Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.10.2018, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 19.10.2018, Qupperneq 28
Ef fólk nær ekki þeim árangri sem við viljum innan okkar veggja er það ekki skilið eftir í sömu sporum og það kom til okkar. Við teljum mikilvægt að geta vísað fólki í rétta átt innan heilbrigðiskerfisins. Magni Bernhardsson, framkvæmdastjóri Kírópraktorstofu Íslands. Mynd/Golli Þegar ég kom heim úr námi og stofnaði stofuna, kom aldrei neitt annað til greina en að reyna að komast í þverfaglegt samstarf við aðra aðila í heil­ brigðisgeiranum,“ segir Magni sem stofnaði Kírópraktorstofu Íslands árið 2010. Hún hefur frá upphafi verið í Sporthúsinu sem Magni telur afar stóran kost. Magni starfaði sem einkaþjálfari í tíu ár. „Svo fór ég í viðskiptafræði en uppgötvaði fljótlega að mig langaði ekkert að vinna í banka. Ég ákvað því að fara í kírópraktors­ námið því mér fannst það vera í miklu meiri tengslum við það sem ég kunni,“ segir Magni sem kláraði fyrst BS og svo doktorspróf í kíró­ praktík frá Bandaríkjunum. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Magni kom heim úr námi. „Stéttin hefur tvöfaldast og von er á enn meiri fjölgun. Þá hefur viðhorf til greinarinnar breyst gríðarlega til batnaðar. Kannski má rekja það til þess að við vorum fyrsta stofan sem tók upp stafræna röntgen­ tækni og svo held ég að fólk kunni að meta þá ákvörðun okkar að fara í þverfaglegt samstarf með sjúkra­ þjálfurum og íþróttafræðingum hér í Sporthúsinu.“ En hvernig virkar þetta samstarf? „Þegar fólk kemur til okkar fer það í heilsufarsviðtal og við skoðum hvort vandamál þess sé eitthvað sem við getum átt við. Teknar eru stafrænar rönt­ genmyndir ef þörf er á og gerðar hreyfi­ og styrktargreiningar. Við hefjum meðferð ef við teljum hana henta og oftast gengur það vel. Ef við hins vegar sjáum, þegar við erum farin af stað, að einhverra hluta vegna skili meðferðin ekki tilskildum árangri þá getum við leitað til sjúkraþjálfara hinum megin við ganginn, útskýrt okkar niðurstöður og þeir taka við boltanum. Ef fólk nær ekki þeim árangri sem við viljum innan okkar veggja er það því ekki skilið eftir í sömu sporum og það kom til okkar. Við teljum mikilvægt að geta vísað fólki í rétta átt innan heilbrigðiskerfisins, hvort sem það er til bæklunarlækna, sem við erum í mjög góðu samstarfi við, til heimilislæknis eða sjúkraþjálfara.“ Magni segir mikilvægt að þeir sem þjáist af stoðkerfiskvillum geri æfingar, en það verði að vera réttu æfingarnar. Þar kemur sér vel að vera í Sporthúsinu. „Við getum vísað á íþróttafræðinga eða þjálf­ ara hjá Sporthús Gull. Fólk getur fengið hjá okkur hreyfiseðil sem gildir í mánuð í Sporthúsið endur­ gjaldslaust. Það getur hitt þjálfara, eða við förum sjálf með þeim og sýnum þeim réttu æfingarnar sem vinna gegn því meini sem hrjáir viðkomandi.“ Sjö kírópraktorar eru á Kíró­ praktorstofu Íslands, allir með B.Sc.­gráðu, mastersgráðu eða doktorsgráðu í kírópraktík frá viðurkenndum háskólum í Banda­ ríkjunum eða Bretlandi. Auk þess eru tveir þeirra einnig útskrifaðir sjúkraþjálfarar. Magni er raunar sjálfur hættur að hnykkja. „Ég er skráður í ótímabundið leyfi. Stærsta ástæðan er sú að ég hef verið að berjast við sjúkdóm sem heitir hrygggikt. Hryggurinn er að stífna allur upp, hreyfigetan að minnka og mikil bólga í líkam­ anum. Ég hef fundið að það sem hentar mér best er að blanda öllu saman. Ég nota tækni sem sjúkra­ þjálfarar kenna mér, er að láta hnykkja mig öðru hverju og er í vikulegum sprautum, allt í takt við líkamann. Þetta hefur opnað augu mín enn frekar fyrir því að engir tveir eru eins. Þótt tilfellin séu keimlík geta viðbrögð fólks við meðferðum verið afar ólík. Það þarf því að horfa á hvert tilfelli fyrir sig.“ Þverfaglegt starf mikilvægt Svartar baunir eru herra­mannsmatur sem innihalda hátt hlutfall af prótíni og trefjum. Þær eru ódýrar og auðvelt að nota í matreiðslu. Hægt er að nota þær í alls konar rétti, svo sem salöt, súpur, tacos, ídýfur, borgara, pitsur, lasanja og margt fleira. Hér er uppskrift að girnilegu sælkera­ salati með svörtum baunum. 1 dós svartar baunir 2 msk. límónusafi 1 hvítlauksrif, smátt saxað 3 msk. ólífuolía 2 tómatar 1 avókadó Mynta 3 msk. maísbaunir Salt og pipar Skolið baunirnar vel í köldu vatni og látið þorna. Setjið límónusafa, hvítlauk og ólífuolíu í skál og hrærið vel saman. Setjið svörtu baunirnar í stærri skál og dreifið 2 msk. af límónublöndunni yfir. Skerið tómatana í báta og avókadó í bita. Saxið myntuna. Blandið öllu saman og bætið maísbaunum við. Berið fram með t.d. brauði. Sælkerasalat með svörtum baunum Það er sáraeinfalt að útbúa þetta girnilega salat. Hjá Kírópraktor­ stofu Íslands í Sporthúsinu starfa sjö kíró­ praktorar. Þar er unnið þverfaglegt starf með öðrum heilbrigðisstétt­ um og íþrótta­ fræðingum. Það er lykillinn að því að bæta lífs­ gæði og hámarka árangur að mati Magna Bern­ hards sonar, kíró­ praktors og fram­ kvæmdastjóra. Opnunartími: Mánudagur-Föstudags 08-20 | Laugardag 10-18 | Sunnudag 13-18 Suðurver - Stigahlíð 45-47 APÓTEKFARMASIA 8 KynninGARBlAÐ 1 9 . o K tó B e R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RBetRA lÍf 1 9 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 1 F -9 B 4 8 2 1 1 F -9 A 0 C 2 1 1 F -9 8 D 0 2 1 1 F -9 7 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 1 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.