Morgunblaðið - 20.08.2018, Síða 1
MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2018
Blak Íslensku landsliðinu í karla- og kvennaflokki stóðu í ströngu í undankeppni Evrópumótsins í gær þegar
þau mættu sterkum andstæðingum í íþróttahúsinu í Digranesi í annarri umferð keppninnar 2
Íþróttir
mbl.is
lentum snemma undir, 7:1 og 9:2.
Okkur tókst að jafna metin fyrir hálf-
leik þegar staðan var 12:12. Síðan var
jafnt á öllum tölum fram yfir miðjan
síðari hálfleik að Svíar tóku af skarið.
Mikill kraftur fór í það hjá strákun-
um að jafna metin eftir slæma byrj-
un. Það kom niður á okkur þegar á
leikinn leið,“ sagði Heimir sem var
stoltur af liði sínu og sagði leikmenn
eiga að vera ánægða með frábæran
árangur á mótinu.
Annað sinn í úrslitum
„Eftir stendur hinsvegar að þetta
er annað íslenska landsliðið sem hef-
ur leikið úrslitaleik á EM. Það er stór
afrek. Menn eiga og mega vera stolt-
ir yfir árangri sínum. Strákarnir
unnu silfurverðlaun fyrir mikla vinnu
fyrir mótið á þegar á hólminn var
komið hér í Króatíu. Allt mótið voru
þeir að vinna sér inn fyrir silf-
urverðlaununum. Það gerðu þeir
með elegans og bravör,“ sagði Heim-
ir.
„Þegar frá líður þá standa silf-
urverðlaunin upp úr hjá þessum
strákum eftir þetta mót. Ég sé í þess-
um hópi marga flotta og gríðarlega
efnilega handboltamenn sem eiga
eftir að láta enn meira til sín taka á
næstu árum. Okkar þjálfaranna er að
halda áfram að byggja á þessum ár-
angri með strákunum og reyna um
leið að auka breiddina í hópnum. Lið-
ið hefur sýnt það og sannað að þess
er framtíðin,“ sagði Heimir.
Eins og Heimir benti á þá var
þetta í annað sinn sem íslenskt lands-
lið leikur um gullverðlaun á Evr-
ópumóti. Fyrsta liðið sem gerði það
var U19 ára landsliðið sem vann EM
fyrir 15 árum, þá einnig undir stjórn
Heimis. „Árangurinn að þessu sinni
er svo sannarlega til fyrirmyndar,“
sagði Heimir.
Haukur stóð upp á mótinu
Í mótslok var Selfyssingurinn
Haukur Þrastarson valinn besti eða
mikilvægasti leikmaður mótsins.
Kom það fáum á óvart enda fór hann
á kostum á mótinu og m.a. sagði
þjálfari þýska landsliðsins að Haukur
væri besti handknattleiksmaður Evr-
ópu í þessum aldursflokki. Haukur
skoraði 47 mörk í sex leikjum og átti
fjölda stoðsendinga. Tölfræði móts-
ins lá ekki fyrir í gærkvöldi en líklegt
má telja að Haukur hafi orðið stoð-
sendingakóngur mótsins þrátt fyrir
að hafa lítið sem ekkert leikið með í
viðureigninni við Spánverja í milli-
riðli.
Svíinn Ludvig Hallbäck var
markakóngur mótsins með 56 mörk.
Hann skoraði 11 mörk í úrslita-
leiknum í gær og var illviðráð-
anlegur.
Haukur var ekki eini leikmaður ís-
lenska liðsins sem fékk einstaklings-
verðlaun í mótslok. Dagur Gautason
var valinn í úrvalslið mótsins og var
þar af leiðandi besti hægri horna-
maðurinn. Dagur lék afar vel í mörg-
um leikjum mótsins, ekki síst í við-
ureigninni við Króata í
undanúrslitum. Færanýting hans var
einstaklega góð.
Mörk Íslands í úrslitaleiknum: Ei-
ríkur Guðni Þórarinsson 7, Arnór
Snær Óskarsson 4, Dagur Gautason
4, Haukur Þrastarson 4, Einar Örn
Sindrason 2, Goði Ingvar Sveinsson
2, Tumi Steinn Rúnarsson 2, Jón B.
Freysson 1, Stiven Tobar Valencia 1.
Ljósmynd/HRS Foto
Silfurliðið Efri röð f.v.: Andrés Kristjánsson sjúkraþjálfari, Heimir Ríkarðsson þjálfari, Haukur Þrastarson, Viktor Andri Jónsson, Tjörvi Týr Gíslason,
Hafsteinn Óli Ramos Rocha, Jón Bald Freysson, Eiríkur Guðni Þórarinsson, Einar Örn Sindrason, Þorleifur Rafn Aðalsteinsson, Magnús Kári Jónsson að-
stoðarþjálfari, Björn Eiríksson liðsstjóri, Óskar Bjarni Óskarsson aðstoðarmaður. Neðri röð f.v. Tumi Steinn Rúnarsson, Dagur Gautason, Stiven Tobar
Valencia, Viktor Gísli Hallgrímsson, Sigurður Dan Óskarsson, Arnar Máni Rúnarsson, Goði Ingvar Sveinsson og Arnór Snær Óskarsson.
Unnu vel fyrir silfrinu
U18 ára landslið Íslands mátti játa sig sigrað í úrslitaleik á EM í Króatíu
Mega vera stoltir af árangri sínum segir þjálfarinn sem segir efnin vera mörg
HANDBOLTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Því miður þá hittum við ekki á góð-
an leik,“ sagði Heimir Ríkarðsson,
þjálfari U18 ára landsliðs karla í
handknattleik, í samtali við Morg-
unblaðið í gær eftir að íslenska liðið
tapaði fyrir Svíum með fimm marka
mun, 32:27, í úrslitaleik Evrópumóts-
ins sem fór fram í Króatíu. „Það átti
enginn í okkar liði toppleik, menn
voru nokkuð frá sínu besta,“ sagði
Heimir þegar Morgunblaðið náði af
honum tali eftir að hafa tekið við silf-
urverðlaunum á Evrópumótinu. Dan-
ir urðu í þriðja sæti eftir sigur á Kró-
ötum, 26:24. Norðurlandaþjóðirnar
fara heim með öll verðlaun mótsins.
„Yfirhöfuð vantaði okkur betri
vörn og markvörslu auk þess sem
sóknarleikurinn var ekki nógu góður.
Mistökin voru of mörg. Auk þess
vantaði okkur fleiri mörk eftir hraða-
upphlaup til þess að vinna þennan
leik.
Við fórum illa af stað í leiknum og
Kylfingurinn
Birgir Leifur
Hafþórsson lék í
gær sinn fjórða
og síðasta hring
á Nordea Mast-
ers-mótinu í golfi
en leikið er í
Gautaborg í Sví-
þjóð. Hann lék
hringinn í dag á
71 höggi eða
einu yfir pari. Það var jafnframt
heildarskor hans eftir hringina
fjóra.
Hann náði talsvert á strik í gær
eftir afar slæman hring á þegar
hann lék á fimm höggum yfir pari.
Þar áður hafði hann leikið annan
hringinn á pari og þann fyrsta á
þremur höggum undir.
Birgir Leifur fór hann ágætlega
af stað í gærmorgun en fékk enn
skramba og einn þrefaldan skolla
sem settu svip sinn á hringinn.
Hann lauk keppni með sex fugla og
tvo skolla þar að auki.
Birgir lýkur því keppni alls á
einu höggi yfir pari í 68.-72. sæti en
mótið er hluti af Evrópumótaröð-
inni, þeirri sterkustu í álfunni.
sport@mbl.is
Þriðji hringur
reyndist dýr
Birgir Leifur
Hafþórsson
Sundmaðurinn
Róbert Ísak
Jónsson gerði
það heldur bet-
ur gott á Evr-
ópumóti fatl-
aðra í sundi í
Dublin á Írlandi
um helgina. Ró-
bert Ísak vann
til tvennra silf-
urverðlauna og
setti um leið tvö Íslandsmet. Á
laugardaginn kom Róbert Ísak
annar í mark í 100 m flugsundi í
flokki S14 á tímanum 59,61 sek-
úndu og varð þar með fyrstur ís-
lenskra sundmanna í þessum
flokki til að synda greinina á
skemmri tíma en einni mínútu.
Fyrra met átti Jón Margeir
Sverrisson 60,17 sekúndur.
Í gær, á lokadegi mótsins,
bætti Róbert Ísak öðrum verð-
launum í safnið þessa helgina
þegar hann kom annar í mark í
200 m fjórsundi á 2.14,16 mín-
útum. Róbert Ísak átti sjálfur
fyrra Íslandsmet í greininni,
2.15,06.
Auk þessa varð Sonja Sigurð-
ardóttir í 5. sæti í úrslitum í 50 m
baksundi í gær á tímanum 1.03,23
mínútur en var nokkuð frá eigin
Íslandsmeti.
Thelma Björg Björnsdóttir
hafnaði í 8. sæti í 100 m skrið-
sundi á 1.23,90 og var skammt
frá eigin Íslandsmeti í greininni.
iben@mbl.is
Róbert vann
tvenn verð-
laun í Dublin
Róbert Ísak
Jónsson
ÍÞRÓTTIR