Fréttablaðið - 20.11.2018, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 20.11.2018, Blaðsíða 12
Nýjast Þjóðadeildin A-deild Riðill 1 Þýskaland - Holland 2-2 1-0 Timo Werner (9.), 2-0 Leroy Sane (20.), 2-1 Quincy Promes (85.), 2-2 Virgil van Dijk (90+1.) Staðan: Holland 7, Frakkland 7, Þýskaland 4. B-deild Riðill 1 Tékkland - Slóvakía 1-0 1-0 Patrik Schick (32.) Staðan: Úkraína 9, Tékkland 6, Slóvakía 3. Riðill 4 Danmörk - Írland 0-0 Staðan: Danmörk 8, Wales 6, Írland 2. C-deild Riðill 3 Kýpur - Noregur 0-2 Búlgaría - Slóvenía 1-1 Staðan: Noregur 13, Búlgaría 11, Kýpur 5, Slóvenía 3. D-deild Riðill 1 Georgía - Kasakstan 2-1 Andorra - Lettland 0-0 Staðan: Georgía 16, Kasakstan 6, Andorra 4, Lettland 4. Riðill 4 Makedónía - Gíbraltar 4-0 Lichtenstein - Armenía 2-2 Staðan: Makedónía 15, Armenía 10, Gí- braltar 6, Liechtenstein 4. Valur - FH 28-28 Valur: Magnús Óli Magnússon 9, Róbert Aron Hostert 5, Agnar Smári Jónsson 4, Vignir Stefánsson 3, Ásgeir Snær Vignisson 3, Anton Rúnarsson 1. FH: Ásbjörn Friðriksson 10, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 6, Ágúst Birgisson 4, Jóhann Birgir Ingvarsson 3, Arnar Freyr Ársælsson 2, Davíð Stefán Reynisson 1, Birgir Már Birgisson 1. Olís-deild karla Vináttulandsleikur Katar 2-2 Ísland (1-1) 1-0 Hasan Al Haydos (3.), 1-1 Ari Freyr Skúlason (29.), 1-2 Kolbeinn Sigþórsson, víti (56.), 2-2 Boualem Khoukhi (68.). Byrjunarlið Íslands (3-5-2): Rúnar Alex Rúnarsson - Sverrir Ingi Ingason, Kári Árnason (36. Hjörtur Hermanns- son), Hörður Björgvin Magnússon - Rúrik Gíslason (75. Birkir Már Sævarsson), Eggert Gunnþór Jónsson (62. Guðlaugur Victor Pálsson), Arnór Sigurðsson (75. Samúel Kári Friðjóns- son), Arnór Ingvi Traustason - Albert Guðmundsson, Kolbeinn Sigþórsson (62. Andri Rúnar Bjarnason Fotbolti Íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu mistókst að vinna langþráðan sigur þegar liðið mætti Katar í æfingarleik í Belgíu í gær, lokastaðan 2-2 jafntefli og þrettán leikir í röð án sigurs hjá landsliðinu. Ársins 2018 verður alltaf minnst sem ársins sem Ísland lék í loka- keppni HM í fyrsta sinn og jafntefli gegn Frakklandi er ljós punktur á annars döpru hausti. Er þetta annað árið í röð sem Ísland mætir Katar í æfingarleik og í nóvember og líkt og í fyrra lauk leiknum í gær með verðskulduðu jafntefli eftir kaflaskiptan leik. Erik Hamrén og Freyr Alexand- ersson sem bíða enn eftir fyrsta sigr- inum gerðu fjórar breytingar á byrj- unarliðinu frá tapinu gegn Belgíu en héldu sig við þriggja miðvarða kerfi. Rúrik Gíslason, Rúnar Alex Gísla- son, Eggert Gunnþór Jónsson og Kolbeinn Sigþórsson komu inn í lið Íslands fyrir Hannes Þór Halldórs- son, Jón Guðna Fjóluson, Guðlaug Victor Pálsson og Aron Einar Gunn- arsson. Athyglisvert var að sjá Kol- bein byrja í fyrsta sinn síðan á EM og Eggert kom aftur inn í liðið eftir sex ára fjarveru. Fjórar breytingar Þá fékk Rúnar Alex annað tæki- færi til að hrifsa byrjunarliðssætið af Hannesi í markinu en það liðu aðeins þrjár mínútur þar til hann þurfti að ná í boltann í netið. Íslenska liðið missti boltann kæruleysislega á miðjum vellinum og ódýr aukaspyrna var dæmd á Kára Árnason við hliðarlínuna stuttu síðar. Upp úr aukaspyrnunni kom fyrsta mark leiksins, Hassan Khalid Al Haidos skoraði með föstu skoti í fjærhornið. Abdelkarim Hassan Fadialla, bakvörður Katar, gerði atlögu að boltanum sem virtist fipa Rúnar Alex í markinu en en markið fékk að standa og sann- kölluð draumabyrjun fyrir Katar. Íslenska liðið lét markið ekki slá sig út af laginu og jafnaði metin um miðbik fyrri hálfleiks. Dæmd var aukaspyrna á Katar fyrir brot á Arn- óri Sigurðssyni 25 metrum frá marki og í fjarveru Gylfa Þórs Sigurðssonar fékk Ari Freyr Skúlason tækifærið. Skot hans fór í stöngina, af mark- verði Katar og í netið. Spurning er hvort markið verði skráð á Ara eða ekki en hann fagnaði innilega fyrsta marki sínu fyrir landsliðið. Staðan var jöfn í hálfleik en í upp- hafi seinni hálfleiks fékk Ísland gjöf frá Katar þegar dæmd var víta- spyrna á Katar eftir að varnarmaður liðsins handlék boltann inn í víta- teignum. Á vítapunktinn steig Kolbeinn Sigþórsson og skoraði af miklu öryggi, hans fyrsta mark fyrir íslenska landsliðið síðan hann skor- aði í 8-liða úrslitum Evrópumótsins í 2-5 tapi gegn Frakklandi. Það var fátt í spilunum hjá Katar þegar jöfnunarmarkið kom og aftur verður að setja spurningarmerki við Rúnar Alex í marki íslenska liðsins. Boualem Khoukhi fékk nægan tíma um þrjátíu metrum frá marki og átti skot sem hafnaði í netinu. Skotið var fast og var talsvert flökt á bolt- anum í loftinu en skotið var beint á Rúnar Alex sem horfði á boltann sigla yfir sig og í netið. Katar var nær því að bæta við marki en Ísland, Karim Boudiaf fékk sannkallað dauðafæri til að koma Katar aftur yfir en hann skallaði boltann framhjá marki Íslands af um eins metra færi stuttu eftir jöfn- unarmarkið. Sóknarleikur Íslands náði ekki miklu flugi í gær og komu bestu sóknir liðsins yfirleitt í gegnum Albert Guðmundsson sem hefur ef til vill fest sig í sessi í landsliðshóp Erik Hamrén í þessu landsleikjahléi. kristinnpall@frettabladid.is Mistök kostuðu Ísland sigurinn Íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu mistókst að vinna síðasta leik ársins í 2-2 jafntefli gegn Katar í Belgíu í gær. Íslenska liðið bíður enn eftir fyrsta sigrinum undir stjórn hins sænska Eriks Hamrén. Kolbeinn nálgast met Eiðs Smára Kolbeinn Sigþórsson skoraði í gær sitt 23. mark fyrir íslenska landsliðið. Þetta var fyrsta mark hans í 870 daga fyrir landsliðið eða frá því að hann minnkaði muninn gegn Frakklandi á Evrópumótinu 2016. Mark Kolbeins kom af víta- punktinum í upphafi seinni hálf- leiks í 48. leik hans fyrir íslenska landsliðið. Kolbeinn er nú aðeins þremur mörkum frá því að ná Eiði Smára Guðjohnsen sem er markahæsti leikmaðurinn í sögu íslenska landsliðsins með 26 mörk í 88 leikjum. Mark Ara Freys Skúla- sonar í gær var fyrsta mark hans í 63. leiknum fyrir íslenska landsliðið. Handbolti Ester Óskarsdóttir og Þórey Anna Ásgeirsdóttir fóru ekki með íslenska kvennalandsliðinu í handbolta til Noregs í gær. Ester glímir við veikindi og Þórey við meiðsli. Steinunn Hansdóttir, leik- maður Horsens, var kölluð inn í íslenska hópinn í stað Þóreyjar. Ísland mætir Kína og B-liði Nor- egs í vináttulandsleikjum í vikunni. Leikirnir eru liður í undirbúningi fyrir undankeppni HM. Þar er íslenska liðið í riðli með Makedóníu, Tyrklandi og Aserbaíd- sjan. Leikið verður í Skopje, Make- dóníu, dagana 30. nóvember til 2. desember. – iþs Forföll í landsliðinu Tilfinningin hefur eflaust verið afar ljúf fyrir Kolbein Sigþórsson sem fagnaði byrjunarliðssætinu í Eupen í gær með marki af vítapunktinum í upphafi seinni hálfleiks. Þetta var fyrsti byrjunarliðsleikur Kolbeins fyrir landsliðið síðan hann lék gegn Frökkum í 8-liða úrslitum EM 2016. MyND/HAFLiði BREiðFjöRð 2 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 Þ r i Ð J U d a G U r12 S p o r t ∙ F r É t t a b l a Ð i Ð Sport 2 0 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :3 3 F B 0 3 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 6 F -2 B B 4 2 1 6 F -2 A 7 8 2 1 6 F -2 9 3 C 2 1 6 F -2 8 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 3 2 s _ 1 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.