Fréttablaðið - 19.10.2018, Qupperneq 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar
Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir
heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Tónlistarkonan íslenska Rokky hefur búið í Berlín síðastliðin fimm ár þar sem hún hefur verið að böska á götum borgarinnar
með gítarinn að vopni. Fyrsta smá
skífan hennar, My Lips, er komin í
spilun í útvarpi hér á landi en einn
ig er lagið notað í auglýsingum fyrir
haustlínu Esprit þetta árið – þannig
að það er spilað í Esprit verslunum
um allan heim. Í dag heldur hún
upp á þessa útgáfu eins og henni
einni er lagið – með því að böska á
Laugaveginum, í tómu húsnæði við
hliðina á Dillon.
„Ég verð að spila frá fjögur til sex,
þar mun ég spila akústískt, böska,
vegna þess að ég er búin að vera að
gera það síðustu ár. Ég mun líka taka
nýja lagið en það er aðeins öðruvísi
– þetta er svona elektró danslag,
aðeins í öðrum dúr,“ segir Rokky
sem segist hafa byrjað að böska eftir
að vinur hennar manaði hana hálf
partinn út í það.
„Vinur minn var að fara að böska
og ég sagði við hann að ég myndi
kíkja á hann. Hann svaraði „já og
þú mátt prófa … ef þú þorir, hehe,“
þannig að ég sagði „réttu mér
gítarinn“ og spilaði í einhverjar 40
mínútur þangað til hann bað mig
að rétta sér gítarinn aftur. Ég gerði
þetta nokkrum sinnum með honum
eftir þetta en ákvað svo að mig lang
aði til að spila ein allan tímann og
ekki sífellt að skiptast á … svo var
hann líka fúll því ég var að græða
meiri pening heldur en hann,“
segir Rokky og hlær. Hún keypti sér
græjur eftir það og fór á fulla ferð út
í böskið á götum stórborgarinnar.
Hún segir að þaðan hafi hún alls
konar sögur, enda margt skrítið á
sveimi í Berlín.
„Eitt skiptið þá kom róni í engum
skóm og settist fyrir framan mig,
rúllaði sér sígarettu í rólegheitum og
sat þar í svona klukkutíma – hann
var sko ekki í skóm! – og að lokum
dregur hann upp 10 evru seðil sem
hann gefur mér! Ég vissi ekki hvað
var í gangi, hvort þetta væri falin
myndavél. Það er nefnilega þannig
í Berlín að það er oft ótrúlegasta fólk
sem gefur þér seðla.“
My Lips var lag sem Rokky henti
upp á iPadinum sínum fyrir um
einu ári.
„Það var plötufyrirtæki frá Banda
ríkjunum sem vildi fá mig á samn
ing fyrr á árinu, en eftir að lögfræð
ingurinn minn hafði rennt í gegnum
þann samning sagði hann mér að
þetta væri alls ekki góður díll. Þann
ig að ég sagði nei núna september
við því – en mig langaði samt að gefa
út þetta lag, þannig að ég fór og tal
aði við fólk sem ég þekki og keyrði
þetta í gang. Þetta er gefið út af mínu
eigin útgáfufyrirtæki, Rokky Music,
í gegnum dreifingaraðila á netinu.“
Friðfinnur Oculus, tónlistar
galdramaðurinn mikli, mixaði lagið
og segir Rokky að hann hafi tekið
það úr 90% upp í heil 100%.
Rokky segir það rétt að lagið sé
notað af Esprit um þessar mundir
til að auglýsa haustlínuna þeirra.
„Ég þekki gaurinn sem gerði aug
lýsinguna en það var komið lag
með einhverjum öðrum í hana.
Hann ákvað að prófa bara í gamni
að tjekka hvort þau væru til í að
nota mitt lag sem þau voru. Það
var algjörlega frábært. Þetta „kikk
startaði“ svo mörgu og var mjög gott
fyrir sjálfstraustið.“
Á næsta ári er von á nýju lagi og
tónlistarmyndbandi frá Rokky. Hún
segist vera með nokkur lög á lager
sem verði gefin út í röð og að það sé
EPplata í vinnslu.
„Þetta verður allt í þessum dans
elektróstíl. Ástæðan er sú að ég
vil koma fram og vil fá fólkið til að
dansa með mér. Svo bý ég í Berlín
og elska að fara á klúbba og dansa
– það er auðvitað meira heví teknó
sem er spilað þar, en ég er að gera
aðeins glaðlegri tónlist.“
Rokky verður böskandi við Dillon
í dag frá 15 til 18 þar sem hún endar
á My Lips. Það er ekki vitlaust að
kíkja á Rokky og geta í framtíðinni
sagst hafa séð hana áður en hún
varð fræg.
stefanthor@frettabladid.is
Frá böski yfir í
danssmell
Tónlistarkonan Rokky gefur út sitt fyrsta lag í dag og ætlar af því
tilefni að snúa aftur til róta sinna með því að böska fyrir utan Dillon.
Lagið er nú þegar notað í auglýsingaherferð keðjunnar Espirit.
Fyrsta lag Rokky er strax farið að heyrast víða um heiminn og notað í stórri auglýsingaherferð. FRÉTTABLAÐIÐ/EyÞÓR
þannig að ég sagði
„Réttu méR gítaR-
inn“ og spilaði í einhveRjaR
40 mínútuR þangað til hann
bað mig að Rétta séR gítaR-
inn aFtuR.
1 9 . o k t ó b e r 2 0 1 8 F Ö S t U D A G U r30 l í F i ð ∙ F r É t t A b l A ð i ð
gæði – þekking – þjónusta
Stimplar af öllum gerðum
og stærðum.
Pantaðu stimpil á bodi.is
... og svo miklu meira
LASERSKURÐUR
STIMPLAR
Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is
Hafðu lyfin tilbúin þegar þú sækir
Pantaðu tiltekt á appotek.is
eða í síma 568 0990
Garðs Apótek - í leiðinni
Fáðu lyfin send heim með póstinum
Pantaðu sendingu á appotek.is
Garðs Apótek - um land allt
Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut
Opið kl. 9-18 virka daga, lokað um helgar
Varmadælur &
loftkæling
Verð frá aðeins
kr. 155.000 m.vsk
Midea MOB12
Max 4,92 kW
2,19 kW við -7° úti og
20° inni hita (COP 2,44)
f. íbúð ca 60m2.
• Kyndir húsið á veturna
og kælir á sumrin
• Fyrir norðlægar slóðir
• Fjarstýring fylgir
Uppsetningaaðilar og
umboðsmenn um allt
land
www.artasan.is
Fæst í næsta
apóteki og helstu
stórmörkuðum
Mundir þú eftir að
bursta og skola í
morgun?
Tannlæknar mæla með GUM tannvörum
GUM Orginal 2x10 copy.pdf 1 26/01/2018 12:51
1
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
1
F
-8
C
7
8
2
1
1
F
-8
B
3
C
2
1
1
F
-8
A
0
0
2
1
1
F
-8
8
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K