Stjarnan - 01.03.1926, Page 14

Stjarnan - 01.03.1926, Page 14
4r> STJARNAN ibornar frarn samkvæmt lögmáli. Jesús afnumdi þess vegna þess konar lögmál, sem sagði fyir um þessar sláturfórnir og matfórnir. Hann afnumdi þetta fórnar- lögmál, þetta skuggalögmál, sem post- ulinn talar um, er hann segir: að fyrir ulinn talar um, (sjá Efes. 2: 15 og Kól. 2: ió, 1 y). En þetta var ekki þaS lög- mál Guðs, er Jesús talar um, er hann seg- ir a5 fyr muni “himin og jörð líSa undir lok”, en að “einn smástafur eða einn staf- krókur lögmálsins líði undir lok” fMatt. 15: 8). Þarna talar Jesús um siðalög- máliS, tíu boðorðin, sem hann hvorki var kominn til að afnema eöa breyta, en mundú halda áfram aðl vera algild. Því þar sem ekki er lögmál, þar er heldur engin synd, því þá er ekki um neitt brot aðl ræða; en nú heldúr synd áfram aS vera til, og þaS. sannar lika að lögmál GuSs heldur áfram aS vera til. Svo, ef þú, vinur, trúir þessu orði Krists og orði GuSs um lögmál hans og einnig það boSorSiS sem talar um hvíld- ardag hans, þá ert þú jafn sekur þeim, sem ekki trúa orði GuSs um ýmislegt annað, til dæmis um fæðingu og frið- þægingu. Hefir þú hugsaS um þetta? Vér megum ekki horfa svo stöSugt á flís- ina í auga bróSur vors, að vér ekki sjá- um íbjálkann í eigin auga voru. Jesús og fórnarblóð hans er laugin, sem sem þú átt að þvo þig í, hreinan af allri synd, en boðorð Guðs er spegillinn, sem sýnir þér synd þína. Þú gengur fyrir þennan spegil og“ skoSar þig, og ef þú sérS, að þú ert ekki ihreinn, ef þú kemst aS því, aS þú brýtur eitthvað af boðum Guðs, þá þarftu að þvo þér betur, en þér gagnar ekki aS ibrjóta spegilinn. Hann er hreins'kilinn og segir þér frá synd þinni, og bendir þér á Jesú, sem getur hreinsað þig af allri synd. FarSu þá að ráðum postulans og “skygnstu inn í hiS full- komna lögmál frelsisins” og “haltu þér viS það” fjak. 1: 25J. Pétur SigurSsson. Búddatrúarmenn í Kína og Japan eru nú fyltir trúboSsanda og hafa ákveSið aS dreifa trú sinni út um allan heíminn. Hafa þeir þegar þýtt bækur sínar og tímarit á öll helztu Vesturlandamálin og ætla þeir! nú. að senda fyrirlesara út um öll þessi lönd. Eins og stendur eru 133 miljónir Búddatrúarmanna í heiminum. Á Indlandi, þar sem Búdda lifði og kendi, er trú hans svo aS segja dauð. En í Kína, Japan, Kóreu, Síam og Birma er hún mjög sterk. Þessi hreyfing var fyr- irsögð í Guðs orSi og þeir, sem það rann- saka, hafa lengi vitað að hún1 mundi koma. Spádómurinn segir sem sé: “Og þaS skal verða á hinum síðustu dögum ......aS þeir eru allir í austurlenzkum göldrum og spáförum” þEs. 2: 1—6J. Allir spádómar viðvíkjandi þessum tíma eru að rætast fyrir augum vorum. ÞaS er sagt, að verðiS á striga, sem hafður er í po'ka, muni innan skamms stíga uppj í geypiverð, þvi að Indland, sem aðallega framleiSir þetta efni, getur ekki sent á markaS árlega nema 8 milj- ónir bagga, en notaðir eru 10 miljónir bagga á ári hverju. Svertingi nokkur, í riddaraliði Banda- ríkjanna, Sergeant Hansen Outley aS nafni, hefir verið kjörinn til þess að vera aðal foringi hersins í Liberia á Vestur- strönd Afríku. Liberia er Svertingja lýSveldi undir vernd Bandaríkjanna. Það eru ekki nema iþúsund manns í hernum. Nú eru menn komnir svo langt í ljós- myndunarlist, aS þeir geta tekið myndir af) byssukúlum, sem fara 2,700 fet á sekúndu. Þeir hafa sérstakan rafmagns- neistá sér til hjálpar í þessari myndun.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.