Breiðfirðingur - 01.09.1998, Blaðsíða 10
8
EFNISSKRÁ 1942-1997
ritið og um hvaða efni. Skráin vekur samt ótal spurningar, svo sem:
Ur hvaða sýslum, hreppum eða kauptúnum er mest efni í Breiðfirð-
ingi? Hver er hlutur kvenna eða óskólagenginna höfunda? Finnst
mönnum hafa verið skrifað of mikið um þetta efnið en of lítið um
hitt? Hægt yrði að draga af slíkum athugunum margvíslega lærdóma,
en það verður ekki gert hér og nú. Von ritstjóra er eðlilega sú, að
slíkur samanburður hvetji sem flesta til ritstarfa.
Störfum ritstjóra og ritnefndarmanna hafa gegnt:
1. árgangur (1942): Ritnefnd: Ragnar Jóhannesson, Andrés Straum-
land, Jóhann Jónasson.
2. árgangur (1943): Ritnefnd: Jakob Jóhfannesson] Smári, Guð-
m[undur] Jóhannesson, Gunnar Stefánsson.
3. -5. árgangur (1944-46); Jón Sigtryggsson.
6.-7. árgangur (1947-48): Gunnar Stefánsson.
8.-10. árgangur (1949-51): Stefán Jónsson.
11.-36. árgangur (1954-1978): Árelíus Níelsson (Ritnefnd fyrir 26.-
27. árgangi: Jón Emil Guðjónsson, Árelíus Níelsson.)
37. -46. árgangur (1981-1988): Einar Kristjánsson (Ritnefnd fyrir 37.-
38. árgangi: Brandís Steingrímsdóttir, Eggert Kristmundsson, Einar
G. Pétursson. I ritstjórnartíð Einars Kristjánssonar voru síðan í rit-
nefnd: Brandís Steingrímsdóttir, Kristinn Steingrímsson, Einar G.
Pétursson).
47,- 55. árgangur (1989-1997) Ámi Bjömsson og Einar G. Pétursson.
Bára hefur í Inngangi gert grein fyrir þeim hlutum efnisskrárinnar,
sem hún samdi, þ. e. aðalskrá og atriðisorðaskrá, en allt hef ég yfir-
farið og ber endanlega ábyrgð á villum í skránni. Verði menn varir
við einhverjar villur bið ég menn að skrifa mér: Kaplaskjólsvegi 61,
107 Reykjavík, eða hafa samband við mig í síma 525 4025 eða 551
1746.
Einar G. Pétursson