Morgunblaðið - 20.08.2018, Síða 2

Morgunblaðið - 20.08.2018, Síða 2
Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is „Við sýndum miklu betri takta í dag en gegn Belgíu í síðasta leik. Við lögðum áherslu á það, í aðdraganda leiksins, að æfa uppspilið betur og mér fannst það takast vel og þetta var mikil bæting hjá liðinu frá leikn- um gegn Belgum,“ sagði Thelma Dögg Grétarsdóttir, leikmaður ís- lenska kvennalandsliðsins í blaki í samtali við Morgunblaðið í Digra- nesi í gær eftir 3:0-tap liðsins gegn Slóveníu í undankeppni EM. „Við ætluðum okkur að standa í Slóvenunum og gefa þeim alvöru- leik og það sama er upp á ten- ingnum með Ísrael sem við eigum í næsta leik. Þær tapa líka 3:0 á móti Slóveníu og núna er bara að fara til Ísraels og gefa allt í þetta.“ Íslenska liðið spilaði mjög vel í fyrstu og annarri hrinu og leiddi til að mynda með 4 stigum, 17:13 í fyrstu hrinunni en henni lauk með 25:18-sigri slóvenska liðsins. Þá ákvað þjálfari slóvenska liðsins að taka leikhlé og eftir það datt botn- inn aðeins úr þessu hjá íslenska lið- inu. Það sama var upp á teningnum í annarri hrinu en íslenska liðið hélt vel í við Slóvenana, þangað til líða fór á hrinuna sem lauk að lokum með 25:16-sigri Slóvena. Munu gefa allt í þetta „Við ræddum það okkar á milli í leiknum að við værum að spila mjög vel, hálfa hrinuna en svo einhvern veginn datt botninn úr þessu hjá okkur og það vantaði aðeins upp á að klára hrinurnar betur. Við vor- um búnar að fara vel yfir Slóvenana og það var í raun ekkert sem kom okkur á óvart í þeirra leik og ég er mest svekkt yfir að hafa ekki tekið eina til tvær hrinur á móti þeim því við áttum góða möguleika á því, sér- staklega miðað við það hvernig leik- urinn spilaðist.“ Íslenska liðið mætir Ísrael ytra á miðvikudaginn í undankeppni EM og Thelma segir að hún og stelp- urnar séu staðráðnar í því að gera betur. „Það er erfitt að setja fingur á það hvað það er sem veldur því að við náum ekki að klára hrinurnar betur en það var hins vegar mikill munur á leiknum núna í dag og gegn Belgum á síðasta miðvikudag. Ég held hreint út sagt að við áttum okkur ekki á því hversu mikinn séns við eigum á móti þessum liðum. Við gleymum stundum hversu sterkar við erum því við erum með öflugt lið og eigum að geta keyrt betur á þessi lið,“ sagði Thelma ennfremur í sam- tali við Morgunblaðið. „Gleymum því stundum hvað við getum“ 2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2018 Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. BLAK Bjarni Helgason bjarni@mbl.is Ákveðin skynsemi er lykillinn að ár- angri sagði Hafsteinn Valdimarsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í blaki, í samtali við Morgunblaðið í Digranesi í gær eftir 3:0 tap liðsins gegn Moldóva í undankeppni EM í gær. Íslenska liðið var lengi í gang og tapaði fyrstu tveimur hrinunum, 25:12 og 25:11, en í þriðju og síðustu hrinunni voru strákarnir óheppnir að tapa eftir að hafa leitt nánast alla hrinuna sem lauk með 25:22-sigri Moldóva. „Ég er fyrst og fremst svekktur að hafa byrjað leikinn svona illa. Eins hefði ég viljað klára þessa þriðju og síðustu hrinu, við vorum inni í henni allan tímann og þetta var okkar lang- besta hrina í leiknum. Það er þess vegna svekkjandi að hafa ekki náð að klára hana undir restina. Við vorum ekki nægilega góðir í fyrstu tveimur hrinunum, svo einfalt er það. Við skulduðum öllum þeim áhorfendum, sem mættu í Digranesið, alvöruspila- mennsku. Markmiðið var auðvitað að ná þessu í fjórar eða fimm hrinur en við náðum ekki að klára þetta í lokin því miður,“ sagði Hafsteinn. Strákarnir töpuðu ytra fyrir Sló- vakíu í Nítra á miðvikudaginn síð- asta, 3:0, en Slóvakar eru sterkasta liðið í riðlinum. Hafsteinn er hins vegar ánægður með stígandann í lið- inu. Margir að stíga fyrstu skrefin „Það er stígandi í þessu hjá okkur en við erum ennþá að vinna í því sem þjálfarinn hefur verið að leggja áherslu á. Leikurinn í dag var ekki ósvipaður leiknum í Nítra í Slóvakíu á miðvikudaginn síðasta. Það er stutt á milli leikja og við breyttum í sjálfu sér ekki miklu á milli þessara tveggja leikja. Núna þurfum við einfaldlega að halda áfram að byggja ofan á það góða sem við höfum verið að gera en það sem við þurfum helst að laga er að ná að spila góðan leik, allan tím- ann, ekki bara hálfan.“ Margir leikmenn í íslenska lands- liðinu eru að stíga sín fyrstu skref með liðinu og viðurkennir Hafsteinn að það hafi verið smá stress í mönn- um í Digranesinu í gær, til að byrja með. „Það gæti vel verið að spennustig- ið væri kannski of hátt. Ég get að sjálfsögðu ekki talað fyrir alla í liðinu en mér sýndist það svona á mönnum að það væri kannski smá stress í byrjun. Það eru margir leikmenn að stíga sín fyrstu skref með landslið- inu. Þeir voru að spila í fyrsta sinn á heimavelli í dag, fyrir framan fjöl- skyldur og vini, og það getur stund- um verið erfitt til að byrja með. Við munum hins vegar læra af þessum leik og þetta fer í reynslubankann.“ Liðið mætir Svartfjallandi ytra í Topolica, á miðvikudaginn næsta, og vonast Hafsteinn til þess að íslenska liðið geti gefið Svartfellingum alvöru- leik. Stefnan sett á raunhæf markmið „Markmiðið fyrir leikinn gegn Svartfjallalandi er að spila þrjár góð- ar hrinur. Við vitum það fyrirfram að þessi lið sem við erum að mæta eru öll mjög sterk. Það væri gaman að vinna eina til tvær hrinur og auðvitað leikinn sjálfan, ef út í það er farið, en það er kannski ekki raunhæft mark- mið eins og staðan er í dag. Við vilj- um fyrst og fremst gefa Svartfell- ingum alvöruleik og það er aðalmarkmiðið okkar.“ Íslenska liðið er lágvaxnara en andstæðingarnir í undankeppninni og segir Hafsteinn að íslenska liðið þurfi að beita öðrum brögðum til þess að gefa mótherjum sínum al- vöruleiki. „Við reynum fyrst og fremst að vera klárari en andstæðingar okkar. Ef við erum í erfiðri stöðu þá reynum við sem dæmi að koma boltanum á uppspilarann okkar svo við náum tveimur mönnum í blokk. Þetta er sem dæmi eitt af þeim atriðum sem við erum að leggja áherslu á og reyna að venja okkur á,“ sagði Hafsteinn Valdimarsson ennfremur í samtali við Morgunblaðið. Þurfa að vera klárari en ógnarsterkir andstæðingar  Fyrsti leikur á heimavelli reyndist erfiður  Íslenska liðið of lengi í gang Morgunblaðið/Valli Hávörn Íslenska liðinu gekk oft á tíðum erfiðlega að koma boltanum framhjá hávöxnu liði Moldóva.  Björn Bergmann Sigurðsson var í lykilhlutverki er Rostov vann 4:0- stórsigur á Jenisei í rússnesku úrvals- deildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Björn Bergmann skoraði fyrstu tvö mörk Rostov, á 31. og 35. mínútu, áður en hann var tekinn af velli á þeirri 77. Rostov er því aftur komið á sigurbraut eftir tap í síðasta leik en liðið hefur nú unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum tímabilsins og er í 4. sæti með níu stig.  Andri Rúnar Bjarnason var á skot- skónum fyrir Helsingborg í 2:0-sigri á Landskrona í sænsku B-deildinni í knattspyrnu í gær. Andri var í byrj- unarliði Helsingborg og spilaði í 74. mínútur en hann kom heimamönnum í 1:0 á 24. mínútu með áttunda deild- armarki sínu á tímabilinu.  Möguleikar Gunnhildar Yrsu Jóns- dóttur og samherja hennar í Utah Ro- yals um að komast í fjögurra liða úr- slitakeppnina um bandaríska meistaratitilinn dvínuðu í fyrra- kvöldþegar liðið gerði jafntefli við Sky Blue á útivelli, 2:2. Með sigri hefði Utah náð Chicago Red Stars að stigum í fjórða sætinu en Chi- cago er með 31 stig og á þrjá leiki eftir, Orlando Pride er með 30 stig og á þrjá leiki eftir, Utah 29 stig og tvo leiki eftir og Houston Dash 29 stig og þrjá leiki eftir. Þessi fjögur lið berjast um eitt til tvö sæti í úrslitum ásamt Portland Thorns sem er í þriðja sæti með 33 stig og á þrjá leiki eftir. Gunnhildur lék að vanda allan leikinn með Utah en hún hefur verið í byrj- unarliði í öllum 22 leikjum liðsins, hefur aldrei verið skipt af velli, og er því búin að spila hverja ein- ustu mínútu á tímabilinu. Eitt ogannað Morgunblaðið/Valli Fögnuður Stelpurnar fóru mjög vel af stað gegn Slóveníu í Digranesi í gær og voru óheppnar að vinna ekki fyrstu hrinuna eftir að hafa leitt lengi vel.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.