Morgunblaðið - 20.08.2018, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 20.08.2018, Qupperneq 5
ÍÞRÓTTIR 5 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2018 Grindavíkurvöllur, Pepsi-deild karla, 17. umferð, sunnudag 19. ágúst 2018. Skilyrði: Flottar aðstæður. Hægur vindur og 11° hiti á celsíus. Skot: Grindavík 9 (4) – Stjarnan 14 (8). Horn: Grindavík 4 – Stjarnan 9. Grindavík: (5-4-1) Mark: Kristijan Ja- jalo. Vörn: Marinó Axel Helgason (Nemanja Latinovic 68), Matthías Örn Friðriksson, Sigurjón Rúnarsson, Björn Berg Bryde, Elias Tamburini. Miðja: José Sito Seoane (William Daniels 79), Rodrigo Gómez, Sam Hewson, Aron Jóhannsson. Sókn: René Joensen. Stjarnan: (4-4-2) Mark: Haraldur Björnsson. Vörn: Jóhann Laxdal, Brynjar Gauti Guðjónsson, Daníel Lax- dal, Jósef Kristinn Jósefsson. Miðja: Þorsteinn Már Ragnarsson, Baldur Sigurðsson, Eyjólfur Héðinsson, Hilm- ar Árni Halldórsson. Sókn: Guðjón Baldvinsson, Guðmundur Steinn Haf- steinsson (Þorri Geir Rúnarsson 52). Dómari: Jóhann Ingi Jónsson og Pétur Guðmundsson. Jóhann Ingi fór meidd- ur af velli á 66. mínútu. Áhorfendur: 452. Grindavík – Stjarnan 2:2 Akureyrarvöllur, Pepsi-deild karla, 17. umferð, sunnudag 19. ágúst 2018. Skilyrði: Léttskýjað og smá gola. Skot: KA 3 (0) – KR 11 (8). Horn: KA 4 – KR 7. KA: (4-3-3) Mark: Aron Elí Gíslason. Vörn: Hrannar B. Steingrímsson, Aleksandar Trninic, Callum Williams, Milan Joksimovic. Miðja: Archange Nkumu (Ýmir Már Geirsson 81), Bjarni Mark Antonsson, Elfar Árni Aðalsteinsson (Steinþór Freyr Þor- steinsson 69). Sókn: Vladimir Tu- fegdzic, Ásgeir Sigurgeirsson, Hall- grímur Mar Steingrímsson. KR: (4-4-2) Mark: Beitir Ólafsson. Vörn: Arnór S. Aðalsteinsson (Pablo Punyed 49), Aron Bjarki Jósepsson, Gunnar Þór Gunnarsson, Kristinn Jónsson. Miðja: Óskar Örn Hauks- son, Finnur Orri Margeirsson, Skúli Jón Friðgeirsson, Pálmi Rafn Pálma- son. Sókn: Kennie Chopart (Atli Sig- urjónsson 77), Björgvin Stefánsson. Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson – 6 . Áhorfendur: 865. KA – KR 0:1 KR liðið hefur nú haldið markinu hreinu í fjórum af síðustu fimm deild- arleikjum liðsins en vörn KR var góð í gær og var Gunnar Þór Gunnarsson þar fremstur í flokki. Sigurinn þýðir að liðið er nú komið fimm stigum á undan KA þegar fimm leikir eru eft- ir. Ljósmynd/Þórir Tryggvason Barátta Hrannar Björn Steingrímsson leikmaður KA t.v. og KR-ingurinn Pálmi Rafn Pálmason berjast um boltann á Akureyrarvelli. Sanngjarn sigur KR-inga nyrðra  Sóknarleikur KA var ekki burðugur 0:1 Kennie Knak Chopart 67.Skoraði með utanfótarskoti úr teignum eftir gott samspil við Pálma Rafn. I Gul spjöld:Finnur Orri Margeirsson (KR) 88. (óíþróttamannsleg hegðun), Ýmir Már Geirsson (KA) 89. (brot), Aleksandar Trninic (KA) 90. (brot), Hrannar Björn Steingrímsson (KA) 90. (brot). I Rauð spjöld: Engin. MMM Enginn. MM Enginn. M Pálmi Rafn Pálmason (KR) Gunnar Þór Gunnarsson (KR) Finnur Orri Margeirsson (KR) Kennie Knak Chopart (KR) Aron Elí Gíslason (KA) Callum Williams (KA) mínútu þegar Willian Daniels bjarg- aði stigi fyrir heimamenn með góðu marki eftir undirbúning Rodrigo Ma- teo. Ljósmynd/Víkurfréttir Sótt William Daniels, leikmaður Grindavíkur sækir að Haraldi Björnssyni markverði Stjörnunnar á Grindavíkurvelli í gær. Æsispennandi loka- mínútur í Grindavík  William Daniels jafnaði á 89. mínútu 1:0 Aron Jóhannsson 40. meðskoti af stuttu færi eftir fyr- irgjöf Elias Tamburini. 1:1 Sjálfsmark 57. Hilmar Árni áskot úr aukaspyrnu sem fer stöngina og í Kristijan Jajalo og það- an í markið. 1:2 Guðjón Baldvinsson 86. meðskoti í fjærhornið eftir skyndisókn. 2:2 William Daniels 89. meðskoti eftir stundusendingu frá Rodrigo Mateo. I Gul spjöld:José Sito Seoane (Grindavík) 28. (leiktöf), Guðmundur Steinn Haf- steinsson (Stjörnunni) 50. (brot), René Joensen (Grindavík) 63. (brot), Baldur Sigurðsson (Stjörnunni) 74. (brot), William Daniels (Grindavík) 90. (brot). I Rauð spjöld: Engin. M Aron Jóhannesson (Grindavík) José Sito Seoane (Grindavík) Elias Tamburini (Grindavík) Björn Berg Bryde (Grindavík) Guðjón Baldvinsson (Stjörnunni) Jóhann Laxdal (Stjörnunni) Eyjólfur Héðinsson (Stjörnunni) Á AKUREYRI Baldvin Kári Magnússon sport@mbl.is KR-ingar unnu mikilvægan sigur á KA í baráttunni um fjórða sæti deild- arinnar á Akureyri í gær. Kennie Chopart gerði eina mark leiksins. Leikurinn fór rólega af stað og var afar lítið um færi. Það var augljóst að leikmenn liðanna vissu hversu mik- ilvægur leikurinn var. Fyrir leikinn voru KA-menn aðeins tveimur stigum á eftir KR og hefðu því með sigri get- að komist upp fyrir Vesturbæinga. Fyrri hálfleikurinn einkenndist því af mikilli baráttu og var mikið um ná- vígi. Staðan var 0:0 í hálfleik. KR-ingar voru betra liðið í seinni hálfleik og náðu yfirhöndinni. Þeir komust verðskuldað yfir með marki frá Kennie Chopart á 67.mínútu. Markið kom eftir gott þríhyrnings- spil við Pálma Rafn sem sendi Dan- ann inn fyrir vörn KA. Chopart skor- aði með góðu skoti sem Aron Elí réði ekki við, afar vel klárað. KR-ingar voru öflugri eftir markið en áfram var lítið um færi. Mörkin urðu ekki fleiri og 1:0 sigur KR staðreynd. Sóknarleikur KA var ekki góður í gær. Liðið sem skapar sér vanalega alltaf opin færi, náði því ekki gær og var helsta ógn þeirra úr föstum leik- atriðum en KR vörnin stóð þau áhlaup af sér. Tapið í gær var fyrsta tap KA á heimavelli síðan liðið tapaði gegn Stjörnunni 14. júní síðastliðinn. 4. deild karla B Hörður Í. – SR............................................1:4 Reynir S. 13 11 2 0 45:9 35 Skallagrímur 13 9 1 3 40:16 28 Elliði 13 9 0 4 33:18 27 Hvíti riddarinn 13 6 2 5 32:36 20 Mídas 13 5 1 7 28:36 16 SR 13 3 2 8 25:37 11 Hörður Í. 13 3 0 10 24:51 9 Úlfarnir 13 1 2 10 11:35 5 4. deild karla C GG – KFS....................................................2:2 Álftanes 13 10 2 1 48:5 32 KFS 13 8 4 1 43:12 28 Árborg 13 8 3 2 43:15 27 GG 13 8 2 3 37:21 26 Álafoss 13 5 2 6 23:27 17 Kóngarnir 13 2 1 10 25:61 7 Afríka 13 2 0 11 15:64 6 Ísbjörninn 13 1 2 10 12:41 5 4. deild karla D ÍH – Kormákur/Hvöt................................ 2:1 Geisli A. – Kría........................................... 3:1 Kórdrengir 12 8 1 3 26:12 25 ÍH 11 6 2 3 19:23 20 Kormákur/Hvöt 11 4 4 3 21:11 16 Kría 11 4 3 4 18:17 15 Léttir 11 4 3 4 16:18 15 Geisli A. 11 2 2 7 11:19 8 Vatnaliljur 11 1 5 5 12:23 8 2. deild kvenna Völsungur – Hvíti riddarinn......................9:0 Augnablik – Fj/Höttur/Leiknir ............... 3:0 Tindastóll 12 10 0 2 40:16 30 Augnablik 11 9 0 2 45:9 27 Grótta 12 6 2 4 40:34 20 Völsungur 11 6 1 4 23:14 19 Álftanes 11 5 3 3 31:18 18 Fj./Hött/Leikn. 12 4 2 6 25:33 14 Einherji 11 2 0 9 28:29 6 Hvíti riddarinn 12 0 0 12 3:82 0 Svíþjóð Brommapojkarna – AIK.......................... 0:2  Kristján Flóki Finnbogason lék allan leikinn fyrir Brommapojkarna.  Haukur Heiðar Hauksson var á meðal varamanna AIK. Malmö – Trelleborg .................................3:0  Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 76 mínútur leiksins fyrir Malmö. Elfsborg – Norrköping ............................0:1  Guðmundur Þórarinsson lék allan leikinn fyrir Norrköping. Arnór Sigurðsson lék fyrstu 55 mínútur leiksins. B-deild: Helsingborg – Landskrona ..................... 2:0  Andri Rúnar Bjarnason lék í 74 mín. fyrir Helsingborg og skoraði eitt mark.  Alfons Sampsted lék allan leikinn fyrir Landskrona. A-deild kvenna: Rosengård – Kalmar.............................. 10:0  Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik- inn fyrir Rosengård og skoraði eitt mark. Kristianstad – Vaxjö ............................... 1:0  Sif Atladóttir lék ekki með Kristianstad, Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar liðið og Björn Sigurbjörnsson er aðstoðarþjálfari. Gautaborg – Djurgården ........................3:0  Guðbjörg Gunnarsdóttir stóð í marki Djurgården. Ingibjörg Sigurðardóttir lék einnig allan leikinn fyrir liðið. Linköping – Limhamn Bunkeflo ........... 5:2  Anna Kristjánsdóttir og Rakel Hönnu- dóttir lék allan leikinn fyrir Limhamn. Noregur Lilleström – Haugasund ..........................1:1  Arnór Smárason skoraði eina mark Lille- ström og lék með í 88 mín. Kristiansund – Rosenborg ......................0:2  Matthías Vilhjálmsson var ekki í leik- mannahópi Rosenborg. Ranheim – Sandefjord .............................1:1  Emil Pálsson lék allan leikinn fyrir Sand- efjord. Brann – Sarpsborg .................................. 2:0  Orri S. Ómarsson var ekki með Sarpsb.. Strömsgodset – Start .............................. 1:1  Aron Sigurðarson kom inn á sem vara- maður á 73. mín., hjá Start. Guðmundur Andri Tryggvason var ekki í leikmannhópn- um. Vålerenga – Tromsö .................................3:0  Samúel Kári Friðjónsson var á meðal varamanna Vålerenga í leiknum. B-deild: Tromsdalen – Aalesund .......................... 2:2  Hólmbert Aron Friðjónsson og Adam Örn Arnar léku allan leikinn fyrir Aalesund, Aron Elís Þrándarson lék með fyrstu 80 mín., Daníel Grétarsson var ekki í hópnum. A-deild kvenna: Sandviken – Röa ........................................5:3  Svava Rós Guðmundsdóttir lék allan leikinn fyrir Röa og skoraði eitt mark. Lilleström – Arna-Björnar.......................2:0  Sigríður Lára Garðarsdóttir kom inn á sem varamaður hjá Lilleström á 74. mín. Bandaríkin Sky Blue – Utah Royals ............................2:2  Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan leikinn fyrir Utah Royals. Færeyjar HB – TB/FCS/Royn..................................4:0  Grétar Snær Gunnarsson og Brynjar Hlöðversson léku allan leikinn fyrir HB. Heimir Guðjónsson þjálfar liðið.  Pape Mamadou Faye leikur með TB. KNATTSPYRNA Í GRINDAVÍK Guðjón Þór Ólafsson gudjon@mbl.is Áhorfendur fengu nóg fyrir peninginn í Grindavík í gærkvöld. Bæði lið fengu fullt af færum og hefðu mörkin hæg- lega getað verið fleiri en fjögur. Stærstan hluta leiksins lá Grindavík aftarlega á vellinum með fimm manna varnarlínu og leyfði Stjörnunni að hafa boltann. Þegar þeir unnu boltann geystust þeir síðan fram völlinn með marga menn og leituðust við að kom- ast í svæðin sem Stjarnan skildi eftir sig. Þetta leikplan Grindavíkur gekk ljómandi vel upp. Aron Jóhannsson braut ísinn fyrir Grindavík á 39. mín- útu með skoti af stuttu færi eftir fyr- irgjöf frá Eliasi Tambruni. Þrátt fyrir að Stjarnan hafi oft spil- að betur fékk liðið sín færi og var að venju hættulegt í föstum leikatriðum. Úr einu slíku kom jöfnunarmark Stjörnunnar en á 57. mínútu átti Hilmar Árni firnafast skot úr auka- spyrnu af 30 metra færi sem endaði í stönginni og þaðan af Kristijan Jajala og í markið. Eftir jöfnunarmark Stjörnunnar sóttu bæði lið af krafti. Lokamín- úturnar voru æsilegar. Á 85 mínútu var Grindavík við það að sleppa í gegn en slæm ákvarðanataka René Joen- sen varð til þess að Stjarnan komst í skyndisókn sem endaði með marki frá Guðjóni Baldvinssyni. Allt stefndi í sigur Stjörnunnar þangað til á 89.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.