Þróttur - 01.01.1922, Blaðsíða 11
Þ R Ó T T U R
7
Opin brjef.
í þessum dálki birtast bréf sem blaðinu
berast um þau málefni er þykja þess verð
að rædd séu. Þeir scm senda blaðinu efni í
dáik þenna verða að hafa mál sitt skamt og
skorinort.
Víti — til varnaðar.
Herra ritstjóri! — Bins og kunnugt er
hefir bæjarstjórn Reykjavíkur samþykt að
leggja skatt á allar skemtanir, sem fara
fram í bænum, og er þar meö talið íþrótta-
sýningar. Eg bygg aö formælendur þessara
ráðstafana hafi fengið liugmyndina frá
Dönum. peir liafa lagt samskonar skatt á,
sem reynst hefir afar óvinsæll og gefið litl-
ar tekjur. Hér er verið aö skatta íþróttir,
sem af flestum málefnum eiga erfiðast upp-
dráttar á þessu landi. Ætti þessi ráðstöfun
í höfuöborginni að veröa öörnm stöðum
landsins til varnaðar. Sýnist, nær standa
að leggja fé til styrktar málefninu en
leggja á það skatta. Væntanlega kemur
hvergi fram á landinu önnur eins skamm-
sýni í þessu máli og í Reykjavík.
A. H,j.
Hvað þarf að gera?
Herra ritstjóri! — Eg hefi oft hugsað
um, og svo munu fleiri hafa gert, hvaö
vér íslendingar þurfum fyrst og fremst
aö gera til þess að koma íþróttamálum vor-
um í gott horf, til þess að eignast góða
íþróttamenn, til þess að fá alla þjóðina til
að iðka íþróttir. Hvaö þarf að gera? Vér
erum langt á eftir öðrum þjóðrim í þessum
efnum. Vér getum í engum kappraunum
komist til jafns við aðrar þjóðir, vér erum
aðeins lélegir hálfdrœttingar. Vill ekki ein-
hver leggja til ráð. Eg efast ekki um að
Þróttur muni veita slíkum tillögum rúm
hjá sér. ITvað þarf að gera?
p. J.
Bannfæring.
Herra ritstjóri! — Mörgum virðist nú
flokkadráttur og stéttarígur fara að sverfa
mjög að almennri skynsemi og svifta menn
réttsýni á hversdagsleg málefni, þegar
hœgt er a‘S fá fjölmennan fund í höfiröstað
landsins til þess að skora á Alþing aS
banna öll skotfélög. Er furða aö nokkur
maður skuli í fullri alvöru og óliikandi
halda því fram, að skotfélög séu beinlínis
sett til höfuðs alþýðu manna í landinu.
pessir menn þykjast bera öryggi íslenskra
manna fyrir brjósti er þeir heimta þessa
íþrótt bannfærða. Hefir nokkurntíma
heyrst getiS um slíka fjarstœSu? Menji
þeir sem boða þenna nýja siS láta sér þaö
jafnvel um munn fara, að þeir sem iðka
þessa íþrótt, séu að æfa sig í manndrápum.
Er slíkt grálega mælt og af lítilli góðgirni
í gai'S íþróttamanna. Eða livaS sýnist y'Sur.
J. K.
Ölgerðin
Egill Skallagrímsson,
Njálsgötu 21, Reykjavík,
framleiðir besta
MALTEXTRAKTÖL, PILSNER,
og HVfTÖL
Óskar viðskifta kaup-
manna og kaupfélaga
út um land.
S ty ðj ið innlendan iðn að
Símnefni: Mjöður. Sími: 390.