Fréttablaðið - 20.11.2018, Síða 11

Fréttablaðið - 20.11.2018, Síða 11
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 Mánudag til Laugardags Opnunartímar 10:00 - 18:00 BLACK FRIDAY! Af fart ölvum Allt að 40.000 Afslátt ur 19.-24. nóvember Af yfir 1000 vörum 90% Afslátt ur Allt að Fyrir upphæð all t a ð 3 00 .0 00KA UP IR N ÚN A O G G REIÐIR 1. FEB. 2019JÓ LAG REITT 2.95% lántökugjald og greiðslu- og tilky nni ng ar gj al d kr . 1 95 20. N óvem ber 2018 • B lack Friday tilboð gilda 19-24. nóvem ber eða m eðan birgðir endast. B irt m eð fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og m yndabrengl Aðeins 100 stk1 stk á mann! 50%Afsláttur 27” IPS SKJÁ R Lúxus 27 ” IPS skj ár með örþu nnan skjáramm a! TILBOÐ DAGSINS Gildir aðeins þriðjudag 19.995 VERÐ ÁÐUR 39.990 Á vinnumarkaði er gott orð-spor mikilvæg auðlind og við starfslok er orðspor um vel unnin störf ómetanlegt. Ég tel mig hafa áunnið mér gott orðspor í störfum hjá stærstu orkufyrir- tækjum landsins undanfarin 28 ár. Atburðarás í kjölfar fyrirvaralausrar uppsagnar minnar úr starfi fram- kvæmdastjóra Orku náttúrunnar, þar sem mér var ekki gefinn kostur á að standa fyrir máli mínu, hefur hins vegar skaðað orðspor mitt. Óvíst er hvort hægt verður að vinda ofan af ásökunum í minn garð, sem dreift hefur verið í fjölmiðlum og á sam- félagsmiðlum. Ummæli slitin úr samhengi Það var ömurleg reynsla fyrir mig, fjölskyldu mína og nána vini að fylgjast með hvernig vegið var að mannorði mínu með vandlega útfærðum spuna, sem dreift var á rétta staði til að ná sem mestri fylgni við einhliða og óstaðfesta frásögn af ástæðum uppsagnar til- tekins starfsmanns hjá ON. Ólíkt uppsögn minni var þessi uppsögn ekki skyndiákvörðun í kjölfar skrifa á samfélagsmiðlum, heldur byggði hún á faglegu mati. Niður- staða í úttekt Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar er að uppsögn starfsmannsins telst réttmæt. Til að breiða yfir raunverulega ástæðu uppsagnarinnar, var búin til frá- sögn á samfélagsmiðlum, þar sem ummæli og atburðir voru slitin úr samhengi eða uppskálduð. Ég viðurkenni fúslega að ég tala yfirleitt hreint út um það sem mér býr í brjósti og mætti eflaust stund- um orða hlutina á nærgætnari hátt. Upplifun fólks af aðstæðum er mis- jöfn og það sem einum finnst í lagi að segja í samskiptum á vinnustað, getur annar tekið illa upp. Talsmáti og samskipti sem áður þóttu í lagi á karllægum vinnustöðum teljast ekki boðleg í dag. Þetta þurfa ég og aðrir karlar að læra að tileinka okkur á nýjum tímum og það hef ég leitast við að gera. Ógagnrýnið samspil samfélags- miðla og fjölmiðla Rannsókn Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar sýnir að tal um kynferðislega áreitni af minni hálfu á ekki við rök að styðjast og þau sem ég vann nánast með bera mér ekki illa söguna. Það er mér léttir að sam- kvæmt úttektinni upplifði enginn starfsmaður að henni eða honum hafi staðið ógn af framkomu minni. Í ljósi atburðarásar, sem í þessu tilfelli kom fyrirmyndar stórfyrir- tæki í uppnám, tel ég að fyrirtæki þurfi að bæta óhróðri á samfélags- Markaðssettur spuni Bjarni Már Júlíusson fyrrverandi framkvæmda- stjóri Orku náttúrunnar miðlum inn í áhættustjórnun sína. Viðbrögð við öðrum hættum eru kortlögð og æfð og má sem dæmi nefna viðbrögð við eldi sem kom upp í Hellisheiðarvirkjun í janúar síðastliðnum en þar tókst að koma í veg fyrir stórtjón vegna þess að hættan var fyrirséð og búið að æfa viðbrögð við henni. Ég tel ólíklegt að íslensk fyrirtæki eða stofnanir hafi yfirleitt gert viðbragðsáætlanir til að undirbúa viðbrögð við árás á orð- spor þeirra eða starfsmanna þeirra frá aðilum sem telja sig eiga harma að hefna. Í gagnrýnislitlu samspili samfélagmiðla og fjölmiðla er auð- velt að dreifa sögum sem þykja lík- legar til að ná athygli lesenda, án þess að haft sé fyrir því að kanna sannleiksgildi þeirra. Því tel ég fulla ástæðu til að huga að þessari hættu. Að lokum vil ég þakka þeim fjöl- mörgu fyrrverandi samstarfsmönn- um sem hafa sent mér skilaboð og lýst jákvæðri upplifun af samskipt- um við mig í leik og starfi. Einnig vil ég þakka Brynhildi Davíðsdóttur, stjórnarformanni Orkuveitunnar, fyrir að taka faglega á málinu og láta framkvæma þá úttekt sem nú eru komnar niðurstöður úr. Ég ber fullt traust til þeirra sem unnu að úttekt- inni og vona að með niðurstöðum hennar linni atlögum að mannorði mínu og óhróðri um minn fyrrver- andi vinnustað. Það var ömurleg reynsla fyrir mig, fjölskyldu mína og nána vini að fylgjast með hvernig vegið var að mannorði mínu með vandlega útfærðum spuna, sem dreift var á rétta staði til að ná sem mestri fylgni við einhliða og óstað- festa frásögn af ástæðum uppsagnar tiltekins starfs- manns hjá ON. S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11Þ R i ð J u D A G u R 2 0 . n ó v e m B e R 2 0 1 8 2 0 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :3 3 F B 0 3 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 6 F -2 6 C 4 2 1 6 F -2 5 8 8 2 1 6 F -2 4 4 C 2 1 6 F -2 3 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 3 2 s _ 1 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.