Morgunblaðið - 23.08.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 23.08.2018, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018VIÐTAL góðum störfum. Í mínu tilviki var þetta í raun léttir. Ég var á markaðsdeild Landsbankans og hafði verið um nokkurra ára skeið. Þar hafði á einni nóttu staðan breyst gríðarlega. Deildin minnkaði um helming og fyrirtækið fór úr því að vera eitt sterkasta vörumerki landsins í að vera fyrirtæki sem margir töldu að hefði í raun svikið sig. Ég var einn af þeim heppnu og hélt mínu starfi og var í heilt ár eftir hrun að vinna að því að endurreisa ímynd bankans. Það var mikilvæg reynsla að standa í þessu öllu en maður var hættur að hlakka til að mæta í vinn- una.“ Stofnuð frammi fyrir alþjóð En þeir félagar fóru óhefðbundnar leiðir og óvæntar við stofnun Fabrikkunnar. Það var í þeirra anda. „Félagar okkar í sjónvarpinu voru eins og aðrir undrandi á þessu en þeim þótti þetta samt mjög spennandi. Þannig töldu Þór Freys- son hjá Saga Film og Pálmi Guðmundsson hjá Stöð 2 að þetta væri efni sem ætti erindi við al- menning, að tveir menn sem aldrei hefðu rekið veitingastað ætluðu að gera einmitt það. Það varð því úr að við framleiddum raunveruleika- þátt um stofnun staðarins og lokaþátturinn var í raun sjálfur opnunardagurinn. Veitingarekst- ur snýst að miklu leyti um væntingastjórnun og ég var mjög hræddur um að við værum að skjóta yfir markið og gætum ekki risið undir Fyrir tuttugu árum settust félagarnir Jóhann- es Ásbjörnsson og Sigmar Vilhjálmsson fyrir framan míkrafóna á útvarpsstöð sem fyrir löngu er hætt starfsemi. Þar kom í fyrsta sinn fyrir alþjóð tvíeyki sem hefur marga fjöruna sopið á vettvangi fjölmiðla en síðasta áratuginn á vettvangi sem þeir félagarnir höfðu lengi átt sér draum um að reyna sig á. Síðustu vendingar á þeim vettvangi vöktu nokkra athygli og ýmsir spurðu sig hvort nú væri vík milli hinna gömlu vina sem oftast er minnst á eins og um einn og sama manninn sé að ræða – Simmi og Jói. „Það er alls ekki skrítið að fólk velti því fyrir sér. En stundum er veruleikinn ekki svona krassandi. Það er ekki óeðlilegt eftir svona langa samfylgd og stórt og mikið verkefni eins og stofnun Hamborgarafabrikkunnar og síðar Keiluhallarinnar, að það komi fram vilji til að breyta til og takast á við nýjar áskoranir. Ég þekki engan mann sem býr yfir meiri hæfi- leikum til að hrinda af stað stórum verkefnum en Simmi. Hann er einfaldlega betri en aðrir í því. Ég held að það séu þeir hæfileikar sem hafi valdið því að hann vildi söðla um. Þótt hann sé búinn að selja er hann enn í þessum slag með okkur og hefur unnið ótrúlegt starf við uppbygginguna á Keiluhöllinni og Shake- &Pizza.“ Og sannarlega hefur verkefnið sem þeir fé- lagar ýttu úr vör árið 2009 vaxið að umfangi. Á þessu ári stefnir í að þrír staðir Hamborgara- fabrikkunnar velti um 750 milljónum króna. Fyrrnefnd Keiluhöll í Egilshöllinni mun líkast til slaga í 900 milljóna veltu og samt segir Jó- hannes að fyrirtækið sé enn í vexti. „Við höfðum lengi rætt um þann möguleika að opna veitingastað. Svo kom Simmi með þessa hugmynd að Hamborgarafabrikkunni og ýtti henni áfram af meiri alvöru.“ Kjöraðstæður til að stofna staðinn Þannig réðust þeir félagar í þetta verkefni, örfáum mánuðum eftir að bankarnir hrundu með braki og brestum og samfélagið litaðist allt af þeim hamförum í kjölfarið. „Eftir á að hyggja voru þetta kjöraðstæður þó að flestir hafi talið þetta algjört glapræði. Þarna höfðum við tækifæri til að koma með nýja og ferska hugmynd, eitthvað jákvætt og uppbyggilegt í samfélag sem var allt á nei- kvæðum nótum og í hálfgerðu sjokki. Það var í raun engin samkeppni um athygli fólks úr þessari áttinni. En það var líka annað sem þetta ástand leiddi óhjákvæmilega af sér. Það var auðvelt að fá öfluga iðnaðarmenn, mat- reiðslumenn, arkitekta og ýmsa aðra til að vinna með sér. Þá var líka auðvelt að fá hús- næði undir reksturinn á góðum kjörum. Þetta vann því allt með okkur í raun.“ Jói segir að margir hafi verið undrandi á þessu framtaki þeirra félaga og ekki síst hafi sú undrun birst í augum fjölskyldna þeirra. „Þetta var á þeim tíma þegar allir voru að reyna að halda sjó, enda óvissan mikil bæði um lán og starfsöryggi. En ákvörðunin var í sjálfu sér einföld fyrir okkur. Við sögðum báðir upp athyglinni og væntingunum.“ Hann viðurkennir að þættirnir hafi verið kryddaðir en þar hafi hins vegar verið birt raunsönn lýsing á ferlinu. Þegar kom að opnun staðarins hafi þeir félagar hins vegar rennt al- gjörlega blint í sjóinn. „Ég man nóttina fyrir opnun. Ég var mjög stressaður og ég held að hvorugur okkar hafi sofið mikið. En við fengum fljúgandi start. Í raun alveg lygilegt og það má segja að hvert borð hafi verið setið allan opnunartíma stað- arins fyrsta árið. Við seldum að mig minnir um 300 þúsund hamborgara það ár. Það er óvenju- legt þegar um stofnun veitingastaðar er að ræða og í raun hálfgerð klikkun. En það hafðist.“ Stórt verkefni sem þurfti fjármagn En þeir félagar vissu að það væri ekki nóg að vera með vel útfærða hugmynd og viljann til verks. Það þurfti einnig fjármagn til þess að koma þessu stóra verkefni á laggirnar. „Við þreifuðum fyrir okkur um þetta og fengum loks með okkur Skúla Gunnar Sigfús- son inn í verkefnið sem fjárfesti. Hann þekkti veitingarekstur í gegnum fyrirtæki sitt, Subway, og hefur frá upphafi farið með fjórð- ungshlut í Hamborgarafabrikkunni“. Við- skiptaráðgjafi okkar, Snorri Marteinsson, varð svo skömmu síðar framkvæmdastjóri og hlut- hafi í fyrirtækinu. Líkt og fram hefur komið á opinberum vett- vangi hefur kastast í kekki milli Skúla og Simma vegna annarra verkefna en þeirra sem tengjast Hamborgarafabrikkunni. Jói segir það ekki ástæðuna fyrir brotthvarfi þess síð- arnefnda úr eigendahópnum en að þessi mál hafi þó eðli máls samkvæmt reynt á samstarfið. Veitingaár eru hundaár Líkt og áður greinir var staðurinn fullur frá morgni til kvölds fyrstu misserin. Jóhannes segir að slíkt ástand geti hins vegar ekki varað að eilífu í veitingarekstri. Spennandi áskorun að ha ” Ég man nóttina fyrir opnun. Ég var mjög stressaður og ég held að hvorugur okkar hafi sofið mikið. En við fengum fljúgandi start. Í raun alveg lygilegt og það má segja að hvert borð hafi verið setið allan tímann sem staðurinn var opinn fyrsta árið. Við seldum að mig minnir um 300 þúsund hamborgara það ár. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Þegar íslenskt samfélag var í sárum eftir bankahrunið settust tveir landsþekktir félagar niður og veltu fyrir sér hvort þeir gætu látið gaml- an draum rætast. Úr varð hugmynd sem síðar varð einhver vinsælasti veitingastaður landsins. Nú þegar styttist í níu ára afmæli Hamborg- arafabrikkunnar stendur fyrirtækið á tímamótum. Annar stofnendanna tveggja hefur selt sinn hlut en hinn horfir fram á nýjar áskoranir á veit- ingamarkaðnum. Það er aldrei dauð stund hjá framkvæmdastjóranum og að loknu spjalli við blaðamann tók við stíf og skemmtileg dagskrá á Höfðatorgi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.