Fréttablaðið - 20.11.2018, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 20.11.2018, Blaðsíða 10
Frá degi til dags Halldór Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið kalkofnsvegur 2, 101 reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kjartan Hreinn Njálsson kjartanh@frettabladid.is Breytingin tekur gildi á næsta ári, þann 20. maí. Á þeim tímapunkti mun ekkert breytast. Eitt af markmiðum frumvarps til breytinga á lögum um umboðs- mann barna, sem nú liggur fyrir Alþingi, er að skerpa á hlutverki umboðs- manns í innleiðingu Barnasátt- málans. Í dag er alþjóðadagur barna en þennan dag árið 1989 samþykkti allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samning um réttindi barnsins, eða Barnasáttmálann. Eitt af markmiðum frumvarps til breytinga á lögum um umboðsmann barna, sem nú liggur fyrir Alþingi, er að skerpa á hlutverki umboðsmanns í innleiðingu Barna- sáttmálans sem lögfestur var hér á landi árið 2013. Lagt er til að embættinu verði falið að afla og miðla gögnum og upplýsingum um aðstæður barna og stöðu tiltekinna hópa hverju sinni í samvinnu við ýmsa aðila. Eiga þau gögn að liggja til grundvallar samræmdri og markvissri stefnu í málefnum barna. Sambærilegt markmið var sett í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem samþykkt var fyrr á þessu ári þar sem jafnframt er kveðið á um að embættið setji á fót sérfræðihópa barna þar sem leitað verður sjónarmiða þeirra um þá þjónustu sem þeim stendur til boða og tillagna þeirra að úrbótum. Vönduð tölfræðileg gögn eru mikilvægur grunnur góðrar stefnumótunar og því hefur embættið hafið samstarf við Hagstofuna um að greina sérstaklega gögn sem snúa að börnum. Hagstofan birti í vor á vef sínum margvíslegar upplýsingar úr sínum gögnum um stöðu barna í íslensku samfélagi. Töluverða athygli vakti mikil þátttaka barna á íslenskum vinnumarkaði og hélt umboðsmaður barna ásamt Vinnueftirlitinu fund fyrir um tveimur vikum þar sem gerð var frekari grein fyrir stöðu barna á íslenskum vinnumarkaði, slysaskráningu, upplýsingum sem embættið hefur safnað um vinnuskóla sveitarfélaganna og frekari upplýsingum um atvinnu- þátttöku barna frá Hagstofunni. Á fundinum voru einnig fulltrúar stofnana, sveitarfélaga, atvinnulífsins, stéttar- félaga og börn úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna til að ræða um reynslu barna og nauðsynlegan undirbúning fyrir þátttöku þeirra í atvinnulífinu. Þessi fundur er dæmi um þá samræðu sem umboðsmaður barna hyggst standa fyrir í íslensku samfélagi um stöðu barna, þar sem vand- aðar greiningar liggja til grundvallar, en ekki síst raddir barnanna sjálfra og áherslur þeirra. Staða barna í íslensku samfélagi Salvör Nordal umboðsmaður barna Kynntu þér Opel og bókaðu reynsluakstur á crossland.opel.is Tilboðsverð 2.890.000 kr. Crossland X Enjoy, verð: 3.190.000 kr. Bi rt m eð fy rir va ra u m m yn da - o g te xt ab re ng l. FRAMÚRSKARANDI BÍLL Á FRÁBÆRU TILBOÐSVERÐI Kílógrammið, grunneining alþjóð-lega einingakerfisins fyrir massa, var endurskilgreint á föstudaginn í síðustu viku. Ákvörðunin, sem tekin var með atkvæðagreiðslu fulltrúa 60 ríkja í fundarsal skammt frá Versalahöll í París, var söguleg. Hún var jafnframt löngu tímabær, þó mun hún ekki hafa nokkur áhrif á daglegt líf okkar, það er, ef allt fer að óskum. Frá árinu 1889 hefur Le Grand K drottnað sem síðasta grunneining kerfisins sem byggir á jarð- bundnum hlut eða fyrirbæri, og þá í formi platínu og iridíum sívalnings sem hýstur er í rammgerðri hvelfingu í París. Le Grand K hefur nú verið steypt af stóli. Kíló- grammið, líkt og aðrar grunneiningar alþjóðlega ein- ingakerfisins, byggir nú á eilífum náttúrufasta; plank- fastanum. Orka ljóseindar er jöfn plankfast anum margfölduðum með tíðni rafsegulgeislunarinnar sem tengd er ljóseindinni. Og þar sem Einstein sýndi fram á að orka og massi eru nátengd, þá er hægt að nota fastann sem skilgreiningu fyrir kílógramm. Með endurskilgreiningunni lauk tæplega 230 ára verkefni sem hófst í frönsku byltingunni og þeirri göfugu hugsjón að mælieiningar ættu að vera eilífar og eign allra, en ekki eitthvað sem örfáir útvaldir hafa aðgang að. Það sem gerðist á föstudaginn var lokahnykkur í lýðræðisþróun einingakerfisins. Breytingin tekur gildi á næsta ári, þann 20. maí. Á þeim tímapunkti mun ekkert breytast, rétt eins og þegar metrinn var endurskilgreindur á áttunda áratug síðustu aldar út frá hraða ljóssins í loft- tæmi. Svo nákvæmar skilgreiningar geta þó haft óvæntar afleiðingar, eins og þegar endurskilgreining sekúndunnar út frá sveiflum sesíum-atóms leiddi til þróunar GPS-tækninnar sem við reiðum okkur á á hverjum degi. Endurskilgreining kílógrammsins mun að líkindum leiða til töluverðra framfara á nokkrum mikilvægum sviðum, eins og í lyfjafram- leiðslu og í smíði nýrra vísindatóla. Það sem mestu skiptir er að alþjóðlega eininga- kerfið — áður þekkt sem metrakerfið — grundvall- ast ekki lengur á skoðun vísindamanna eða yfir- valda á tilteknum tíma, rúmi eða á platínuhlunki í neðanjarðarhvelfingu í París, heldur er kerfið byggt á óumdeilanlegum sannleika sem mun standa óhagg- aður svo lengi sem alheimurinn er til staðar. Kerfið er nú loks „fyrir alla menn, á öllum tímum“, eins og franski heimspekingurinn Marquis de Condorcet sagði eitt sinn. Kílógrammið, og allar aðrar grunneiningar ein- ingakerfisins, eru þannig vitnisburður um að til eru náttúrulegir fastar og afleiður af þeim sem óháðir eru duttlungum, hagsmunum og pólitík mann- skepnunnar. Það verður að teljast hughreystandi vitneskja á tímum þar sem flest virðist háð flæðandi tíðaranda og viðhorfi; hliðarsannleika og jafnvel lygum. Massabreyting Sambandsörðugleikar Orkuveita Reykjavíkur sendi blaðamannafund, þar sem rann- sókn innra eftirlits var kynnt, út í beinni á netinu í gær. Í kjölfar umdeildra uppsagna hjá Orku náttúrunnar má ætla að tilefnið til rannsóknar hafi verið ærið og því kemur niðurstaðan nokkuð á óvart en vinnustaðamenningin á þessum bæjum þykir betri en gengur og gerist á íslenskum vinnumarkaði. Samkvæmt þessu eru samskipti starfsfólks fyrir- tækjanna í það minnsta ekki jafn stirð og netsambandið úr höfuð- stöðvum OR en netstreymið frá fundinum er þegar komið í annála sem eitt það skrykkjótt- asta sem sögur fara af. Útsend- ingin hökti og fraus þannig að illmögulegt var að halda þræði. Óheppilegt þar sem Gagnaveita Reykjavíkur heyrir undir OR og gefur sig út fyrir að bjóða upp á „hagkvæmt háhraðasamband“. Engin vandamál Ef marka má Björn Inga Hrafns- son, á Viljinn.is, var þó fundurinn sjálfur jafnvel lélegri en streymið. Sannkölluð „hátíð sjálfshóls og upphafningar“, skrifaði Björn Ingi um fundinn. „Manneskjan sem taldi á sér brotið og lét vita, situr uppi með sárt ennið. Fáir munu þora að leita réttar síns í framhaldinu.“ Hann vitnaði síðan í slagorðið „Engin vanda- mál og allt í góðu lagi“ úr gamalli auglýsingu OR. thorarinn@frettabladid.is 2 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 Þ r I Ð J U D A G U r10 s k o Ð U n ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð SKOÐUN 2 0 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :3 3 F B 0 3 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 6 F -1 7 F 4 2 1 6 F -1 6 B 8 2 1 6 F -1 5 7 C 2 1 6 F -1 4 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 3 2 s _ 1 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.