Þróttur - 01.01.1918, Blaðsíða 4
ÞROTTUR
8
þeir brátt sjá, að það er þess vert, að
því sé gaumur gefinn.
Stefna blaðsins er í stuttu máli að
stuðla að efling íþrótta með þjóðinni.
Að leiðbeina mönnum, að vekja menn
til hugsunar um nytsemi skynsamlegra
iþrótta. Að stuðla að öllu sem miðar
til þess að efla líkamsþrótt þjóðarinnar.
Sökum ýmsra örðugleika, sem nú eru
vegna ófriðarins, getur blaðið ekki fyrst
um sinn komið út reglulega, en tilþess
er ætlast, að á því verði bót ráðin,
þegar ástæður breytast til batnaðar.
íþróttafélag Reykjavíkur hefir undan-
farið gefið út Sumarblaðið. En það blað
mun ekki verða gefið út af félaginu
framvegis. Er líklegast, að það verði
héreftir gefið út af nokkrum áhugasöm-
um íþróttamönnum, og mun það þá að-
allega ræðu um ferðalög, fjallgöngur og
ýmsar sumaríþróttir.
Ekki er vert að bera skjöld fyrir
hvert skútyrði, segir máltækið. íþrótta-
mál eiga hér marga andvigismenn, en
ekki mun í þessu blaði verða hirt um
að bera skjöld fyrir skútyrðin, því þau
munu að engu höfð, þegar mönnum fer
að skiljast, að þetta málefni er eitt af
framtiðarmálum þjóðarinnar.
SunÖ.^
Sé hægt að kalla
nokkra iþrótt —■ íþrótt
íþróttanna, þá er það
sundíþróttin.
I.
Nýárssundið. Þann 1. janúar 1910 stóðu
fimm ungir sundmenn á viðbragðsmörk-
um »Nýárssundsins«. Sjór var úfinn og
kaldur. Viðbragðsmerkið var gefið, og
þar með var þetta sundmót háð, sem
*) Sjá Sumarblaðið 1. sumardag 1917.
kallað er »Eyárssundið« og fram hefir
farið síðan 1. janúar ár hvert.
Árið 1910 og 1911 var vélamaður
Stefán Olafsson sá fijótasti á þessum 50
stikna spretti. Tíminn var 48 sek. —
og 42 sek. Hann svam í bæði skiftin
bringusund.
Árið 1912 kom sundkennarinn Erl.
Pálsson til sögunnar, og hefir hann síð-
an verið sigurvegari á »Nýárssundinu«.
Það er gaman og gagnlegt að fylgjast
með dugnaði E. P. á sundmóti þessu,
athuga hvaða sundaðferðir hann hefir
notað — og með hvaða árangri. Kem-
ur það þá reyndar fljótt í Ijós — það
sem allir sundmenn ættu að vita
— að eigi er sama hvaða sundaðferð
er notuð:
1912 svam hann yfirhandar hliðsund,
tíminn var 37 l/a sek.
1913 — — einnig yfirh. hliðsund,
tíminn var 38Vb sek.
1914 — — skriðsund þ. e. ástralsk
crawl, tíminn var 334/a sek.
Nú hafði E. P. unnið »Kýársbikar
Grqttis«.
Svo hafði bikarsgefandi, íþróttavinur-
inn Guðjón heitinn Sigurðsson, fyrir
mælt, að vinna skyldi bikarinn þrisvar
í röð til fullrar eignar. Eigi vildi bik-
arsgefandi láta sundmót þetta falla nið-
ur og gaf því annan bikar — stærri
og veglegri — og skyldi sá eignast, er
sigraði fimm sinnurn í röð. Þessi bikar
heitir »Nýársbikar Sundskálans*. Þann
bikar liefir E. P. nú unnið þrisvar sinn-
um í röð.
1915 á 36'/2 sek. Sundaðferð: skriðsund
(ástralsk crawl).
1916 á 341/5 sek. og
1917 á 344/5 sek Sundaðferð í bæði
skiftin skriðsund (amer. crawl).
Þátttakendur hafa verið 5, 4, 7, 5,
6, 5, 7 og 10.
Kaldast var í sjónum 1911 -4- 1 stig,
en heitast 1916 + 2 4/2 stig.
Bezti timinn á þessu sundmóti hefir