Stjarnan - 01.07.1920, Blaðsíða 2

Stjarnan - 01.07.1920, Blaðsíða 2
98 STJARNAN Hún var trú til dauðans. það er indæl saga nm trúmensku í smásögum sem Jean Ingelow hefir sagt oss: pessi saga gerðist í einni af Orltn- eyjunum, em liggja fyrir norðan Skot- land. Út frá strönd þessarar eyjar stóð stór drangi, éem var nefndur “Lonely Rock” og var þessi klettur mjög liættu legur fyrir þá, sem sigídu fram hjá í dimmviðri. Eina nótt fyrir mörgum ár um sat í fiskimannakofa einum, skamt frá Lonly Rock, ung stúlka við rokk sinn og- spann meðan hún við og við gáði að veðrinu, hlustaði á brimhljóðið og söng vindarins. Að lokum birti af degi og einn bátur, sem hefði átt að vera kominn í höfn, var.týndur. pað var bátur föður hennar, og hálfa mílu frá heimilinu fundu þeir lík föðursins, sem hafði skolað á land. Bátúr hans hafði brotnað við Lonly Rock. petta gerðist fyrir meira en fimtíu árum. “Stúlkan vakti yfir líki föður síns, eftir siðvenju eyjarskeggja, þang- að til að það var grafið; þá lagðist hún út af cg sofnaði. pegar kveldið kom fór hún á fætur og setti kerti í glugg- aun til lýsa sjómönnum og leiðbeina þeim. Alla nóttina sat hún hjá Ijósinu og tók af skarið í hvert skifti sem það fór að verða dauft. Eins margar hesp- ur og hún áður hafði spunnið til þess að geta haft til hnífs og skeiðar, spann hún enn, og þar að auH eina hespu til þess að geta borgað fyrir kertið. Og frá þeim degi og þangað til að þessi saga var sögð (uni æskuskeiðið, á full- orðinsárunum og eftir að hún var orð- in gömul) hefir hún noiað nóttina til að 'vinna í staðinn fyrir daginn. pegar það ivar öskuhríð á vetrum, bæjariogn á sumrum, í þoku, í tælandi tunglsljósi og í kolniðamyrkri, hefir þessa norð- lægu höfn aldrei vantað ljósið frá þessu litla kerti. pað stóð á sama hve langt sjómaðurinn viar úti á sjónum, þegar hann stefndi beint á ljósið í glugganum var hann viss um að rata inn höfnina.” Og svo í öll þessi fimtíu ár skein þetta litla ljós, sem isjálfsafneitun og mannkærleiki hafði kveikt, til þese að glæða og frelsa. Yissulega var þetta tækifæri til að þjóna í allri auðmýkt. Vissulega var einvera þessarar stúlku dýrðleg gerð af trúmensku. Vissulega hefir bros Drottins vons, Jesú Krists, fylgt gieislunum frá ljósinu, sem skein frá þessum litla glugga, þegar þeir gengu út til þess að gleðja og leiðbeina fiskimönnunum, þar sem bátar þeirra dönsuðu á öldunum. Látum oss, kæri vinur, reyna að vera eins trúir. Ljós vor geta ef til vill verið lítil, en látum ohs sjá um að þau séu skínandi og björt hvar sem vér erum staddir. E. L. “Kerrann mælti: Vel liefir þú gert, þú góði og trúlyndi þjónn, þú varst trúr yfir litlu, eg mun sitja þig’ yfir mikið; gakk inn í fögnuð Hcrra þíns.” Matt. 25:21. “Vertu trúr alt til dauðans, þá mun eg gefa þér lífsins kórónu,”

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.