Fréttablaðið - 20.11.2018, Side 16
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Á frískandi þriðjudegi er til-valið að útbúa þetta holla og góða kjúklingabaunasalat.
Það er gott sem léttur kvöldverður
og hentar þá sérlega vel með
pítubrauði. Salatið er líka tilvalið
sem meðlæti með lambakjöti eða
kjúklingi. Þá er það gott með í
nestisboxið. Stuttan tíma tekur að
útbúa þetta kjúklingabaunasalat
og það má geyma yfir nótt í ísskáp.
10 kirsuberjatómatar
¼ brokkolíhaus
400 g kjúklingabaunir
Handfylli kóríander
Handfylli steinselja
Rautt chili
2 msk. ólífuolía
1 límóna
Salt og pipar
Hitið ofninn í 220°C. Skerið
tómatana í tvennt og raðið þeim
á bökunarplötu með skurðflötinn
upp. Bakið í 20 mínútur. Dreypið
þá 1 msk. af ólífuolíu yfir þá og
bakið áfram í 10 mín. Látið kólna.
Gufusjóðið brokkolíið svo það
verði stökkt og látið kólna. Hellið
safanum af kjúklingabaununum og
setjið þær í skál. Saxið kóríander
og steinselju gróflega. Blandið öllu
saman við kjúklingabaunirnar.
Dreypið ólífuolíu yfir. Kreistið
safann úr límónunni og blandið
varlega saman við, að smekk.
Saltið og piprað að smekk. Til þess
að kjúklingabaunirnar taki betur
í sig ólífuolíuna og límónusafann
er gott að hræra í þeim með gaffli
svo þær opnist aðeins en þó á ekki
að stappa þær. Kjúklingabauna-
salatið má gjarnan geyma í ísskáp
yfir nótt. Ef lítill tími er til stefnu
er gott að nota ferska tómata í
staðinn fyrir ofnbakaða tómata og
nota rauðlauk í sneiðum í staðinn
fyrir brokkolí.
Kjúklingabaunasalat
með bökuðum tómötum
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Hollt og gott kjúklingabaunasalat sem kemur á óvart. Ljúffengt á bragðið,
hvort sem er eitt sér eða sem meðlæti. NORDICPHOTOS<7GETTY
Það er vel þekkt að mikil samfélagsmiðlanotkun getur haft neikvæð áhrif á andlega
heilsu og vellíðan. Sumir segja að
fólk ætti að sleppa þeim alfarið, en
fyrir marga er það einfaldlega ekki
raunhæfur möguleiki, þar sem við
treystum á þessi tól við vinnu eða
til að halda sambandi við fólk á
fjarlægum stöðum. En það er hægt
að takmarka notkun samfélags-
miðla og samkvæmt nýrri rann-
sókn frá háskólanum í Pennsylv-
aníu gæti verið gott að miða við
hámark 30 mínútna notkun á dag.
Rannsóknin var leidd af sál-
fræðingnum Melissa G. Hunt og
hún birtist í desemberútgáfu rit-
rýnda sálfræðitímaritsins Journal
of Social and Clinical Psychology.
Tilgangur hennar var að skoða
hvernig Facebook, Instagram og
Snapchat auka vanlíðan.
Rannsóknin náði til 143
háskólanema á aldrinum 18-22 ára
og þeim var skipt í tvo hópa, annar
þeirra notaði samfélagsmiðla að
vild, á meðan hinn fékk bara að
eyða 10 mínútum á dag í hverju
forriti. Í þrjár vikur gáfu þátttak-
endur rannsakendum skjáskot
af rafhlöðunotkuninni á iPhone-
símum sínum, þar sem kom fram
hversu miklum tíma var eytt í
forritunum.
Að því loknu var skoðað að hve
miklu leyti þátttakendurnir þjáð-
ust af vanlíðan sem er tengd við
samfélagsmiðla, svo sem óttanum
við að missa af, kvíða, þunglyndi
og einmanaleika. Það leiddi í ljós
að þeim sem takmörkuðu sam-
félagsmiðlanotkunina leið betur
en hinum.
Hunt segir að þetta sýni einfald-
lega að ef maður notar samfélags-
miðla minna en venjulega minnki
það einkenni bæði þunglyndis og
einmanaleika töluvert. Hún segir
að eftir því sem fólk var þung-
lyndara þegar það kom inn í rann-
sóknina eigi þetta betur við.
Það er ekkert sem segir að þessar
niðurstöður eigi við fólk sem er
utan þessa aldurshóps og rann-
sóknin náði bara til þriggja forrita,
sem eru samt reyndar þau allra
vinsælustu. Rannsóknin gefur
samt góða vísbendingu um að við
ættum kannski að hafa einhver
mörk á tímanum sem við eyðum á
samfélagsmiðlum.
Tæknirisarnir hjálpa til
Sem betur fer eru framleiðendur
snjalltækja meðvitaðir um þetta
og í flestum símum er nú hægt að
fylgjast með því hvað er búið að
eyða miklum tíma í símanum og
hversu miklum tíma hefur verið
varið í ákveðnum forritum. Þau
bjóða þá líka þann möguleika að
loka á ákveðin forrit þegar búið
Látum tæknina
vinna fyrir okkur
Ný rannsókn gefur til kynna að það sé hollt að takmarka
notkun samfélagsmiðla og flest snjalltæki bjóða nú þann
möguleika að setja tímatakmörk á notkun forrita.
Margir lenda í vandræðum með samfélagsmiðlanotkun sína þannig að hún
byrjar að valda kvíða, þunglyndi og ótta við að missa af. NORDICPHOTOS/GETTY
Það er mikil-
vægt að hafa
góða stjórn
á samfélags-
miðlanotkun
sinni, svo þeir
taki ekki völdin
af okkur og
valdi vanlíðan.
NORDIC PHOTOS/
GETTY
Sem betur fer bjóða flest snjalltæki
nú upp á þann möguleika að fylgjast
með notkuninni á forritum og tak-
marka notkun þeirra. MYND/APPLE
er að nota þau í ákveðinn tíma
eða eftir einhvern ákveðinn tíma
dags. Þessar takmarkanir geta líka
komið að gagni ef maður vill ekki
nota ákveðin forrit eftir einhvern
tíma dags eða hefur þann ósið
að skoða tölvupóstinn rétt fyrir
svefninn, sem getur valdið óþarfa
kvíða og streitu.
Ef þörf krefur er hægt að opna
fyrir forritin aftur, en maður þarf
að minnsta kosti að taka með-
vitaða ákvörðun um að nota þau
meira, í stað þess að gera það án
þess að taka eftir og fá enga við-
vörun.
Þeir sem vilja kannski ekki loka
á forrit í símanum sínum geta
grætt á því að slökkva á tilkynning-
um í símanum sínum fyrir ákveðin
forrit. Margir gleyma til dæmis að
slökkva á eða takmarka merkin
sem síminn gefur frá sér þegar
skilaboð berast á Facebook Mess-
enger, sem veldur því að síminn
pípir og titrar oft yfir daginn, með
tilheyrandi truflunum.
Það er almennt ekki raunhæft að
ætla að klippa á samfélagsmiðla,
en það er mikilvægt að taka stjórn
á þeim og láta þá ekki stjórna sér,
svo þeir valdi ekki vanlíðan.
IÐA-bókakaffi Vesturgata 2a 101 Rvk.
opið til 22 alla daga.
LÍFIÐ ER Á
FRETTABLADID.IS
Líð á frettabladid.is allar um
fólk, menningu, tísku, heilsu
og margt eira.
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . N Óv E M B E R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R
2
0
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
F
-1
3
0
4
2
1
6
F
-1
1
C
8
2
1
6
F
-1
0
8
C
2
1
6
F
-0
F
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
3
2
s
_
1
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K