Stjarnan - 01.03.1921, Qupperneq 16

Stjarnan - 01.03.1921, Qupperneq 16
SPURNINGA-KASSINN. Hcrra ritstjóri Stjörnunnar, viltu gjöra svo vel að segja mér, hvort barnaskírn sé nefnd eða skipuð I nýja testamentinu? Biblían kennir skýrum oröum, aö engum manni sé leyít aö bæta viö cða fella úr Guðs orði. “Bættu engu við Guðs orð, svo að hann hegni þér ekki, og þú reynist ó- s'annorður.” (Orðskv. 22: 18, lQh Svo vér skiljum hve hræöileg sú villa er, að breyta eða draga úr orðum frelsarans. 1 bréfinu til Galatamanna talar Pá'l postuli um hve nauðsynlegt það er að kenna fagnaðarerindið eins og það kom frá frelsaranum: “En þó vér eða engill frá himni boðaði yður náðarlærdóminn öðru- visi, en eg hefi kent yður, hann sé bölvaður.” (Gal. 1:8). Hvað kendi þá frelsarinn við- víkjandi skírninni? Hvenær og hvernig skírði hann, sem sjálfur er vegurinn og fyrirmynd vor i öllu? Hlustið á hans eigin orð: “Mér er alt vald gefið á himni og jörðu ; far- ið og kennið öllum þjóðum, og skírið þær í nafni Eöður, Sonar og Heilgas Anda” (Matt. 28: 18, 19J. Það fyrsta, sem postular Drott- ins, samkvæmt skipun frelsarans, uröu að gjöra, var að uppfræða fólkið um veg hjálpræðisins og þar næst, eftir að fólkið var búið að á- kveða að hlýða fagnaðarerindinu, að skíra það. Að Kristur hefir meint þetta, kemur enn gleggra í ljós í orðum hans í Markúsar guð- spjallinu: Sá, sem trúir og verður skirður, mun hólpinn verða, en sá. sem ekki trúir, mun fordæmast.” (Marlc. 15: 16). Trúin verður að anga á undan skirninni. Maðurinn verður að sannfærast um synd sína, gjöra iðr- un, trúa og breyta eftir fagnaðar- erindinu fyr en hann er hæfur til að skírast. Lítil börn hafa ekki vit á að trúa á Guð. (5. Mós. 1: 39J- Hjá Pétri postula fáum vér upp- lýsingu um hvað skírnin er. “Og nú gjörir skrnin, sem ekki er burt- tekt líkamans saurugleika, heldur sáttmáli c/óðrar samvizku við Guð, eins og eftirmynd (hinnar fyrri frelsunar) oss hólpna vegna upp- risu Jesú Krists” (1. Pét. 3:21,). Til þess að gjöra þennan sáttmála, verður maðurinn að vera fullorð- inn, aö hann hefir skilning á, hvað hann er að gjöra. Lítil börn geta ekki gjört sáttmála. Skírnin er einnig greftrun hins gamla synduga manns. “Eða vitið þér ekki, að vér, svo margir sem skiröir eruni til Jesú Krists, vér erum skirðir til hans dauða? Vér erum því greftraðir með honum fyrir skírnina til dauðans, svo að eins og Kristur uppreis frá dauðum fyrir dýrð Föðursins, svo eigum vér einnig að ganga í endurnýjungu lífsins” (Róm. 6:3, 4). Skirnin er eins og undirskrift sáttmálans milli Guðs og hins iðr- anda syndara upp á það, að hann hú cleyðir hinn gamla mann, drekk- ir honum í skirnarvatninu og ris trpp nýr maöur i Drotni. Biblían ta'ar þess vegna að eins um eina skirnaraðferð og er það niðurdýf- ingarskirnin. Þannig var Jesús skirður af Jóhannesi, þegar hann var 30 ára gamall (Matt. 3: 16 og Lúk. 3:21-23). Samskonar aðferð notuöu postularnir (Post. 8:38). Það var skírn að eins þar sem “var vatn mikið” (Jóh. 3:23). Vatnsausturinn er ekki nefndur í biblíunni. Á íslandi var það sið- ur í heiðni að “ausa barnit vatni“ á sama hátt og það er gjört í þjóð- kirkjunni enn í dag. Biblían viður- kennir ekki vantsaustur. (Sjá: Ef. 4:5; Lúk. 2:11; Róm. 3:26; Post. 19: I-5J. Frá bibliunni er barns- skírnin því ekki lcomin, hún er þar hvorki nefnd né skipuð, en vatns- austurinn er kominn úr heiöni gegn um kaþólskuna til vor.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.