Fréttablaðið - 06.11.2018, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 06.11.2018, Blaðsíða 24
Afgerandi ytri hönnunin er ekki beint að fela það að hér fer grimmur sportbíll. Reynsluakstur Finnur Thorlacius finnurth@frettabladid.is Kostir og gAllAr HondA CiviC type-r l 2,0 lítRa bensínvél l 320 hestöfl l fRamhjóladRif eyðsla frá: 7,7 l/100 km í bl. akstri mengun: 176 g/km CO2 hröðun: 5,8 í 100 km hraða hámarkshraði: 272 km/klst. verð frá: 7.250.000 kr. Umboð: Bernhard l Afl l Aksturseiginleikar l Útlit l verð l stífur á fjöðrum bíll sem fer Nürburgring-braut-ina á 7 mínútum og 43,8 sek-úndum er allrar athygli verður og ekki síst þegar um er að ræða bíl sem kostar ekki nema 7.250.000 kr. Það á við Honda Civic Type-R og sá bíll var reyndur í síðasta mánuði og þess notið til hins ýtrasta, enda fer hér einn magnaðasti „hot-hatch“- bíll sem fá má. Það eru heldur ekki svo margir slíkir bílar sem bjóðast hér á landi og helsti samkeppnis- bíll hans, Subaru WRX, er til dæmis ekki í verðlista umboðsfyrirtækis Subaru, þ.e. BL. Því er einkar gaman að sjá að Bernhard skuli bjóða þennan bíl hérlendis og það sem lagervöru. Útlit Honda Civic Type-R er afar afgerandi og það leynir sér ekki að þarna fer bíll sem krefst þess að á honum sé tekið. En ekki láta grimmt útlitið blekkja þig, þar er allt smíðað með ástæðu. Hann á að límast við malbikið og stór vind- skeiðin að aftan tryggir það meðal annars og allt annað sem gerir þennan bíl svona grimman útlits og kraftalegan er til að tryggja kælingu vélar eða hemla bílsins. Allt fyrir grimman akstur og ekkert falið til að gera það með stæl. Sumum gæti fundist útlitið of afgerandi en þeim hinum sömu skal bent á annan „hot-hatch“-bíl, þ.e. Volkswagen Golf R, en þar fer úlfur í sauðargæru sem lætur lítið yfir sér útlitslega, en hann er líka dýrari. 320 hestafla villidýr En það sem ef til vill umfram allt gerir Honda Civic Type-R svo hrað- skreiðan er 320 hestafla vélin sem undir húddinu lúrir. Þar fer vél sem ljónið á veginum Honda Civic Type-R er undravert ökutæki sem bæði á besta tíma framhjóladrifinna bíla á Nürburgring-brautinni og er svo ljúfur fjölskyldubíll fyrir 5 farþega og með ágætt skottrými. Sannkallaður draumur bílaáhugamannsins. er ekki með nema 2,0 lítra sprengi- rými með eina forþjöppu. Þessi vél er afar háþrýst og krefst þess að ökumaður snúi henni á ógnarhraða til þess að þessa bíls verði notið eins og verkfræðingar Honda ætluðu. Það hefur reyndar alltaf átt við vélar Honda, það á hreinlega að taka allt út úr þeim með því að þenja þær í gírunum og allt gríðaraflið er ekki tekið út nema með því að nálgast rauðu línuna að 7.000 snúninga markinu. Þannig á að aka þessum bíl og það var gert með mikilli gleði. Það má reyndar undrum sæta að allt þetta afl sem í Honda Civic Type-R er sé sent aðeins til fram- hjólanna og fyrir vikið þarf dálítið að passa upp á það að bíllinn spóli ekki fullmikið. Fyrir því fannst þó ekki svo mikið þó hægt sé að gera það í nokkrum lægri gírum bílsins. Talandi um gíra þá er Honda Civic Type-R að sjálfsögðu bein- skiptur, eins og svona bílar eiga að vera. Þannig njóta þeir sem elska svona bíla akstursins best og vilja ekkert annað, enda er hann ekki í boði sjálfskiptur. líka fjölskyldubíll með mikið rými Það furðulega er þó að þótt þessi bíll sé uppsettur dálítið eins og brautarbíll getur hann verið eini bíll fjölskyldunnar, svo þægilegur er hann í akstri þó að stífur sé. Honda Civic Type-R er nefnilega með akstursstillingum, Normal, Sport og Sport+. Ef stillt er á Normal er þessi bíll einkar þægilegur í akstri og ef haft er í huga að hann er 5 manna með fín aftursæti og gott skottrými er hreinlega lítil þörf fyrir annan bíl ef ekki á að fara á fjöll. Honda Civic Type-R af þessari nýju kynslóð er 38% stífari en forverinn og fyrir því finnst í lítilli hreyfingu yfirbyggingarinnar. Greinarritari stóð sig að því að stilla bílinn í lengri akstri á Normal en í Sport eða Sport+ á styttri leiðum þar sem margar beygjur og hring- torg leyndust til að njóta þess besta í bílnum. Ég minnist hreinlega ekki meira veggrips en þessi bíll hefur á sínum breiðu 245/30 ZR20 sportdekkjum sem eru hreinlega korter í brautardekk. Bíllinn var svo límdur í malbikið á hring- torgum og ekki hef ég farið hraðar í gegnum þau á nokkrum bíl. Hann er með nánast enga undirstýringu og það er líklega hræðsluvekjandi að ganga að þeim mörkum er hann lætur undan. Þessi bíll er bara algjör klessa á vegi og fær hárin til að rísa. Til þess var hann líka smíðaður. Brembo-bremsur bílsins eru svo sér kapítuli með 13,8 tommu diska og stöðva bílinn á undraskömmum tíma. Frábær skipting og stutt á milli gíra Að handskipta þessum bíl er líka dásemd, hann er með afar stutt á milli gíra, eins og það á að vera með svona hæfan hraðakstursbíl. Þessi skipting er með allra bestu bein- skiptingum sem undirritaður hefur reynt, svo stíf og með svo geggj- uðum þriðja gír að þar vill maður dvelja sem lengst og þenja hann sem allra lengst einmitt þar. Hvað skyldi svo svona öflugur bíll eyða miklu með öll þessi hestöfl til taks? Jú, 7,7 lítrum í blönduðum akstri. Ekki ætti því eyðslan að hræða neinn frá kaupum en líklegt má nú telja að fáir aki þessum bíl í þeim tilgangi að ná sem minnstri eyðslu hans, en því má samt ná. Innrétting Honda Civic Type-R er sportleg og einföld og hönnuð í því augnamiði að ökumaður sé snöggur að öllu, hér er ekki verið að flækja neitt og engu ofaukið. Þannig eiga sportbílar líka að vera. Framsætin eru hrikalega sportleg og flott en umfram allt þægileg og halda öku- manni límdum og ekki veitir af. Honda á Íslandi býður Honda Civic Type-R í enn flottari GT-line útfærslu á 7.550.000 kr. Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. Revolution Macalibrium® Karlmenn sem komnir eru á miðjan aldur glíma margir hverjir við einkenni sem rekja má til minnkandi framleiðslu testósteróns. Revolution Macalibrium er blanda ólíkra arfgerða macajurtarinnar, sérstaklega ætluð karlmönnum til að draga úr þessum einkennum og koma meira jafnvægi á hormónabúskapinn. Maca er afar virk rót og því er ráðlagt að byrja á því að taka 1 hylki á dag og bæta við öðru hylki eftir 1-2 vikur. Eftir 3-4 mánuði má minnka skammtinn aftur niður í 1 hylki en það gæti nægt til að viðhalda jafnvægi. Meiri kynlöngun - minni kvíði Hefur góð áhrif á: • Orku og úthald • Beinþéttni • Kynferðislega virkni • Frjósemi og almennt heilbrigði Femmenessen 5x10 Revolution copy. df 1 25/01/2018 14:25 6 . n ó v e m b e R 2 0 1 8 Þ R i Ð j U d a G U R10 b í l a R ∙ f R é t t a b l a Ð i Ð Bílar 0 6 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :4 5 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 4 A -5 A 0 4 2 1 4 A -5 8 C 8 2 1 4 A -5 7 8 C 2 1 4 A -5 6 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 5 _ 1 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.