Fréttablaðið - 06.11.2018, Blaðsíða 4
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
Rexton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum
og auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu
og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Með flóknari samrunamálum hér á landi
„Þetta er með flóknari samrunum
til þess að eiga við,“ segir Eggert
B. Ólafsson, sérfræðingur í sam-
keppnisrétti, um kaup Icelandair
Group á WOW air. Því sé spurning
hvort Samkeppniseftirlitið vísi
málinu til eftirlitsstofnunar EFTA
sem taki það til ítarlegrar skoð-
unar í samráði við framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins.
„Það væri einfaldast að gera
það af því að það eru svo margir
markaðir í Evrópu sem koma við
sögu í málinu. Hver flugleið – borg
til borgar – er sérstakur markaður
sem þarf að rannsaka nánar,“
nefnir Eggert.
Samkvæmt reglum samkeppnis-
réttar getur samruni fyrirtækis á
fallanda fæti, til dæmis fyrirtækis
á barmi gjaldþrots, verið heimil-
aður þrátt fyrir að samruninn
sé skaðlegur samkeppni. Sam-
keppniseftirlitið hefur í nokkrum
tilfellum fallist á slík sjónarmið.
Eggert segir að jafnvel þótt
Icelandair byggi á því að WOW
sé félag á fallanda fæti í skilningi
samkeppnisréttar þá verði sam-
keppnisyfirvöld samt sem áður
að kanna hvort önnur félög séu
tilbúin til þess að taka yfir flug-
leiðir eða flugvélastæði WOW
áður en kaupin verði samþykkt.
Ekki sé sjálfgefið að Icelandair fái
að eignast að fullu leiðir eða stæði
WOW.
Í því sambandi bendir Eggert
á að Lufthansa hafi í fyrra þurft
að gefa nokkur stæði eftir til
þess að kaup félagsins á eignum
Air Berlin hlytu náð fyrir augum
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins.
Sveinn Þórarinsson, greinandi
í hagfræðideild Landsbankans,
bendir á að samanlögð markaðs-
hlutdeild flugfélaganna tveggja sé
um 80 prósent á Keflavíkurflug-
velli og „undir venjulegum kring-
umstæðum hefði maður haldið
að eftirlitið legði ekki blessun sína
yfir slíkt,“ nefnir hann.
viðskipti Greinendur telja að kaup
Ice landair Group á WOW air, sem
tilkynnt var um í gær, séu jákvæð
tíðindi fyrir íslenska ferðaþjónustu.
Líkur séu á því að létta muni á þrýst-
ingi á flugfargjöld.
„Þessi tíðindi eru til þess fallin að
auka trú á því til skemmri tíma að
okkar mikilvægasti vaxtarbroddur,
ferðaþjónustan, muni ganga stór-
áfallalaust,“ segir Jón Bjarki Bents-
son, aðalhagfræðingur Íslands-
banka.
Elvar Ingi Möller, sérfræðingur í
greiningardeild Arion banka, segir
að með kaupunum minnki líkurnar
á því að það verði „stór framboðs-
skellur, að flugframboð dragist hratt
saman með að minnsta kosti tíma-
bundnum samdrætti í komum ferða-
manna hingað til lands, eins og hefði
getað gerst ef fyrra ástand hefði verið
viðvarandi til lengri tíma“.
Hlutabréf í Icelandair Group ruku
upp um allt að 60 prósent í verði
eftir að opnað var fyrir viðskipti
með bréfin um eittleytið í gær en
viðskiptin voru stöðvuð fáeinum
mínútum áður en tilkynning barst
um yfirtökuna á tólfta tímanum.
Gengi bréfanna hækkaði alls um 40
prósent yfir daginn í tæplega 950
milljóna króna viðskiptum.
Þá hækkaði úrvalsvísitala Kaup-
hallarinnar um 4,7 prósent í við-
skiptum gærdagsins en mikil velta,
upp á samtals 5,5 milljarða króna,
var á hlutabréfamarkaði.
Hófust á föstudag
Kaupin bar brátt að en til marks um
það hóf Skúli Mogensen, forstjóri
og eini eigandi WOW air, viðræður
við forsvarmenn Icelandair Group
síðdegis á föstudag, samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins. Sérfræð-
ingar KPMG, endurskoðanda beggja
félaga, tóku þátt í viðræðunum með
stjórnendum félaganna og þá komu
starfsmenn Arctica Finance, ráðgjafa
WOW air, einnig að málum.
Skúli mun að lágmarki eignast 1,8
prósenta hlut, að virði ríflega einn
milljarður króna, í sameinuðu félagi
vegna breytingar á víkjandi láni hans
í hlutafé en verðið getur hækkað í
samanlagt 6,6 prósenta hlut, að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum.
Ljóst varð um nýliðin mánaðamót,
við útborgun launa til starfsmanna
WOW air, hve slæm lausafjárstaða
félagsins var orðin, eftir því sem
Fréttablaðið kemst næst. Olíuverðs-
lækkanir – en verð á tunnu af Brent-
hráolíu hefur lækkað um 15 pró-
sent frá því það náði toppi í byrjun
síðasta mánaðar – og gengisveiking
krónunnar – sem nemur á sama tíma
um 8 prósentum – á undanförnum
vikum dugðu ekki til þess að skjóta
styrkari stoðum undir rekstur WOW
og varð ljóst í lok síðustu viku að rót-
tækra aðgerða, svo sem sameiningar,
væri þörf ef ekki ætti illa að fara.
„Í ljósi aðstæðna tel ég að þetta
sé besta lausnin,“ sagði í bréfi sem
Skúli skrifaði starfsmönnum félags-
ins í gær.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins voru lögð fram drög að
sameiningu félaganna um miðjan
septembermánuð, þegar skulda-
bréfaútboð WOW air stóð sem hæst,
en eins og blaðið greindi frá á sínum
tíma funduðu Skúli og Páll Rúnar
Mikael Kristjánsson, lögmaður flug-
félagsins, með Samkeppniseftirlitinu
af því tilefni.
Tillögur WOW air gerðu þá ráð
fyrir að Skúli eignaðist margfalt
stærri hlut í sameinuðu félagi en
raunin varð á endanum. Fengu til-
lögurnar dræmar undirtektir af hálfu
forsvarsmanna Icelandair, að því er
heimildir blaðsins herma.
Fargjöld gætu hækkað
Sveinn Þórarinsson, greinandi í hag-
fræðideild Landsbankans, segir að
hvort sem félögin verði sameinuð
eða ekki þurfi þau að ná „undra-
verðum árangri á kostnaðarhliðinni
til þess að dæmið gangi upp.
Félögin verða enn sem fyrr að
treysta á að flugfargjöld hækki ef
olían er ekki að fara að lækka meira
í verði. Annars sér maður þetta ekki
ganga upp. Sameinað félag gæti jafn-
vel skilað tapi ef fargjöld lækka enn
meira eða olíuverð fer upp,“ segir
Sveinn.
Elvar Ingi nefnir að kaupin séu
að einhverju leyti birtingarmynd
þeirra þröngu rekstrarskilyrða sem
flugfélög hafa búið við undanfarið.
„WOW air sigldi inn í umhverfi
hækkandi eldsneytisverðs án sama
vopnabúrs og mörg önnur flugfélög.
Félagið hefur þurft að takast á við
hærra olíuverð strax á meðan félög
eins og Icelandair eru varin fyrir
breytingum á verðinu, að minnsta
kosti til skemmri tíma.
Auk þess hafa meðalfargjöld
haldist lág og jafnvel farið lækkandi
ef eitthvað er. Í raun eru þessi tíðindi
birtingarmynd þessara áskorana
sem mörg flugfélög hafa þurft að
eiga við. Margir aðilar hafa kallað
eftir því að ákveðin samþjöppun
þurfi að eiga sér stað á evrópskum
flugmarkaði,“ nefnir Elvar Ingi.
Elvar Ingi bendir á að WOW air
hafi verið helsti keppinautur Ice-
landair og á tímum reynst félaginu
óþægur ljár í þúfu. Með sameining-
unni ætti samkeppnisumhverfið því
að breytast nokkuð. Mögulega muni
eitthvað létta á þrýstingi á farmið-
averð. Samkeppnin verði hins vegar
áfram hörð enda verði sameinað
félag aðeins með um fjögurra pró-
senta hlutdeild á markaðinum yfir
Norður-Atlantshafið.
Kaupin minnka hættuna á stóráföllum
Icelandair og WOW air verða áfram rekin undir sömu vörumerkjum en sameiginleg hlutdeild þeirra á markaðinum yfir
Atlantshafið er tæplega 4 prósent. Verður félagið um það bil það tíunda stærsta á markaðinum. FréttAblAðIð/GVA
Hörður Ægisson
hordur@frettabladid.is
Kristinn Ingi Jónsson
kristinningi@frettabladid.is
WOW air sigldi inn
í umhverfi hækk-
andi eldsneytisverðs án sama
vopnabúrs og mörg önnur
flugfélög.
Elvar Ingi Möller,
sérfræðingur í
greiningardeild
Arion banka
Hvort sem félögin
eru sameinuð eða
ekki þurfa þau að ná undra-
verðum árangri á kostnaðar-
hliðinni til þess að dæmið
gangi upp.
Sveinn Þórarins-
son, greinandi í
hagfræðideild
Landsbankans
Greinendur telja að
kaup Icelandair Group á
WOW air minnki lík-
urnar á því að íslensk
ferðaþjónusta verði fyrir
verulegum skakkaföll-
um í vetur. Sérfræðingur
í samkeppnisrétti segir
kaupin með flóknari
samrunamálum sem
hafi komið á borð Sam-
keppniseftirlitsins. Við-
ræður hófust á föstudag.
6 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 Þ r i ð J U D A G U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
0
6
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
4
A
-3
C
6
4
2
1
4
A
-3
B
2
8
2
1
4
A
-3
9
E
C
2
1
4
A
-3
8
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
5
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K