Stjarnan - 01.03.1921, Page 15
STJARNAN
47
kemur út mánaðarlega.
Útgefendur : The Western Canadian Union Conference of S.D.A .
Stjarnan kostar $1.50 um áriS i Canada, Bandaríkjunum og á Islandi .1
fBorgist fyrirfram).
Ritstjóri ocj Ráðsmaður : DAVÍÐ GLJDBRANDSSON
Skrifstofa: 302 Nokomis Building, Winnipeg, Manitoba, Canada.
J Talsími: A-4211
Hve marga?
(NiSurl. frá bls. 34)
“GjörSu svo vel.”
“Mundir þú gjarnan vilja sjá móður
þína reykja vindla, tyggja tóbalc, saurga
varirnar, óhreinka andardráttinn og
eitra blóðiS eins og þú gjörir? Mundi
þig langa til að heyra hana blóta, bölva
og nota óþverra mál? Mundi þig langa
til að hún kæmi og sæi þig núna?”
Með lágri rödd svaraði hann: “Nei,
með engu móti.”
“Mundi systur þinni geðjast að því
að sjá 'hvað þú ert að gjöra núna?”
Hann ansaði engu.
“Mundi unnusta þín gleðjast yfir því,
að sjá þig núna? Mundir þú vilja kvong-
ast henni ef hún reykti og tygði tóbak
og biótaði eins og þú gjörir?”
“Nei, það mundi eg ekki gjöra.”
“Hvaða rétt hefir þú þá til að heimta
af henni hreinleika, fegurð, göfuglyndi
og alt sem gott og æskilegt er, og svo
gefa henni óhreint hjarta, líkama, eitrað-
an af níkótín og saurugan munn og
andardrátt—hinn óhreina mann, sem þú
ert? Hvaða rétt hefir þú til.að heimta
af henni það, sem þú ekki heimtar af
sjálfum þér?
“Og enn framar: Hve marga unga
rnenn þekkir þú, menn, sem þú ert í fé-
lagsskap við, — hve marga mundir þú
vilja sjá eignast þína hreinu systur?
Hve marga?”
Hinn ungi hávaxni' niaður, sem stóö
hjá mér, henti vindlinum út á strætið,
hristi efablandinn höfuðið og gekk i
burtu.
fLausl. þýtt eftir J.M.H.)