Stjarnan - 01.04.1921, Side 16

Stjarnan - 01.04.1921, Side 16
SPURNINGA-KASSINN. Jóh. 1:18: Ber að skilja þetta vers svo, að Móses hafi ekki séð Guð? Versiö ihljóðar þannig: “Enginn hefir nokkum tíma séð Guð; son- urinn eingetni, sem hallast að brjósti föSursins, hann hefir veitt oss þekkingu á honum.” Jhannes talar hér um föðurinn. Hann segir skýrum orðum, a'S enginn hafi séS föðurinn. En svo kemur spurningin um hvort Móses hafi ekki séð Guð. Móses bað einu sinni Guð: “Eát mig þá sjá dýrð þína.” Drottinn löfaði honum að láta allan sinn ljóma líða fram ihjá honum, en um leið bætti hann við: “Þú getur eigi séð auglit mitt; því að enginn maður fær séð mig og lífi haldið ......En þegar dýrð min fer fram hjá ........ mun eg byrgja þig með hendi minni, unz eg er kominn fram hjá. En þegar eg tek hönd nrina frá, munt þú sjá á bak mér; en auglit mitt fær enginn maður séð.” — 2. Mós. 33: 18-23. Móses sá aldrei auglit Guðs. I 4. Mós. 14: 14 segir Móses við Guð, að Egypt- ar hafi sagt: “að þú. Drottinn, haf- ir birzt þeim éfsraelítum) augliti til auglitis”. Og í 5. Mós. 34: 10, þar sem Jósúa talar um andlát Móse, lesum vér: “En eigi reis framar upp í ísrael annar eins spá- maður og Móses, er Drottinn um- gekst augliti til auglitis.” Móses umgekst Drottin, en hann sá aldrei auglit hans. Enginn mað- ur getur. síðan synd kom í heim- inn , séð Guð “og lífi haldið”. Drottinn byrgði mennina með skýi eða eldstólpa eða hönd sinni í hvert sínn, sem hann talaði við þá. Guðdómurinn er þrenning: Guð faðir, Guð sonur, Guð heilagur andi. eru hinar þrjár persónur í guðdóminum. Hver þessara þriggja var það, sem umgekst Móse? Var það Guð faðir, eða Guð sonur. eða Guð heilagur andi? Páll postuli svarar þessari spurningu: “Því að ekki vil eg, bræður, að yður skuli vera ókunnugt um það, að feður vorir .......... drukku allir hinn sama andlega drykk; því að þeir drukku af hinum and-‘ lega kletti, sem fylgdi þeim, en kletturinn var Kristur.”—1. Kor. 10: 1—4. Svo vér skiljum að það var Krist- ur, sem umgekst Móse augliti til auglitis, en ekki Guð faðir. Krist- ur var sem sé Guð áður en hann kom í þennan heim, Jóh. 1:1, 14. Höfum vér með þessu sannað, að Jóhannes sagði sannleika, að eng- inn maður hefir séð Guð föður, sem hann taiar um í Jóh. 1: 18. Jóh. 10:34. Hvernig ber að skilja þetta vers? Versið hljóðar þannig; “Er ekki ritað i lögmáli yðar: Eg hefi sagt: þér eruð guðir.” Þessi orð, sem Jesús hér notar, eru fundin i Sálm. 82: 6. Það bar oftar en einu sinni við, að Guð nefndi vissa þjóna guði. Á tveim- ur stöðum finnum vér, að Drott- inn nefnir Móse guð: “Sjá, eg gjöri þig f'Mósej sem Guð fyrir Faraó” 2. Mós. 7: 1. “Þú (Móses) skalt vera honum óAron) sem Guð”. 2. Mös. 4: ió. Af þeim dæmum, sem vér höfum í biblíunni upp á þetta, skiljum vér, að Drott- inn nefnir að eins þá menn guði, er sendir eru með sérstakan boðskap, sem er líf til þeirra, er veita honum viðtökur, og dauði til þeirra, er hafna honum. Þetta kemur gögglega í ljós í eftirfarandi orð- um Páls postula : “Vér erum erind- rekar í Krists stað, eins og það vcvri Guð, sem áminti fvrir oss.” 2. Kor. 5:25. Þess vegna gat hann sagt: “Því að vér erum góðlimir Krists fyrir Guði meðal þeirra, er hólpnir verða, og meðal beirra er glatast; þeim síðarnefndu ilmur af dauða til dauða, en hin- um ilmur af lífi til lifs” 2. Kor. 2: 15, 16. Það er í þeirri merkingu að Drottinn nefnir þjóna sína guði.

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.