Fréttablaðið - 19.10.2018, Page 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU SUN
UMBOÐSAÐILI JEEP Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
®
DÍSEL 3.0L 250 HÖ, 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING, HÁTT OG LÁGT DRIF, DRIFLÆSING AÐ AFTAN.
STAÐALBÚNAÐUR MA: LOFTPÚÐAFJÖÐRUN, HITI OG KÆLING Í SÆTUM, HITI Í STÝRI,
RAFDRIFINN AFTURHLERI, ÍSLENSKT LEIÐSÖGUKERFI O.M.FL. AUKAHLUTIR Á MYND DRÁTTARKRÓKAR AÐ FRAMAN.
®
JEEP GRAND CHEROKEE TRAILHAWK®
jeep.is
JEEP 7 DAGA VIKUNNAR. ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF.
ÖRFÁIR BÍLAR EFTIR Á GAMLA GENGINU
Samgöngumál Bæjarfulltrúar á
Akureyri eru vonsviknir yfir því að
í samgönguáætlun Sigurðar Inga
Jóhannssonar sé mikilvægi upp-
byggingar flugvallarins á Akureyri
hunsað.
„Það samræmist hvorki byggða-
stefnu stjórnvalda né umræðu um
mikilvægi þess að dreifa ferða-
mönnum um landið,“ segir í áskorun
bæjarfulltrúa til ríkisstjórnarinnar.
Forsvarsmenn meirihluta bæjar-
stjórnar fóru á fund samgönguráð-
herra í vikunni þar sem þessum til-
mælum var komið til skila. Hvöttu
fulltrúar bæjarins til þess að lokið
yrði við eigendastefnu Isavia. Bæta
þyrfti flugvöllinn nyrðra.
Ekki er gert ráð fyrir neinni upp-
byggingu flugvallarins eða flughlaðs
í samgönguáætlun til næstu fimm
ára. – sa
Ósáttir við
skarðan hlut
Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu-
ráðherra. FréttablaðIð/ErnIr
garðabær Forsvarsmenn íþrótta-
félagsins Stjörnunnar hafa sent
bæjaryfirvöldum í Garðabæ erindi
þar sem óskað er eftir því að ráðist
verði í framkvæmdir við að koma
upp vökvunarkerfi á Samsung vell-
inum.
Til stóð að setja vökvunarkerfi
meðfram vellinum þegar skipt
var um gervigras í vor. Samkvæmt
erindi framkvæmdastjóra Stjörn-
unnar tókst ekki að koma því í
framkvæmd vegna tímahraks. Þó
hafi verið gert ráð fyrir fjármagni í
þá framkvæmd.
Ása Inga Þorsteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri UMF Stjörnunnar,
segir í erindi sínu að félagið hafi
kynnt sér hvernig þessum málum
sé háttað hjá bæði Valsmönnum og
á nýjum Fylkisvelli.
„Er ljóst að það kerfi sem er nýtt
á Fylkisvelli gæti vel gengið á Sam-
sung vellinum okkar hér í Garðabæ,
einnig með tilliti til vatnsmagns o.fl.
þátta.“
Hvetur félagið bæjaryfirvöld til að
halda framkvæmdinni áfram eins og
til stóð.
„Áætlað er að kerfi sambærilegt
og á Fylkisvelli kosti í kringum 10
milljónir,“ segir að lokum í erindi
Stjörnunnar. – smj
Stjarnan vill tíu milljónir úr bæjarsjóði til að vökva gervigrasið
nýtt gervigras var
lagt á Samsung
völlinn í vor en
þá gafst ekki tími
til að koma upp
vökvunarkerfi fyrir
völlinn.
FréttablaðIð/ErnIr
rEYKJaVÍK Engir skriflegir verk-
samningar liggja til grundvallar
framkvæmd við uppbyggingu og
endurnýjun braggans við Naut-
hólsvík 100 og aðeins eru til í einu
tilviki gögn sem sýna fram á að
samanburðartilboða hafi verið
leitað. Verkið fór aldrei í formlegt
innkaupaferli heldur var samn-
ingum komið á með munnlegum
hætti.
Þetta kemur fram í áliti borgar-
lögmanns á fylgni við innkaupa-
reglur við gerð samninga um bragg-
ann. Kostnaður við hann stendur
nú í tæplega þrefalt hærri upphæð
en upphafleg kostnaðaráætlun, í
kringum 150 milljónir króna, gerði
ráð fyrir. Í álitinu kemur fram að
verkið hafi ekki verið útboðsskylt
samkvæmt þágildandi lögum um
opinber innkaup en hins vegar hafi
innkaupareglur Reykjavíkurborgar
voru þverbrotnar.
Samkvæmt innkaupareglum
borgarinnar er skylt að viðhafa inn-
kaupaferli ef áætluð samningsfjár-
hæð er yfir 28 milljónum króna. Þó
upphæð nái ekki útboðsfjárhæð er
opinberum aðilum skylt að viðhafa
samkeppni við innkaup, til dæmis
með verðfyrirspurn meðal mögu-
legra þjónustuveitenda eða birgja.
Í máli braggans var það aðeins einu
sinni gert en sú fyrirspurn sneri að
innkaupum á flísum.
Í bókun fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins á fundi innkauparáðs er
vikið að svari Dags B. Eggertssonar
borgarstjóra á fundi borgarstjórnar
2. október. „Ég ítreka það að það
sem kom fram, að það hafi verið
farið í verðfyrirspurnir en ekki
útboð, það er það sem hefur komið
fram í umfjöllun um málið.“
Í bókun fulltrúa meirihlutans
segir að skrifstofa eigna og atvinnu-
þróunar (SEA) hafi haldið því fram
við borgarstjóra og aðra kjörna full-
trúa að notast hafi verið við verð-
fyrirspurnir í verkefninu. Erfitt sé
fyrir kjörna fulltrúa að ganga út frá
öðru en að slíkt sé rétt.
Álit borgarlögmanns var lagt
fram á fundi innkauparáðs borgar-
innar í gær. Innkauparáð óskaði
eftir því að álitið yrði unnið á fundi
eftir fund þess 18. ágúst 2017. Ekki
tókst að skila því fyrr en nú þar sem
SEA veitti borgarlögmanni ekki
tilskilin gögn til að unnt væri að
vinna álitið. Beiðni um afhendingu
gagnanna var ítrekuð í september,
nóvember og desember í fyrra og
aftur í janúar, febrúar, mars, maí,
ágúst, september og október þessa
árs. Ekki liggur fyrir hvers vegna
það tók SEA svo langan tíma að
svara erindinu.
„Fengust svör [frá SEA þann
24. maí 2018] í tölvupósti að leggja
þyrfti lokahönd á minnisblað sem
yrði klárað eftir helgi og að síðan
yrði samantekt unnin úr upp-
lýsingum SEA um kostnað. Hvor-
ugt barst og var sú beiðni ítrekuð
14. ágúst 2018. Þeirri beiðni svaraði
verkefnastjóri SEA með tölvupósti
16. ágúst og kvaðst koma með
gögnin í næstu viku,“ segir í áliti
borgarlögmanns. Minnisblaðið lá
fyrir um miðjan september.
Ekki náðist í Óla Jón Hertervig,
deildarstjóra SEA, eða Guðlaugu S.
Sigurðardóttur, fjármálastjóra SEA,
þrátt fyrir tilraunir þess efnis.
joli@frettabladid.is
Aðeins ein verðfyrirspurn og
samningarnir allir munnlegir
Borgarlögmaður segir að innkaupareglur borgarinnar hafi verið þverbrotnar í Braggamálinu. Gerð álits
borgarlögmanns tók fjórtán mánuði sökum þess að skrifstofa eigna og atvinnuþróunar borgarinnar veitti
embættinu ekki þau gögn sem þurfti til að vinna álitið. Opinberum aðilum ber að viðhafa samkeppni.
Þó útboðsskylda myndist ekki ber sveitarfélögum að viðhafa samkeppni með verðfyrirspurnum. FréttablaðIð/antOn brInK
1 9 . o K t ó b E r 2 0 1 8 F ö S t u D a g u r4 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð
1
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
1
F
-9
1
6
8
2
1
1
F
-9
0
2
C
2
1
1
F
-8
E
F
0
2
1
1
F
-8
D
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K