Morgunblaðið - 30.08.2018, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018 3
Capacent — leiðir til árangurs
SFR er stéttarfélag í
almannaþjónustu og er
félagssvæði þess allt landið.
Félagsmenn eru um 6000 og
er SFR stærsta félagið innan
Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja (BSRB). Helstu
verkefni SFR eru að bæta kjör
félagsmanna og verja réttindi
þeirra. Einnig vinnur félagið
að réttinda og kjaramálum
á vettvangi BSRB og er í
samstarfi að ýmsum málum við
systurfélög innan bandalagsins.
Upplýsingar og umsókn
capacent.is/s/7055
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. hagfræði,
vinnumarkaðsfræði, viðskipta- eða verkfræði.
Víðtæk reynsla af tölfræði- og greiningarvinnu og notkun
töflureikna.
Áhugi og reynsla/þekking af kjaramálum.
Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt.
Góð samskipta- og samstarfshæfni.
Góð íslenskukunnátta og færni í textagerð.
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
Umsóknarfrestur
2. september
Helstu verkefni:
Vinna að kjaramálum og stofnanasamningum SFR.
Tölfræðigreiningar og upplýsingaöflun er varða kjaratengd
málefni.
Uppsetning gagnagrunna vegna kjara- og
stofnanasamninga.
Vinna að kjara- og launakönnunum félagsins.
Aðstoð við félagsmenn er varðar kjör og réttindi.
Kennsla og fræðsla varðandi kjaramál.
Vinna við félags- og gagnakerfi SFR.
Önnur verkefni skv. ákvörðun framkvæmdastjóra.
SFR óskar eftir að ráða sérfræðing á kjara- og félagssvið. Leitað er að öflugum og framsæknum einstaklingi sem hefur áhuga
á kjara- og réttindamálum launafólks.
SFR
Sérfræðingur á kjarasviði
Kvikmyndamiðstöð Íslands er opinber stofnun og ber m.a. að stuðla að framleiðslu,
dreifingu og kynningu á íslenskum kvikmyndum. Kvikmyndamiðstöð vinnur einnig að
eflingu kvikmyndamenningar á Íslandi og því að treysta tengsl á milli íslenskra og erlendra
kvikmyndagerðaraðila. www.kvikmyndamidstod.is
Skrifstofustarf
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Kvikmyndaráðgjafar
Kvikmyndasjóður starfar á vegum Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Hlutverk
Kvikmyndasjóðs er að efla íslenska kvikmyndagerð með fjárhagslegum
stuðningi. Kvikmyndaráðgjafar leggja listrænt mat á umsóknir sem berast til
Kvikmyndamiðstöðvar um styrki úr Kvikmyndasjóði, jafnt fyrir leikið efni og
heimildamyndir. Matið fer fram með hliðsjón af fjárhags- og framkvæmdaþáttum
og fylgjast ráðgjafar jafnframt með framvindu verkefna.
Kvikmyndaráðgjafar skulu hafa staðgóða þekkingu eða reynslu á sviði kvikmynda
og mega ekki hafa hagsmuna að gæta varðandi úthlutun eða gegna störfum
utan Kvikmyndamiðstöðvar sem tengjast íslenskri kvikmyndagerð meðan á
ráðningartíma stendur.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið námi frá viðurkenndum kvikmyndaskóla eða hafa
a.m.k. 3ja ára starfsreynslu af einhverrri af lykilstöðum í kvikmyndagerð. Krafist er
góðrar íslensku- og enskukunnáttu, auk þess er kunnátta í einu Norðurlandamáli
kostur. Mikilvægt er að kvikmyndaráðgjafar hafi góða samskiptahæfileika.
Um tímabundna ráðningu er að ræða og ráðningartími nemur allt að tveimur
árum í senn.
Um hlutastarf getur verið að ræða.
Laun taka mið af launakjörum opinberra starfsmanna.
Kvikmyndamiðstöð Íslands leitar að starfsmanni í fullt starf í lifandi alþjóðlegu umhverfi. Leitað er að ábyrgum,
skipulögðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem getur unnið jafnt sjálfstætt sem og með öðru fólki.
Upplýsingar veita:
Rannveig J. Haraldsdóttir, rannveig@hagvangur.is
Inga Steinunn Arnardóttir, inga@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 10. september nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Starfssvið:
• Kynning, söfnun og miðlun upplýsinga
• Umsjón með vefsíðum og gagnagrunnum á vegum stofnunarinnar
og þróun vefsvæða
• Uppsetning og söfnun upplýsinga fyrir útgáfu kynningarefnis
• Verkefnastýring á ýmsum viðburðum sem stofnunin kemur að
• Ýmis tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Góð tölvukunnátta
• Reynsla og hæfni í textagerð ásamt afbragðsgóðri íslensku- og enskukunnáttu
• Góðir samskiptahæfileikar, frumkvæði og sveigjanleiki
• Áhugi á menningu og íslenskum kvikmyndum kostur
• Reynsla og áhugi af vefstjórnun æskileg
• Reynsla af viðburðastjórnun kostur
Laun taka mið af launakjörum opinberra starfsmanna.