Fréttablaðið - 06.11.2018, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 06.11.2018, Blaðsíða 2
Veður Gengur í austanstorm með úrkomu. Slydda eða hríðarveður víða til fjalla seinnipartinn. Hvassast syðst og NV- til og talsverðar vindhviður við fjöll. Hiti 1 til 6 stig, en sums staðar vægt frost N-lands. sjá síðu 16 LED TUNNULJÓS IK08 4000KIP65 Rafvirkjar 533 1900 | olafsson.is Jóhann Ólafsson & Co DALI Fyrsti snjórinn á suðvesturhorninu Íbúar á suðvesturhorni landsins sáu hvíta jörð þegar ný vika gekk í garð í gær. Áður höfðu byggðir norðar á landinu, venju samkvæmt, tekið for- skot á sæluna. Snjórinn var seinna á ferðinni í ár en oft áður og íbúar landsins mishressir með komu þessa árlega gests. Ekki var þó annað að sjá en að þessir ferðalangar, sem urðu á vegi ljósmyndara Fréttablaðsins, hafi verið himinlifandi með þetta form ofankomunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN skaftafell Skólpkerfið í Skafta- felli er svo vanbúið ferðamanna- straumnum að tæma þarf rotþrær á svæðinu með tveggja til þriggja vikna millibili. Hreinsun skólps frá aðalstöðvum þjóðgarðsins og snyrtihúsum þar við er stórlega ábótavant. Skólppollar hafa myndast á svæðinu og lykt er af þeim. Hreinsun skólps frá húsum sem kallast Kot og Örninn er ábótavant og allmikil lykt er við enda lagna. Þetta kemur fram í eftirlitsskýrslu Heilbrigðisstofnunar Austurlands en farið var í eftirlit á svæðinu þann 10. september. Krafa er um að lögð verði fram tímasett áætlun um framtíðarlausn allra fráveitumála í þjóðgarðinum fyrir 1. apríl næst- komandi, en jafnframt að tafarlaust verði gripið til aðgerða sem tryggja að skólp standi ekki í pollum innan þjóðgarðsins. Svæðisráð Vatnajökulsþjóð- garðs leggur mikla áherslu á að nú þegar verði hægt að hefjast handa við úrbætur í samræmi við þessar athugasemdir. „Fráveitumál á svæð- inu eru ekki í takt við þann fjölda ferðamanna sem heimsækir Skafta- fell í dag. Stór hluti sértekna Vatna- jökulsþjóðgarðs verður til í Skafta- felli, til þess að svo megi vera áfram, þarf að ráðast í stórfelldar fram- kvæmdir sem munu kosta hundruð milljóna,“ segir í fundargerð Vatna- jökulsþjóðgarðs vegna málsins. Björn Ingi Jónsson, formaður svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs á suðursvæði, segir fjölgun ferða- manna valda þessu. Innviðirnir hafi ekki undan. „Miðað við það að við séum að nálgast milljón ferðamenn þurfum við að gera hér bragarbót. Við vitum ekki nákvæmlega hvað það kostar en þetta er mikilvægt. Þegar við erum komin með þetta marga gesti á ári þá er þetta á við gott þorp á hverjum degi og því þurfum við að bæta þessa hluti,“ segir Björn. Talað er um að æskilegt sé að dæla upp úr rotþróm annað hvert ár og hefur þá niðurbrot orðið. Nú, þegar dæla þarf mjög ört upp úr rotþróm á svæðinu hefur ekkert niðurbrot orðið og því er verið að flytja í burtu hráskólp til meðhöndlunar með tilheyrandi kostnaði. Ljóst er að úrbætur á svæðinu kosti vel á annað hundrað milljónir. sveinn@frettabladid.is Megn ólykt frá skólpi sem stendur í pollum Fjöldi ferðamanna í Skaftafelli hefur aukist svo gríðarlega að fráveitukerfið á staðnum er löngu sprungið. Skólppollar hafa myndast á svæðinu og megn ólykt er af þeim. Tafarlausra úrbóta krafist sem munu kosta hundruð milljóna. Skólppollar hafa myndast á svæðinu FRÉTTABLAÐIÐ/HEILBRIgÐISEFTIRLITIÐ Aukinn fjöldi ferðamanna ástæða ástandsins í Skaftafelli. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELm slys Vonast er til þess að búið verði að dæla stærstum hluta eldsneytis- ins úr flutningaskipinu Fjord vik á land í fyrramálið, segir hafnarstjóri hjá Reykjaneshöfn, Halldór Karl Hermannsson. Flutningaskipið Fjordvik er enn strandað við hafnargarðinn í Helgu- vík. 104 tonn af olíu voru um borð í skipinu en dæling hefur farið fram síðan í fyrradag. Í dag verður komið fyrir búnaði til þess að dæla sjó úr skipinu sem komist hefur þangað inn. Halldór segir illmögulegt að dæla allri olí- unni út því erfitt hafi reynst að kom- ast að ákveðnum stöðum. Kafarar tóku skipið út utan frá í gærmorgun. Halldór segir ljóst að skemmd- irnar á skipinu séu töluverðar. „Það er misjafnt en það sem liggur alveg í grjótinu er að hluta til mjög skemmt en þó kannski ekki óyfirstíganlegt,“ segir hann. Í dag muni það skýrast betur hvernig hægt sé að bera sig að til þess að koma skipinu út. Það verði gert með því að fjarlægja sjó og olíu úr skipinu. Því næst verði reynt að loka fyrir þau göt sem hægt er að loka fyrir og skipinu svo fleytt til hafnar þar sem endanleg viðgerð fer fram. Næsti stöðufundur fer fram í hádeginu í dag. – dfb Mest af olíunni á land í dag Flutningaskipið Fjordvik á strand- stað í Helguvík. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR feRðaÞjÓNusta Fjöldi bílaleiga sem eru í rekstri hér á landi hefur ríflega tvöfaldast frá hruni. Skuldir þeirra nema nú tæpum 49 milljörðum króna en heildareignir eru metnar á rúmar 53,6 milljarða. Þar af eru skammtímaskuldir um 36 prósent. Þetta er meðal þess sem má lesa úr svari ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn Píratans Smára McCarthy. Þar kemur fram að árið 2006 hafi verið sjötíu bílaleigur hér á landi en þær séu nú hundrað fleiri. Í sama svari kemur fram að árið 2006 hafi skráðir gististaðir hér á landi verið 409 en voru í fyrra rúm- lega tvöfalt fleiri. Skuldir þeirra nemi nú tæpum 86 milljörðum og hafa þær fjórfaldast frá 2006. Heildareign- ir hafa á sama tíma nær sexfaldast og eru nú rúmir 125 milljarðar. – jóe Fjöldi bílaleiga og gististaða tvöfaldast 6 . N Ó v e m b e R 2 0 1 8 Þ R I ð j u D a G u R2 f R é t t I R ∙ f R é t t a b l a ð I ð 0 6 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :4 5 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 4 A -2 8 A 4 2 1 4 A -2 7 6 8 2 1 4 A -2 6 2 C 2 1 4 A -2 4 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 5 _ 1 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.