Fréttablaðið - 19.10.2018, Page 46

Fréttablaðið - 19.10.2018, Page 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is Tónlistarkonan íslenska Rokky hefur búið í Berlín síðastliðin fimm ár þar sem hún hefur verið að böska á götum borgarinnar með gítarinn að vopni. Fyrsta smá­ skífan hennar, My Lips, er komin í spilun í útvarpi hér á landi en einn­ ig er lagið notað í auglýsingum fyrir haustlínu Esprit þetta árið – þannig að það er spilað í Esprit verslunum um allan heim. Í dag heldur hún upp á þessa útgáfu eins og henni einni er lagið – með því að böska á Laugaveginum, í tómu húsnæði við hliðina á Dillon. „Ég verð að spila frá fjögur til sex, þar mun ég spila akústískt, böska, vegna þess að ég er búin að vera að gera það síðustu ár. Ég mun líka taka nýja lagið en það er aðeins öðruvísi – þetta er svona elektró danslag, aðeins í öðrum dúr,“ segir Rokky sem segist hafa byrjað að böska eftir að vinur hennar manaði hana hálf­ partinn út í það. „Vinur minn var að fara að böska og ég sagði við hann að ég myndi kíkja á hann. Hann svaraði „já og þú mátt prófa … ef þú þorir, hehe,“ þannig að ég sagði „réttu mér gítarinn“ og spilaði í einhverjar 40 mínútur þangað til hann bað mig að rétta sér gítarinn aftur. Ég gerði þetta nokkrum sinnum með honum eftir þetta en ákvað svo að mig lang­ aði til að spila ein allan tímann og ekki sífellt að skiptast á … svo var hann líka fúll því ég var að græða meiri pening heldur en hann,“ segir Rokky og hlær. Hún keypti sér græjur eftir það og fór á fulla ferð út í böskið á götum stórborgarinnar. Hún segir að þaðan hafi hún alls konar sögur, enda margt skrítið á sveimi í Berlín. „Eitt skiptið þá kom róni í engum skóm og settist fyrir framan mig, rúllaði sér sígarettu í rólegheitum og sat þar í svona klukkutíma – hann var sko ekki í skóm! – og að lokum dregur hann upp 10 evru seðil sem hann gefur mér! Ég vissi ekki hvað var í gangi, hvort þetta væri falin myndavél. Það er nefnilega þannig í Berlín að það er oft ótrúlegasta fólk sem gefur þér seðla.“ My Lips var lag sem Rokky henti upp á iPadinum sínum fyrir um einu ári. „Það var plötufyrirtæki frá Banda­ ríkjunum sem vildi fá mig á samn­ ing fyrr á árinu, en eftir að lögfræð­ ingurinn minn hafði rennt í gegnum þann samning sagði hann mér að þetta væri alls ekki góður díll. Þann­ ig að ég sagði nei núna september við því – en mig langaði samt að gefa út þetta lag, þannig að ég fór og tal­ aði við fólk sem ég þekki og keyrði þetta í gang. Þetta er gefið út af mínu eigin útgáfufyrirtæki, Rokky Music, í gegnum dreifingaraðila á netinu.“ Friðfinnur Oculus, tónlistar­ galdramaðurinn mikli, mixaði lagið og segir Rokky að hann hafi tekið það úr 90% upp í heil 100%. Rokky segir það rétt að lagið sé notað af Esprit um þessar mundir til að auglýsa haustlínuna þeirra. „Ég þekki gaurinn sem gerði aug­ lýsinguna en það var komið lag með einhverjum öðrum í hana. Hann ákvað að prófa bara í gamni að tjekka hvort þau væru til í að nota mitt lag sem þau voru. Það var algjörlega frábært. Þetta „kikk­ startaði“ svo mörgu og var mjög gott fyrir sjálfstraustið.“ Á næsta ári er von á nýju lagi og tónlistarmyndbandi frá Rokky. Hún segist vera með nokkur lög á lager sem verði gefin út í röð og að það sé EP­plata í vinnslu. „Þetta verður allt í þessum dans­ elektró­stíl. Ástæðan er sú að ég vil koma fram og vil fá fólkið til að dansa með mér. Svo bý ég í Berlín og elska að fara á klúbba og dansa – það er auðvitað meira heví teknó sem er spilað þar, en ég er að gera aðeins glaðlegri tónlist.“ Rokky verður böskandi við Dillon í dag frá 15 til 18 þar sem hún endar á My Lips. Það er ekki vitlaust að kíkja á Rokky og geta í framtíðinni sagst hafa séð hana áður en hún varð fræg. stefanthor@frettabladid.is Frá böski yfir í danssmell Tónlistarkonan Rokky gefur út sitt fyrsta lag í dag og ætlar af því tilefni að snúa aftur til róta sinna með því að böska fyrir utan Dillon. Lagið er nú þegar notað í auglýsingaherferð keðjunnar Espirit. Fyrsta lag Rokky er strax farið að heyrast víða um heiminn og notað í stórri auglýsingaherferð. FRÉTTABLAÐIÐ/EyÞÓR þannig að ég sagði „Réttu méR gítaR- inn“ og spilaði í einhveRjaR 40 mínútuR þangað til hann bað mig að Rétta séR gítaR- inn aFtuR. 1 9 . o k t ó b e r 2 0 1 8 F Ö S t U D A G U r30 l í F i ð ∙ F r É t t A b l A ð i ð gæði – þekking – þjónusta Stimplar af öllum gerðum og stærðum. Pantaðu stimpil á bodi.is ... og svo miklu meira LASERSKURÐUR STIMPLAR Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is Hafðu lyfin tilbúin þegar þú sækir Pantaðu tiltekt á appotek.is eða í síma 568 0990 Garðs Apótek - í leiðinni Fáðu lyfin send heim með póstinum Pantaðu sendingu á appotek.is Garðs Apótek - um land allt Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga, lokað um helgar Varmadælur & loftkæling Verð frá aðeins kr. 155.000 m.vsk Midea MOB12 Max 4,92 kW 2,19 kW við -7° úti og 20° inni hita (COP 2,44) f. íbúð ca 60m2. • Kyndir húsið á veturna og kælir á sumrin • Fyrir norðlægar slóðir • Fjarstýring fylgir Uppsetningaaðilar og umboðsmenn um allt land www.artasan.is Fæst í næsta apóteki og helstu stórmörkuðum Mundir þú eftir að bursta og skola í morgun? Tannlæknar mæla með GUM tannvörum GUM Orginal 2x10 copy.pdf 1 26/01/2018 12:51 1 9 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 1 F -8 C 7 8 2 1 1 F -8 B 3 C 2 1 1 F -8 A 0 0 2 1 1 F -8 8 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.