Stjarnan - 01.03.1921, Blaðsíða 7
STJAKNAN
39
upphæö; en viö þess konar tækifæri eru
peningarnir hvorki reiknaðir eftir
stæröfrðæislegum reglum né eftir ágizk-
un veraldlegra manna.
“Alt, sem maðurinn á, gefur hann
fyrir líf sitt.” Og þó að' peningaelskan
sé núna ríkjandi í sál þinni, þá kemur
dagur, þegar gróði mun enga þýðingu
hafa. í dimmu dauðans skuggadals mun
hið skínanda gu’l ekki seöja hið gráðuga
auga. Þégar náttúran hefir náð tak-
mörkum sínum, er auður sá, sem margir
hafa notað alla sina æfi til að hrúga
saman, eins lítils virði og sandur á sjáf-
arströnd.
Og þegar reikningsasakapar dagurinn
kemur, þegar þjóðir jarðarinnar munu
safnast um 'hið mikla hvíta hásæti og
hafið skilar hinum mikla fjölda dauðra"
manna; þegar allir, sem í gröfunum eru,
munu lieyra raust Guðs sonar; þegar
framliðnir, smáir og stórir, munu sjá
dómarann, sem Guð hefir kjörið til að
dæma; þegar dómurinn, sem ákveður
hina eilífu velferð eða dauða mannanna,
er undir hans orðum kominn, æ, frammi
fyrir hinum heimilis’ausa galiieiska píla-
grimi, sem dó fyrir oss og hvers fátækt
menn svo lengi hafa fyrirlitið, hvað munu
peningar þá koma koma til leiðar ? Mun
það gagna mönnum þá að hugsa um
feykimikla ríkdóma, ef þeir hafa engan
fjársjóð á himnum og enga syndakvitt-
un, sem er innsigluð með blóði Krists?
Þú jarðarbúi, sem ert fæddur til að
mæta sorgum og erfiðieikum, gá þú að
þér, að þú leggir ekki elsku þína á ófor-
gengilegu hlutina. Eftir ofurlitla stund
munu a'lir jarðneskir hlutir líða undir
lok. “Heimurinn fyrirferst og fýsn
hans, en sá, sem gjörir Guðs vilja, varir
að eilífu.” Vertu viss um, að þú byggir
á öruggum grundvelli. Láttu sál þína
hvíla á hinum eilífa kletti. Kásta þú
byrði þinni á Krist, lamb Guðs. Fyrir-
líttu dekur hins hnignanda heims. Treyst
þú ekki auðæfum, sem munu bregðast
þér á degi neyðarinnar. Vertu viss um,
að þú ert eigandi þess auðs, sem mun
bjarga þér, þegar þú þarft á hnoum að
halda, í lífi og dauða, um tíma og eilífð.
f dag standa fyrirgefning, náð, frels-
un og eilíf dýrð þér til boða. Ætlar þ,ú
að hafna öllu þessu? Á morgun getur
þú ef til vill, boðið þúsund guineas fyrir
augnabliks náðartima og alt til einskis.
Meðan þú enn ert meðal hinna lifendu,
þá vel þú þér hið góða hlutskifti: “Trú
þú á Drottin Jesúm, og þú munt verða
hólpinn.”
II. L. H.
Frjálsrœði og drykkjuskapur.
Enkur bsikup nokkur sagði einu sinni:
“Eg vil heldur sjá England frjálst en al-
gáð.” Þetta notaði hinn frægi prestur
Farrar eitt sinn sem ræðuefni, og sagði
þá meðal annars: “Skorpkvikindi það,
sem að eins hefir frjálsræði til að bylta
sér á bálið, er ekki frjálst. Skip það,
sem að eins hefir frjálsræði til að fleygj-
ast upp i klettana, hrakið af vindi og
sjó, án nokkurrar stjómar, er ekki
frjálst. En 128,000 vínsöluihús, hálf mil-
lión manna, sem kærðir hafa verið fyrir
drykkjuskap og ólöglegt athæfi á einum
tíu árum, 100,422 rán á að eins einu ári,
2,736 misþyrmd börn og konur, 16,525
ákærðar konur fyrir drykkjuskap, aðeins
í London á einu ári, — ef alt þetta þýðir
frjálsræði, þá látum oss heldur í nafni
himinsins, velja dygðanna heilsusamlega
þrældóm, kristilegra laga bönd, því þræl-
dómur sá er betri en þvílíkt frjálsræði.”