Morgunblaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018FRÉTTIR
SVEIGJANLEGOGLIPUR
INNHEIMTUÞJÓNUSTA
Hafðu samband, við leysum málin með þér!
Laugavegur 182, 105 Rvk. | Sími: 510 7700 | momentum@momentum.is
Sala á bílum hefur gengið vel und-
anfarin misseri og hljóðið gott í
bílaumboðunum. En blikur eru á
lofti, og óvissa um hvort gjöld á
bíla breytist til verri vegar. María
Jóna Magnúsdóttir á eftir að
þurfa að taka á honum stóra sín-
um í nýja starfinu.
Hverjar eru helstu áskoranirnar
þessi misserin?
Ein af stóru áskorununum er að
fá svör frá stjórnvöldum um hvort,
og þá hvernig, þau ætli að bregð-
ast við nýjum Evrópustaðli
EURO6c þegar kemur að breytt-
um aðferðum við mælingar á út-
blæstri bíla. Einnig er það að
sjálfsögðu áskorun fyrir mig að
koma mér inn í þetta fjölbreytta
nýja starf.
Hvaða bók hefur haft mest áhrif
á hvernig þú starfar?
This is Lean eftir Niklas Modig
er einstaklega góð lesning og
kveikir á mörgum hugmyndum
um hvernig við getum gert hlutina
á einfaldari, skilvirkari hátt og
taka út það sem skapar ekki virði
bæði í vinnu sem og heima.
Hver var síðasti fyrirlesturinn
eða ráðstefnan sem þú sóttir?
Sótti ráðstefnuna „Áfram veg-
inn“ um framtíð samgangna á Ís-
landi sem haldin var í Hörpu. Þar
komu saman helstu sérfræðingar
heimsins og landsins á sviði sam-
göngutækni.
Hver myndi leika þig í kvikmynd
um líf þitt og afrek?
Væri það ekki bara einhver
stubbur eins og ég svo sem Selma
Hayek? Nettur töffari í henni.
Hugsarðu vel um líkamann?
Já, ég reyni allavega mitt besta.
Ég passa mig að borða nokkuð
holt en einnig fjölbreytt, hreyfa
mig reglulega og hugleiða fyrir
svefninn eftir langan dag.
Hvert væri draumastarfið ef þú
þyrftir að finna þér nýjan
starfa?
Þegar ég var yngri langaði mig
að verða flugmaður og það hefur
alltaf blundað í mér. Kannski ég
taki þyrluflug svona á hliðarlín-
unni einn daginn.
Hvað myndirðu læra ef þú feng-
ir að bæta við þig nýrri gráðu?
Það er svo mikið sem ég væri til
í að bæta við mig. Lögfræði er eitt
þar sem ég tel hana einstaklega
góðan grunn í mörgu sem maður
er að vinna með en tölvunarfræði
er einnig spennandi þar sem ég tel
að það sé framtíðin og getur opn-
að margar fjölbreyttar leiðir.
SVIPMYND María Jóna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins
Stjórnvöld þurfa að gefa svör
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
María Jóna Magnúsdóttir segir nýjan Evrópustaðal um mengunarmælingar valda óvissu. Almenningur og bílaumboð vita ekki á hverju er von.
HEILSAN
Skiptar skoðanir eru um hversu
æskilegt það er að hafa líkams-
ræktaraðstöðu heima fyrir. Sum-
um þykir hvetjandi að hafa alltaf
aðgang að hlaupabretti og lóðum
og þurfa ekki að gera sér ferð í
næstu líkamsrækt eða íþróttahús
til að reyna á hjarta og lungu.
Aðrir óttast að tækin muni enda
á að standa ónotuð, safna ryki og
skilja lítið annað eftir sig en sam-
viskubit yfir hreyfingarleysinu og
léttara veski. Síðan þykir sumum
einfaldlega fátt hallærislegra en
æfingahjól úti í horni inni í svefn-
herbergi eða stofu.
En kannski æfingatækið Tonal
geti fengið síðastnefnda hópinn til
að skipta um skoðun.
Hönnuðir Tonal hafa fundið
hugvitssamlega leið til að búa til
líkamsræktartæki fyrir heimilið
sem bæði tekur lítið pláss, býður
upp á fjölbreyttar styrktaræf-
ingar og lætur þjálfara á skjá
leiða notandann í gegnum æfing-
arnar.
Tonal notar vírakerfi sem tengt
er við „stafræn lóð“ sem stýra því
hve miklu afli notandinn þarf að
beita þegar hann togar, lyftir og
hífir. Vírarnir eru leiddir út um
tvo langa og hreyfanlega arma,
hvorn sínum megin við skjáinn í
miðjunni, og með því að breyta
stöðu armanna má breyta því
hvaðan álagið á líkamann kemur
og þannig gera hér um bil jafn-
fjölbreyttar æfingar og hægt væri
að stunda í stórum tækjasal.
Tonal kostar 2.995 dali á
www.tonal.com. ai@mbl.is
Líkamsrækt
í tæki á stærð
við spegil
Nettari verða æfingatækin ekki.
GRÆJAN
Í huga margra eru heyrnartól ekki bara til þess gerð
að hlusta á tónlist. Réttu heyrnartólin geta nefnilega
sagt heilmikið um eigandann, hjálpað honum að tolla
í tískunni og jafnvel verið eins konar stöðu-
tákn.
Þegar fyrstu iPhone-símarnir komu á
markað þótti t.d. agalega fínt að vera með
hvít Apple-heyrnartól í eyrunum, og ekki
er langt síðan annan hvern ungling
dreymdi um að spássera um bæinn með áber-
andi Beats-heyrnartól á eyrunum.
En nú eru komin á markað heyrnartól sem ganga
skrefinu lengra bæði í verði og hönnun.
Sennheiser og Dior Homme hafa tekið höndum
saman og búið til vöru sem kallast Pocket Solution.
Um er að ræða stílhrein svört heyrnartól í sérhönn-
uðu Dior-veski sem geymir heyrnartóli í n.k. vasa og
heldur snúrunni snyrtilega vafinni.
Það er óneitanlega gott að losna við snúruflækjur
og hljómurinn er örugglega góður enda Sennheiser
leiðandi á sínu sviði, en verðmiðinn gæti gengið fram
af sumum: 880 pund, liðlega 122.000 kr., hjá Dior.com
ai@mbl.is
Blanda heyrnartóla og hátísku
NÁM: Útskrifaðist með BS.c. í viðskiptafræði frá Háskólanum í
Reykjavík árið 2005; MS.c. í fjármálum og stefnumótun frá
Copenhagen Business School árið 2012.
STÖRF: Þjónustufulltrúi, sölumaður nýrra bíla og síðast yfir-
maður viðskiptatengsla hjá Toyota á Íslandi á árunum 2000 til
2010; mannauðsdeild Sony Nordic í Kaupmannahöfn 2011 til
2012; sérfræðingur og verkefnastjóri við innleiðingu straumlínu-
stjórnunar í Arion banka frá 2013 til 2016; framkvæmdastjóri
viðskiptatengsla hjá Heklu hf. 2016 og framkvæmdastjóri sölu-
sviðs hjá Heklu hf. 2016 til 2018. Framkvæmdastjóri Bílgreina-
sambandsins frá 2018.
ÁHUGAMÁL: Ég hef verið frekar orkumikill þegar kemur að
hreyfingu og elska að hafa hana fjölbreytta, s.s. að ganga á fjöll,
hlaupa eða lyfta lóðum í ræktinni. Hins vegar hafa skíði einnig
skipað stóran sess í mínu lífi þar sem ég æfði þau til margra ára
og er fátt betra en að fara upp í brekkur og taka nokkrar ferðir á
sólríkum degi.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Í sambúð með Emil Þór Vigfússyni við-
skiptafræðingi ásamt tveimur sonum hans.
HIN HLIÐIN