtækið notið þjón-
ustu verkfræðistofunnar Eflu og
þá hefur uppbyggingin einnig verið
í samvinnu við heilbrigðisyfirvöld.
Steypustöðin sem sett hefur ver-
ið upp í Hafnarfirði mun á há-
marksafköstum geta framleitt 120
rúmmetra af steypu á klukku-
stund.
Eigendur hin nýja fyrirtækis eru
félagið Kaldalón Byggingar en
stærstu hluthafar þess eru þeir
Gunnar Sverrir Harðarson og Þór-
arinn Arnar Sævarsson, eigendur
fasteignasölunnar Remax, Gunnar
Hendrik, eigandi gleraugnaversl-
unarinnar Augans og Sigurður
Bollason, fjárfestir. Þá er verk-
takafyrirtækið Borgarvirki einnig
eigandi að Steinsteypunni. Eig-
endur þess eru Pétur Ingason og
Magnús Hjálmarsson. Sá fyrr-
nefndi er einnig forstjóri hins nýja
fyrirtækis. GT verktakar, sem eru
í eigu Gísla Sveinbjörnssonar og
Trausta Finnbogasonar eru hlut-
hafi og einnig félagið Grána sem er
í eigu Guðmundar Bragasonar,
Steinþórs Vals Ólafssonar og
Elínar Gautadóttur.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Öflug verktakafyrirtæki og
fjárfestar hafa stofnað nýja
steypustöð sem ætlað er
að hrista upp í markaði þar
sem BM Vallá og Steypu-
stöðin hafa verið einráð
síðustu árin.
Morgunblaðið/Eggert
Steypustöðin hefur nú hafið framleiðslu við Koparhellu 1 í Hafnarfirði.
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
1.400
23.2.‘18
23.2.‘18
22.8.‘18
22.8.‘18
1.770,26
1.650,66
130
125
120
115
110
123,55
124,85
Það var á vormánuðum 2010 sem fé-
lagarnir Simmi og Jói opnuðu Ham-
borgarafabrikkuna á Höfðatorgi. Síð-
an þá er mikið vatn runnið til sjávar
og viðskiptavinir hafa sporðrennt
hundruðum þúsunda borgara. Simmi
er nú horfinn á önnur mið en Jói er
framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Hann segir aðstæður á veitingamark-
aði í raun mun meira krefjandi nú en
þegar þeir opnuðu staðinn, örfáum
mánuðum eftir hrun.
Þrátt fyrir harða samkeppni um
starfsfólk og gríðarlegar kostn-
aðarhækkanir sækir hann fram og
sér tækifæri á sviðinu. Staðirnir eru
nú orðnir þrír og þá tengist hann
einnig uppbyggingunni Shake&Pizza
í Keiluhöllinni. „Við ákváðum að taka
reynsluna af Fabrikkunni og spegla
hana með ákveðnum hætti þarna […]
Þessi blanda af skemmtun og veit-
ingum er virkilega spennandi og þar
teljum við að séu tækifæri sem hægt
verði að sækja á komandi
árum.“
Krefjandi veitingamarkaður
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Jóhannes Ásbjörnsson stýrir hinni
sívinsælu Hamborgarafabrikku.
Hamborgarafabrikkan hef-
ur átt hvern stórleikinn á
fætur öðrum frá 2010. Að-
stæður eru þó meira krefj-
andi nú en þá.
8
Bandarískir og kínverskir
ráðamenn búast ekki við
miklu af yfirstandandi versl-
unarviðræðum
ríkjanna.
Sjá í gegnum
samningabrellur
10
Netverslunin Farfetch stefnir
á markað í Bandaríkjunum.
Verðmiðinn sem settur er á
herlegheitin hefur
valdið usla.
LEX: Himinhátt
verð á netverslun
11