Stjarnan - 01.07.1920, Page 16

Stjarnan - 01.07.1920, Page 16
I 0M GOÐ SVÖR. 1 klaustri einu, voru tólf munkar, er höfðu dregið sig úr frá heiminum. þegar þeir höfðu búið um sig að öllu leyti, skrif- uðu þeir yfir dymar þessi orð: “þietta er klaustur gleðinnar.” þegar keisarinn einu sinni fór þar fram hjá, leit hann á þessi orð er þar voru skrifuð. “Ekki,” hugsaði hann. “þér munkar hafið engar áhyggjur, en eg, sem er voldugur höfðingi, er aldrei laus við þær. Eg skal gefa yður áhyggjur. þá lét hann kalla munk ana fyrir sig og sagði við þá: “Eg ætla að leggja fyrir yður þrjár spurningar, og eftir þrjár vikur verðið þé.r að- hafa svarað þeim; ef þér getið það ekiki, þá skuluð þér verða reknir burt út í hina víðu v-eröld. ■ “Hinar þrjár spumingar hljóða þannig: Hvenær hungraði brauð- ið? Hvenær þyrsti vatnið? Hve- nær var vegurinn þreyttur?” Munkarnir vissu ekki hvernig þeir ættu að komast út úr þess- um vanda, og þegar þrjár vikum- ar vo-ru næstum liðnar, voru þeir jafnnærri. þá fann einn af þeim iðnaðarsvein, er ispurði, hvers- vegna hann væri svo hryggur, og þegar sveinninn fékk að vita ástæðuna, lofaði hann: “Á þeim ákveðna degi ,skal eg koma og 'hjálpa yður.” Á tilteknum tíma kom keisar- inn með skrauti og viðhöfn. Iðn- aðarsveinninn var einnig kominn og var klæddur munkaklæðum o-g stóð fremstur í hóp munkanna. Keisarinn kom með sömu spum- ingarnar aftur: “Hvenær hungr- aði brauðið? Hvenær þyrsti vatn- ið? Hvenær var vegurinn iþreytt- ur?” Sveinninn svaraði :“þegar Drott inn Kristur hafði fastað í 40 daga og 40 nætur á eyðimörtkinni og seinast hungraði, þá hungraði brauðið, því hann segir sjálfur: “Eg er lífsins brauð. ” (Jóh. 6:35.) þegar hann á krossinum hrópaði: “Mig þyrstir, ” þá þyrs-ti vatnið, því -hann segir sjálfur: “Ef nokkurn þyrstir, hann komi til mín og drekki!” (Jóh. 7:37.) þegar liann svaf í skipi lærisveina sinna, þá var vegurinn. þreyttur, því liann segir: “Eg er vegurinn, sannleikurinn og lífið”. (Jóh. 14:6.) Keisarinn hrósaði svörum hans ,og sagði: “þnemur spumingum •hefir þú svarað rétt, nú vil eg gefa þér eina enn: “ilver.su langt er það milli örbirgðar og auðæfa? ; “Fjórði hluti -stundar, ” svar- aði iðnaðarsveinninn, því fyrir fimtán mínútum var eg fátækur ipiltur, ien nú er eg sá efsti í klaustri gléðinnar. ’ ’ - “það skal veitast þér framveg- is að vera,” svaraði keisarinn. ►(O f

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.