Morgunblaðið - 20.08.2018, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 20.08.2018, Qupperneq 6
6 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2018 ENGLAND Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Brighton tók á móti Manchester United í annarri umferð ensku úr- valsdeildarinnar í knattspyrnu í gær þar sem heimamenn unnu óvæntan sigur, 3:2. United-menn litu alls ekki vel út í leiknum og gefa lokatölur leiksins í raun ekki rétta mynd af því hvernig leikurinn spilaðist. Mið- verður Manchester United í leikn- um, þeir Eric Bailly og Victor Linfe- löf, áttu afleitan dag. Lindelöf snéri sér í nokkra hringi þegar hann reyndi að dekka Glenn Murray sem kom Brighton yfir á 25. Mínútu. Sahane Duffy bættu öðru marki við, tveimur mínútum síðar, eftir barn- ing í teignum en Romelu Lukaku minnkaði muninn fyrir gestina á 34. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf Luke Shaw. Pascal Groß skoraði þriðja mark Brighton á 44. mínútu eftir að Eric Bailly ákvað að taka Groß niður, inn- an vítateigs og það var svo Paul Pogba sem klóraði í bakkann fyrir United með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma sem Marouane Fel- laini hafði fiskað eftir að hann kom inn á sem varamaður. José Mour- inho, knattspyrnustjóri Manchester United, hafði orð á því eftir leikinn að leikmenn liðsins hefðu ekki gert smávægileg mistök. Þeir hefðu gert stór mistök og átti þar hann við mið- verði liðsins sem litu ekki vel út í gær. Mourinho var að vonum hundfúll með úrslitin enda áttu leikmenn hans ekkert skilið út úr leiknum en United er nú í tíunda sæti deild- arinnar með 3 stig og var þetta ef- laust ekki byrjunin sem Portúgalinn hafði vonast eftir. City til alls líklegt Manchester City hélt uppteknum hætti frá því á síðustu leiktíð og tók Huddersfield í kennslustund á Eti- had-vellinum í Manchester í gær þar sem Englandsmeistararnir fóru með sigur af hólmi, 6:1. Það var ljóst frá fyrstu mínútu að leikmenn City ætl- uðu sér ekki að slaka á í leiknum, þrátt fyrir að hafa verið komnir með 3:0-forystu eftir rúmlega hálftíma leik. Jon Stankovic minnkaði mun- inn fyrir Huddersfield á 43. mínútu en David Silva skoraði fjórða mark City með glæsilegu skoti, beint úr aukaspyrnu, í upphafi síðari hálf- leiks. City hélt áfram að þjarma að gest- unum og Sergio Agüero fullkomnaði þrennuna á 75. mínútu þegar hann afgreiddi frábæra fyrirgjöf Benjam- in Mendy í fjærhornið. Terence Kongolo varð svo fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 84. mínútu eftir laglegan undirbúning Leroy Sané. Sigur City var síst of stór því leik- menn liðsins fengu hvert dauðafærið á fætur öðru í leiknum. Ben Hamer, markmaður Huddersfield, átti ekki góðan leik í gær og þetta er eflaust leikur sem markmaðurinn vill gleyma sem fyrst en hann gaf City- mönnum allavega tvö mörk í gær með eigin klaufaskap og vitleys- isgangi. City lítur hrikalega vel út og það verður verðugt verkefni fyrir önnur lið í deildinni að reyna stoppa þá. Liðið virkar heilsteyptara en í fyrra, ef það er þá hægt, og fjarvera Kevin De Bruyne virtist hafa lítil áhrif á liðið í gær en hann var besti leik- maður liðsins á síðustu leiktíð. Hann verður frá í þrjá mánuði vegna meiðsla á hné en ef City heldur upp- teknum hætti verður að teljast ólík- legt að þeir muni sakna hans. Sarri vann nýliðaslaginn Á laugardaginn tók Chelsea á móti Arsenal á Stamford Bridge í Lundúnum þar sem heimamenn fóru með sigur af hólmi, 3:2. Bæði lið eru með nýja knattspyrnustjóra í brúnni en Unai Emery tók við Arsenal af Arséne Wenger í vor og Marizio Sarri tók stjórnartaumunum af Ant- onio Conte í sumar. Leikurinn einkenndist af slökum varnarleik beggja liða en leikmenn Arsenal naga sig eflaust í handabök- in fyrir að hafa ekki farið með alla- vega stig af Brúnni í gær. Þeir fengu þrjú algjör dauðafæri í leiknum og þegar menn fá háar fjárhæðir, fyrir það eitt að spila knattspyrnu, þá eiga leikmenn að klára sín færi. Arsenal er án stiga eftir fyrstu tvo leikina en það skal tekið fram að lið- ið hefur nú mætt bæði Chelsea og Manchester City í fyrstu tveimur leikjum sínum. Maurizio Sarri er hins vegar að gera flotta hluti og er Chelsea með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar. Frábær frammistaða Gylfa Gylfi Þór Sigurðsson var svo frá- bær í 2:1-sigri Everton á Southamp- ton á Goodison Park á laugardaginn en hann spilaði allan leikinn fyrir heimamenn og fékk meðal annars 8 í einkunn frá Sky Sports fyrir frammistöðu sína í leiknum. Þá hélt Tottenham áfram að safna stigum í pokann en liðið vann 3:1- sigur á nýliðum Fulham þar sem Harry Kane lyfti ágústbölvuninni og skoraði þriðja mark liðsins í leikn- um. Tottenham er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar, líkt og City og Chelsea, en liðið fær alvöru leik í næstu umferð þegar Tottenham sækir Manchester Unit- ed heim á Old Trafford. AFP Ást Sergio Agüero skoraði þrennu í gær og fékk koss að launum frá knattspyrnustjóra sínum, Pep Guardiola. City flaug hátt á meðan United missteig sig illa  Chelsea vann Lundúnaslaginn  Gylfi Þór í lykilhlutverki í sigri Everton Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is ÍA og HK eru með gott forskot á toppi Inkasso-deildar karla í knatt- spyrnu eftir leiki helgarinnar í 17. umferð deildarinnar. Umferðinni lýkur í dag þegar Víkingur Ólafsvík fær Þrótt Reykjavík í heimsókn og verða Ólsarar að vinna þann leik, ætli þeir sér að halda í við toppliðin. Skagamenn unnu 2:0-sigur á ÍR í Breiðholtinu á laugardaginn þar sem Stefán Teitur Þórðarson hélt uppteknum hætti í markaskorun og gestunum yfir á 25. mínútu. Jeppe Hansen tvöfaldaði svo forystu ÍA á 73. mínútu og fleiri urðu mörkin ekki, þrátt fyrir mikla yfirburði Skagamanna. Skagamenn eru nú í efsta sæti deildarinnar með 39 stig þegar fimm umferðir eru eftir af mótinu og það verður að teljast stórslys ef liðið fer ekki upp um deild úr þessu. HK fékk svo Þór í heimsókn í Kórinn þar sem heimamenn klár- uðu leikinn í fyrri hálfleik en leikn- um lauk með 4:1-sigri HK. Brynjar Jónsson kom heimamönnum yfir á 5. mínútu og Zeiko Lewis bætti við tveimur mörkum til viðbótar á 17. mínútu og 37. mínútu. Brynjar var svo aftur á ferðinni á 57. mínútu áður en Jóhann Helgi Hannesson klóraði í bakkann fyrir gestina í uppbótartíma. HK-ingar eru í öðru sæti deildarinnar með 38 stig, einu stigi minna en Skaga- menn, og hafa þeir nú fimm stiga forskot á Þórsara sem eru í þriðja sætinu. Ólafsvíkurvíkingar geta brúað bilið á HK í 3 stig með sigri í kvöld, en fari svo að þeir tapi stigum gegn Þrótturum þá verða þeir 6 til 5 stig- um á eftir HK og gæti það reynst of þungur biti að kyngja. Þá er baráttan á botni deild- arinnar afar hörð en Magni og Haukar eru í fallsætum með 12 og 14 stig. Liðin sem eru í fallsæti þessa stundina geta hins vegar huggað sig við þá staðreynd að það er mjög stutt í næstu lið en Leiknir Reykjavík, sem er í sjöunda sæti deildarinnar, er með 18 stig. Töl- fræðilega eru því ennþá átta lið í deildinni sem geta enn fallið. Morgunblaðið/Árni Sæberg Pressa Ejub Purisevic, þjálfari Ólafsvíkinga, þarf sigur í kvöld. ÍA og HK á leiðinni upp í úrvalsdeild  Átta lið geta ennþá fallið  Allt undir hjá Ólafsvíkingum England Everton – Southampton ............................ 2:1  Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn fyr- ir Everton. Burnley – Watford ..................................... 1:3  Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leik- inn fyrir Burnley. Cardiff – Newcastle ................................... 0:0  Aron Einar Gunnarsson lék ekki með Cardiff vegna meiðsla. Brighton – Manch.Utd ................................3:2 Manch.City – Huddersfield ........................6:1 Chelsea – Arsenal ........................................3:2 Leicester – Wolves.......................................2:0 Tottenham – Fulham...................................3:1 West Ham – Bournemouth.........................1:2 Staðan: Manch.City 2 2 0 0 8:1 6 Chelsea 2 2 0 0 6:2 6 Watford 2 2 0 0 5:1 6 Tottenham 2 2 0 0 5:2 6 Bournemouth 2 2 0 0 4:1 6 Everton 2 1 1 0 4:3 4 Liverpool 1 1 0 0 4:0 3 Cr. Palace 1 1 0 0 2:0 3 Leicester 2 1 0 1 3:2 3 Manch.Utd 2 1 0 1 4:4 3 Brighton 2 1 0 1 3:4 3 Newcastle 2 0 1 1 1:2 1 Southampton 2 0 1 1 1:2 1 Wolves 2 0 1 1 2:4 1 Burnley 2 0 1 1 1:3 1 Cardiff 2 0 1 1 0:2 1 Arsenal 2 0 0 2 2:5 0 Fulham 2 0 0 2 1:5 0 West Ham 2 0 0 2 1:6 0 Huddersfield 2 0 0 2 1:9 0 B-deild: Reading – Bolton ........................................ 0:1  Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem vara- maður hjá Reading á 73. mín. Ipswich – Aston Villa................................. 1:1  Birkir Bjarnason. lék fyrstu 64 mínúturn- ar fyrir Aston Villa. Þýskaland Bikarkeppnin, 1. umferð: Oberhausen – Sandhausen ....................... 0:6  Rúrik Gíslason var ekki með Sandh. Steinbach – Augsburg................................1:2  Alfreð Finnbogason var ekki með Augs- burg. Worms – Werder Bremen..........................1:6  Aron Jóhannsson var ekki með Bremen. Spánn Barcelona – Deportivo Alaves....................3:0 Real Madrid – Getafe ................................. 2:0 B-deild: Real Oviedo – Extremadura .................... 2:0  Diego Jóhannesson lék ekki með Oviedo. Frakkland Dijon – Nantes .............................................2:0  Rúnar A.Rúnarsson stóð í marki Dijon.  Kolbeinn Sigþórs. var ekki með Nantes. Rússland Rostov – Jenisei ..........................................4:0  Björn B. Sigurðarson lék í 77 mín., með Rostov og skoraði 2 mörk. Sverrir Ingi Inga- son og Ragnar Sigurðsson léku með Rostov frá upphafi til enda leiksins. CSKA Moskva – Arsenal Tula.................. 3:0  Hörður Björgvin Magnússon lék allan leikinn fyrir CSKA. Krasnodar – Spartak Moskva ...................0:1  Jón Guðni Fjóluson var varamaður hjá Krasnodar. Holland FC Emmen – AZ Alkmaar ....................... 1:4  Albert Guðmundsson kom inn á sem vara- maður hjá AZ á 65.mínútu. PSV – Excelsior ......................................... 3:0  Elías Már Ómarsson lék fyrstu 76. mín- útu leiksins fyrir Exelsior og Mikael And- erson lék í 86 mínútur. Belgía Lokeren – Standard ...................................0:3  Ari Freyr Skúlason var allan leikinn á varamannabekknum hjá Lokeren. Arnar Þór Viðarsson er aðstoðarþjálfari. Tyrkland B-deild: Altinordu – Genclerbirligi ....................... 1:2  Kári Árnason lék ekki með Genclerbirligi. Pólland Jagiellonia – Piast Gliwice........................ 2:1  Böðvar Böðvarsson var á meðal vara- manna Jagiellonia allan leikinn. Ungverjaland Ferencváros – Paks ....................................1:1  Kjartan Henry Finnbogason kom inn á sem varamaður á 70. mín. hjá Ferencváros. Aserbaídsjan Sebail – Qarabag ........................................ 0:2  Hannes Þór Halldórsson var á meðal varamanna Qarabag allan leikinn. Danmörk AGF – FC Köbenhavn ................................1:1  Björn Sverrisson var varamaður hjá AGF. Bröndby – Esbjerg .................................... 0:1  Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn með Bröndby. Nordsjælland – Vejle ................................ 2:0  Felix Örn Friðriksson var á meðal vara- manna Vejle allan leikinn. KNATTSPYRNA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.