Fréttablaðið - 21.11.2018, Síða 22

Fréttablaðið - 21.11.2018, Síða 22
„Það er mikilvægt að launahækkanir verði hóflegar og í takt við getu fyrirtækja til að standa undir þeim,“ segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju. FréTTablaðið/Ernir EyJÓlFsson Stórtækar breytingar á næstu tíu árum Á næstu tíu árum mun bílaheimurinn taka meiri breytingum en á síðustu hundrað árum,“ segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju og formað- ur Bílgreinasambandsins frá árinu 2013. „Fram undan eru stærri skref varðandi sjálfkeyrandi bíla, eflaust mun deilihagkerfi með bíla ryðja sér til rúms, bílar verða knúnir vist- vænni orkugjöfum eins og rafmagni og vetni og hægt verður að tala við þá í gegnum forrit í símum. Þetta eru frábærir tímar til að vera uppi á og stórkostlegt að starfa hjá fyrirtæki í hringiðu þessara breytinga,“ segir hann. Nú er sannarlega tími breytinga. Bílaumboð standa frammi fyrir tveimur áskorunum. Annars vegar er reiknað með að það muni draga úr bílaeign og fólk muni í meiri mæli taka bíla á leigu til skemmri tíma þegar á þarf að halda. Hins vegar að þjónustutekjur muni minnka vegna rafbílavæðingar en rafbílar þurfa ekki jafn mikið viðhald enda sam- settir úr færri hlutum og slitna því minna. Deilihagkerfið breytir myndinni „Bílaumboð og bílasölur verða að sigla með straumnum. Mögulega munum við þurfa að færa okkur í að leigja bíla til skemmri tíma og vera virkir þátttakendur í deilihagkerfinu. Bílasölur í Evrópu og framleiðendur eru að skoða þann valkost gaum- gæfilega. Bílaframleiðendur eins og til dæmis Daimler, sem á Mercedes Benz, á til að mynda að fullu deili- bílafyrirtækið car2go sem býður upp á að leigja bíl í klukkustund í senn. Bílaframleiðendur eru því langt á veg komnir í þessari þróun. Við hjá Öskju erum að vinna að þessari framtíðarsýn og horfum þá auðvitað til okkar birgja, sem eru Daimler og Kia. Öll virðiskeðjan þarf að aðlagast breyttum tímum, hvort umhverfið á Íslandi er móttækilegt fyrir þessum breytingum er okkar að finna út úr. Rafbílar kalla á aðra þjónustu en bensín- og dísilbílar. Bílaumboð þurfa því að veita heildarþjónustu eins og til dæmis hvað varðar dekk, þrif, rúðuviðgerðir og fleira. Þessi þróun er þegar hafin og mun eflaust færast í aukana þegar fram líða stundir. Það er nefnilega að rísa upp ný kynslóð sem hefur allt aðra sýn á bílaeign en þeir sem hafa verið í við- skiptum við okkur í mörg ár. Svo kann það að vera að framleiðslu- kostnaður bíla muni lækka umtals- vert og þá skapast aðstæður fyrir því að þessi hópur festi kaup á bílum í meiri mæli og aki um landið.“ Tekjurnar áttfölduðust Askja hefur vaxið hratt á undanförn- um árum. Tekjurnar áttfölduðust frá árinu 2010 til 2017 sem var stærsta árið í bílasölu á Íslandi, úr tveimur milljörðum í 16 milljarða. Á sama tíma jókst fjöldi starfsmanna úr 50 í rúmlega 130, þar af eru um 50 bif- vélavirkjar. „Markaðshlutdeild Kia var 11,5 prósent í fyrra og Mercedes Benz var með rúmlega tvö prósent ef litið er fram hjá atvinnubílum sem Ísland „í dauðafæri“ til að vera með grænasta bílaflotann Bílgreinasambandið hefur um nokkra hríð barist fyrir því að vörugjöld bíla muni ekki hækka samhliða breyttum mengunar- mælingum frá bílum. Sú vinna hefur nú borið ávöxt og tollar á bíla munu ekki hækka ef frumvarp efnahags- og viðskiptanefndar nær fram að ganga. Reiknað var með að breytingarnar gætu þýtt fimm til tíu prósenta hækkun á verði bíla. „Vegna þess hve mikið bílar vigta í vísitölu neysluverðs hefðu verð- tryggð lán landsmanna hækkað um 6,2 milljarða í kjölfarið,“ segir Jón Trausti. „Evrópusambandið setti nýjar reglur sem mæla á betri hátt mengun, eyðslu og drægi bíla. Við fögnum breytingunni því hún gefur neytendum réttari mynd af því hvað hver bíll eyðir. Sölumenn sögðu áður að mælingar sýndu að tiltekinn bíll eyddi fjórum lítrum á hundraðið en líklegast eyddi hann fimm til sjö lítrum. Nú segja sölu- menn að mælingar sýni að hann eyði sex lítrum á hundraðið og að það sé hin raunverulega eyðsla, enda nýja WLTP-mælingin miklu fullkomnari en fyrri mælingin sem var áður notuð. Það er einkum á Íslandi og í Danmörku þar sem bílar eru toll- lagðir eftir því hve mikið koltvíoxíð vélarnar leysa. Því minna sem vélarnar menga því lægri er tollur- inn. Af þeim sökum hefði breyting Evrópusambandsins sjálfkrafa hækkað verð bíla hérlendis. Bílar sem menga minna munu áfram bera lægri tolla,“ segir Jón Trausti. Eru bílar hátt tolllagðir á Íslandi miðað við önnur lönd? „Bílar sem menga mikið eru sér- staklega hátt tolllagðir. En bensín- og dísilbílar sem menga lítið bera lægri vörugjöld. Það er mikill stuðningur við umhverfisvænni bíla hér á landi. Rafbílar sem kosta minna en sex milljónir bera hvorki virðisaukaskatt né vörugjöld. Það hefur sýnt sig að meðalmengun nýskráðra bíla hefur lækkað um meira en 50 prósent á áratug. Ísland er eitt þeirra landa þar sem útblástur koltvíoxíðs hefur lækkað hvað mest. Þessi leið hefur því haft jákvæð áhrif á Íslandi,“ segir Jón Trausti. Hvernig horfir við þér markmið stjórnvalda um að banna skráningu bensín- og dísilbíla eftir árið 2030? „Það er að mínu mati ekki þörf á banninu. Markaðurinn hefði sjálfkrafa hagað sér með þessum hætti. Reiknað er með að frá árinu 2025 verði framleiðslukostnaður rafmagnsbíla líklega sá sami og bensín- eða dísilbíla. Það þýðir að verð bílanna yrði enn betra. Ísland er frábært land fyrir rafbíla og tengiltvinnbíla. Ég er á því að við séum í dauðafæri til að vera með grænasta bílaflotann innan nokk- urra ára.“ af sölu Mercedes Benz fari til bíla- leiga. sóttu lykilmenn til Þýskalands „Velgengni Kia á undanförnum árum má meðal annars rekja til þess að for- svarsmenn fyrirtækisins hafa verið óhræddir við að sækja þekkingu út fyrir landsteina Suður-Kóreu. Þeir réðu til að mynda Þjóðverjann Peter Schreyer árið 2006 sem yfirhönnuð. Hann hafði áður starfað hjá Audi og hannaði til dæmis Audi TT. Eftir það urðu bílarnir þeirra ákaflega flottir. Að sama skapi réðu þeir þýska verk- fræðinginn Albert Biermann og við það urðu bílarnir jafnframt tækni- lega góðir. Þetta teymi, auk þekking- ar Suður-Kóreubúa á framleiðslu og sjö ára ábyrgðar hefur verið lykillinn að góðum árangri á undanförnum árum,“ segir hann. „Árið í fyrra var gott hjá Öskju, og hagnaðist félagið um 370 milljónir króna. Undanfarin ár hafa gengið vel í rekstri fyrirtækisins. Við höfum nýtt góðu árin til að styrkja inn- viðina, meðal annars með því að tvöfalda húsrýmið með því byggja tvö vegleg hús. Samanlagt eru nýju byggingarnar fimm þúsund fer- metrar. Annars vegar er um að ræða nýtt 3.800 fm húsnæði fyrir Kia, við hliðina á starfsemi Öskju á Krókhálsi sem verður opnað í desember. Hins vegar verkstæði fyrir Mercedes Bens, atvinnubíla, en þeirri framkvæmd verður lokið á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. Fjöldi fólksbílalyfta á verkstæði Öskju mun því aukast úr 16 í 35, lyft- ur fyrir sendibíla úr þremur í átta og aðstaða fyrir trukka og rútur verður fyrir 12. Við erum því meira en að tvöfalda afkastagetu verkstæðanna okkar,“ segir hann. Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@frettabladid.is Mögulega munum við þurfa að færa okkur í að leigja bíla til skemmri tíma og vera virkir þátttakendur í deilihagkerfinu. Framkvæmdastjóri Öskju segir að bílaum- boð verði að sigla með straumnum. Tekjur Öskju áttfölduðust frá árinu 2010 til 2017. Askja er að fjárfesta fyrir á annan milljarð í uppbyggingu fasteigna. Telur að bílasala muni dragast saman um 15 prósent í ár. Stöðugleiki í vændum. við seljum líka,“ segir Jón Trausti og nefnir að sex ár í röð hafi Mercedes Benz verði mest seldi bíllinn af þýsku lúxusbílamerkjunum. Hin eru Audi, BMW og Porsche. Að hans sögn má rekja vöxtinn, sem er umfram vöxt markaðarins, til vaxandi vinsælda Kia-bíla. „Það má segja að Kia sé nýtt merki á Íslandi jafnvel þótt það hafi verið til sölu í áratugi. Kia var lengi með tveggja til þriggja prósenta markaðshlutdeild en undanfarin þrjú ár hafa bílar frá Kia verið næstmest selda tegundin á eftir Toyota,“ segir Jón Trausti og vekur athygli á að markaðshlutdeild Kia sé mun meiri hérlendis en annars staðar í Evrópu þar sem hún sé um þrjú prósent. Um helmingur sölu Kia hafi verið til bílaleiga sem sé í takt við umsvif bílaleiganna en um 10 til 15 prósent 2 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 m I Ð v I K U D A G U r8 Markaðurinn 2 1 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 7 3 -1 3 8 C 2 1 7 3 -1 2 5 0 2 1 7 3 -1 1 1 4 2 1 7 3 -0 F D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 2 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.